Skólavarðan - 01.10.2008, Blaðsíða 26
26
RAFRÆNT SKóLASAMSTARF
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 8. ÁRG. 2008
Í aðalnámskrá og lögum um leik-, grunn- og
framhaldsskóla eru sett fram ýmis mark-
mið. Með þátttöku í eTwinningáætlun ESB
er sjálfkrafa unnið að ýmsum almennum
markmiðum. Jafnframt býður eTwinning
upp á leiðir til þess að nálgast markmið
einstakra greina aðalnámskrár.
eTwinning er áætlun ESB um rafrænt
skólasamstarf. Hún hentar öllum kennslu-
greinum jafnframt því að vera óformleg
og laus við skriffinnsku. Þátttaka kennara
og skóla í eTwinning jókst mikið á síðasta
skólaári, bæði hér á landi sem erlendis, og
taka skólar á fyrstu þremur skólastigunum
þátt.
Í lögum um leik-, grunn- og framhaldsskóla
er að finna nokkur almenn markmið sem
snúa að virðingu, mannréttindum, fjöl-
breyttri menningu og lýðræði. Talað er um
umburðarlyndi, víðsýni, virðingu fyrir mann-
gildi, siðferðisvitund, lýðræðislegt sam-
starf, þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi í sífelldri
þróun, vitund nemenda um borgaralega
ábyrgð og skyldur, skyldur einstaklingsins
við umheiminn og að koma í veg fyrir mis-
munun (samantekt höfundar).
Þátttaka í eTwinningverkefni stuðlar sjálf-
krafa að þessum almennu markmiðum,
sama hvernig verkefnið er eða hvaða
kennslugrein á í hlut. Að verkefni í eTwinning
standa alltaf a.m.k. tveir skólar hvor frá sínu
Evrópulandinu en oft eru þeir mun fleiri.
Nemendur kynnast því í öllum tilfellum jafn-
öldrum sínum í öðru landi og fræðast um
samfélag þeirra og menningu. Öll verkefni
stuðla því að umburðarlyndi, víðsýni, virð-
ingu og tilfinningu fyrir margbreytileika en
jafnframt því sem allir eiga sameiginlegt,
sem er manngildið. Nemendur læra því
einnig að þeir eru hluti ákveðins samfélags
ásamt því að vera evrópskir borgarar.
Í sjöunda kafla laga um grunnskóla þar
sem fjallað er um aðalnámskrá er m.a. lögð
áhersla á „Margvíslegar leiðir til öflunar
þekkingar með notkun tæknimiðla og upp-
lýsingatækni.“
eTwinning býður upp á leiðir til þess að
ná þessu markmiði. Þegar verkefni er skráð
fá aðstandendur þess sjálfkrafa aðgang að
einskonar rafrænni kennslustofu, TwinSpace
(TS). Kennarar geta síðan boðið nemendum
sínum aðgang með lykilorði. Í gegnum
TS má skiptast á skjölum, upplýsingum,
spjalla saman o.s.frv., allt með öruggum
hætti þar sem utan að komandi hafa ekki
aðgang. Fyrir utan TS býður eTwinning
frían aðgang að ýmsum öðrum vef- og
upplýsingatækjum. Þátttaka í eTwinning auð-
veldar þannig notkun tæknimiðla og upp-
lýsingatækni í kennslu og opnar margvís-
legar leiðir til öflunar þekkingar.
eTwinning má einnig nota til þess að ná
markmiðum einstakra greina aðalnámskrár.
Þar sem verkefni er ávallt í samvinnu Íslands
og annars Evrópulands er auðvelt að nýta
eTwinning í kennslu erlendra tungumála.
Með þetta í huga geta kennarar leitað sam-
starfsaðila í viðkomandi landi þannig að
verkefnavinnan fari fram á því tungumáli
sem verið er að kenna.
Á aðalvef eTwinning er að finna verk-
efnapakka (e. kits) sem kennarar geta nýtt
sér þegar þeir skipuleggja verkefni og ætla
ég að nefna hér eitt dæmi. Verkefnapakkann
„Árstíðirnar fjórar“ (e. Four Seasons) er
hægt að nýta til þess að nálgast markmið
náttúrufræði og umhverfismenntar, sam-
félagsgreina, stærðfræði og kristinna fræða,
siðfræði og trúarbragðafræða.
Í stuttu máli tengjast verkefnin „Árstíð-
rnar fjórar“ hátíðisdögum í Evrópu sem
aftur tengjast gangi himintungla. Nemendur
safna og skiptast á upplýsingum um ákveðna
hátíðisdaga sem síðan eru bornir saman með
sérkenni þátttökulandanna í huga. Efnið er
svo sett fram skipulega og gefið út á Netinu.
Hægt er að leggja áherslu á markmið þeirra
greina sem minnst var á að ofan eftir því
hvaða kennslugrein á í hlut.
Þannig má fella pakkann að náttúrufræði,
umhverfismennt og stærðfræði með áherslu
á gang himintungla ásamt viðeigandi út-
reikningum. Með áherslu á menningar- og
söguleg sérkenni þátttökulandanna er hægt
að vinna að markmiðum samfélagsgreina.
Þá má nýta pakkann í kennslu kristinna
fræða, siðfræði og trúarbragðafræða með
áherslu á trúarbrögð.
Margir aðrir verkefnapakkar standa kenn-
urum til boða og hvetur undirritaður þá til
að kynna sér úrvalið. Sjá aðalvef eTwinning í
Evrópu: www.etwinning.net, undir inspiration.
Þegar þátttaka í eTwinning er skoðuð
sem leið að markmiðum aðalnámskrár er
ljóst að hún þarf ekki að vera auka byrði
heldur aðferð sem fellur að þeirri kennslu
sem fyrir er. Ávinningurinn er ekki aðeins að
ná markmiðum heldur fjölbreyttari kennslu-
hættir.
Allar nánari upplýsingar um eTwinning
er að finna á heimasíðu landskrifstofunnar:
www.etwinning.is
Einnig má hringja í Guðmund Inga
Markússon í síma 525 5854 eða senda
tölvupóst á netfangið gim@hi.is.
Guðmundur Ingi Markússon
Höfundur er verkefnisstjóri hjá Alþjóðaskrifstofu
háskólastigsins.
Að verkefni í eTwinning standa alltaf a.m.k. tveir skólar hvor frá sínu
Evrópulandinu en oft eru þeir mun fleiri. Nemendur kynnast því í öllum
tilfellum jafnöldrum sínum í öðru landi og fræðast um samfélag þeirra
og menningu. Öll verkefni stuðla því að umburðarlyndi, víðsýni, virðingu
og tilfinningu fyrir margbreytileika en jafnframt því sem allir eiga
sameiginlegt, sem er manngildið.
eTwinning sem leið að
markmiðum aðalnámskrár
Ljósmynd frá höfundi