Skólavarðan - 01.10.2008, Side 24
24
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 8. ÁRG. 2008
Sigurður Helgason – hinsta kveðja
Sigurður Helgason fæddist 2. mars 1930 og ólst upp í
Borgarfirði. Að loknu kennara- og íþróttakennaraprófi
stundaði hann framhaldsnám í Osló og Minneapolis.
Sigurður var kennari og skólastjóri uns hann gekk
til liðs við Fræðslumálaskrifstofu og síðar mennta-
málaráðuneytið. Auk setu í ýmsum nefndum á vegum
ráðuneytisins og í samninganefnd ríkisins starfaði
Sigurður alla tíð mikið að íþrótta- og æskulýðsmálum
og var meðal annars hvatamaður að stofnun skólabúða
á Íslandi á Reykjum í Hrútafirði. Hann var fjölhæfur
íþróttamaður, varð Íslandsmeistari í badminton, frjáls-
um íþróttum og sundi, söngmaður góður og mikill
náttúruunnandi og fuglaáhugamaður, hafði yndi af
stangveiðum og stundaði fiskirækt og skógrækt. Með
fyrri konu sinni, Ólöfu Láru Ágústsdóttur, eignaðist
Sigurður soninn Ágúst Heiðar, rafvirkja, f. 1954. Með
seinni konu sinni, Soffíu Kristjánsdóttur, eignaðist
hann dæturnar Álfheiði, háskólanema, f. 1982 og Helgu
Guðrúnu, húsasmíðanema, f. 1984. Sonarbörn Sigurðar
eru þrjú og eitt barnabarnabarn. Útför Sigurðar fór
fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þann 3. nóvember sl.
Eiríkur Jónsson formaður KÍ og Elna Katrín Jónsdóttir
varaformaður KÍ rituðu minningarorð og kveðju frá
Kennarasambandinu sem birtust í Morgunblaðinu þann
dag og eru endurbirt hér.
Ég vil með nokkrum orðum minnast góðs vinar og sam-
ferðamanns, Sigurðar Helgasonar, sem nú er látinn.
Kynni mín af Sigurði ná yfir um það bil hálfa öld en mín
fyrsta minning um hann tengist því þegar ég sem lítill
drengur var að leita að fuglshreiðrum í hálsinum fyrir ofan
Reykholt í Borgarfirði. Ástæðan fyrir þessari leit minni
var sú að Sigurður, sem jafnan kom í Reykholt á vorin,
stundaði á þessum árum þá iðju að merkja fuglsunga.
Mér fannst mikið til þessa ábyrgðarstarfs koma og man
að ég hlakkaði alltaf til að hitta Sigurð enda var hann
einstaklega barngóður og þægilegur maður. Atvikin
höguðu því þannig að sambandið milli okkar slitnaði aldrei
því á unglingsárum mínum hittumst við oft á vettvangi
íþróttanna, ég sem keppandi og hann sem stjórnarmaður
í Frjálsíþróttasambandi Íslands. Síðan tók við samstarf
á vettvangi skóla- og samningamála þegar Sigurður var
orðinn starfsmaður menntamálaráðuneytisins.
Í öllum sínum störfum ávann Sigurður sér virðingu
samferðafólksins enda óhætt að segja að réttsýni hans
og fagmennsku hafi engin takmörk verið sett. Mörg
voru þau úrlausnarefni sem við hjá Kennarasambandi
Íslands þurftum að leita með til Sigurðar meðan hann
starfaði í ráðuneytinu, bæði fagleg málefni og mál sem
tengdust framkvæmd kjarasamninga, en Sigurður sat
um árabil í samninganefnd ríkisins. Ég minnist þess
ekki að nokkurn tíma hafi komið upp mál sem ekki var
reynt að leysa á farsælan hátt þannig að báðir aðilar
væru sáttir með niðurstöðuna. Sigurður var mannasættir
sem ávallt lagði sig allan fram um að ná sem réttlátastri
niðurstöðu og það taldist til tíðinda ef ekki tókst að leysa
mál án aðkomu dómstóla ef hans naut við. Við sem störf-
uðum hjá Kennarasambandi Íslands á árum Sigurðar í
menntamálaráðuneytinu minnumst hans með hlýhug,
þökk og virðingu. Framlag hans til skólamála á Íslandi
var ómetanlegt og fyrir það er mér bæði ljúft og skylt að
þakka.
Ég vil að leiðarlokum, bæði persónulega og fyrir hönd
Kennarasambands Íslands, þakka Sigurði samfylgdina og
órofa tryggð og vináttu. Eftirlifandi eiginkonu, afkomendum
og öðrum ástvinum sendi ég innilegar samúðarkveðjur og
bið algóðan Guð að blessa minningu Sigurðar Helgasonar.
Eiríkur Jónsson.
Fyrir um tuttugu árum kynntist ég Sigurði Helgasyni. Leiðir
okkar lágu saman vegna starfa hans í menntamálaráðuneytinu
en minna starfa fyrir kennarasamtökin. Atvikin höguðu
því svo að við unnum saman að ýmsum verkefnum um
langt árabil, bæði á sviði faglegra mála og kjaramála
en Sigurður var lengi viðriðinn kjarasamninga kennara
og vann þar mikilvægt starf sem iðulega fólst í því að
sameina fagleg sjónarmið þeim kjaralegu, að leiða saman
fólk í samræðum og að leysa ágreiningsmál. Sigurður var
afar vel til slíkra starfa fallinn. Hann var í senn fylginn sér
og sveigjanlegur, skarpskyggn á hvað þurfti til að leysa mál
en um leið þolinmóður og úthaldsgóður. Framar öðru var
hann þó góður maður sem var létt um að sýna öðru fólki
samúð og samhygð og hafði ríka réttlætiskennd. Sigurður
átti auðvelt með að umgangast fólk sem bæði var ólíkt að
skapferli, á ólíkum aldri og úr ýmsum áttum, var einkar
alþýðlegur í framgöngu og hafði ríka kímnigáfu. Mér er
það minnisstætt hversu vel honum fórst það úr hendi að
leiðbeina okkur sem yngri voru án þess að gera lítið úr
okkur en ekki síður kurteisin og ljúfmennskan sem við
máttum víst taka okkur til fyrirmyndar. Ég held að við
höfum alltaf öll litið á Sigurð sem einn af okkur, hvort sem
við vorum launamanna megin eða vinnuveitenda megin
við kjarasamningaborðið og segir það mikið um hæfileika
hans til þess að setja sig í spor annarra og til þess að
sjá bæði vandamál og lausnir á þeim með augum ólíkra
aðila.
Ég veit að ég tala fyrir munn margra félaga og sam-
starfsmanna í kennarastétt þegar ég þakka Sigurði
Helgasyni samstarfið að leiðarlokum og votta fjölskyldu
hans samúð.
Elna Katrín Jónsdóttir.
MINNINGARORÐ