Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Side 4

Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Side 4
AFMÆLISRIT F. U. J. 2 F. U. J. í Hafnarfirðí 10 ára Saga félagsíns eftir Ólaf Þ. Kristjánsson Ólafur Þ. Kristjánsson Stofnun. Fyrsta félag ungra jafnaðarmanna hér á landi var stofnað í Reykjavík 8. nóvember 1927, með rúmum 40 félags- mönnum. Var það ekki nema eðlilegt, að þetta yrði fyrst í Reykjavík, því að þar voru höfuðstöðvar Alþýðúflokksins og skilyrði á marga lund bezt til að stofna og starfrækja slíkt félag. Það lætur að Iíkum, að stofnun þessa félagsskapar helur vakið eftirtekt þeirra manna, sem áhugasamastir voru í hópi ungra jafnaðarmanna á öðrum stöðum, og þá einkum í grennd við Reykjavík. Sú varð og raunin á, að þrem mánuðum síðar gengust þrír ungir og áhugasamir Alþýðuflokksmenn fyrir þvi, að haldinn var stofnfundur samskonar félags í Hafnarfirði. Þessir þrír forgöngumenn að stofnun félagsins eru nú allir vel þekktir menn vegna starfa sinna fyrir Alþýðuflokkinn og verklýðsfélögin. Það voru þeir Guð- ekki leyst nema á einn veg, — með al- ræði socialismans. Takmark F. U. J. félaganna er því fyrst og fremst það, að skóla sína meðlimi til þess að vinna að sigri socialismans, en sú hugsjón kemst fyrst til framkvæmda þegar allur þorri þjóðarinnar hefir fengið þroska og skilning á sínu hlutverki. Æskan verður því að vera vel á verði, starfa örugg og markviss að sínum á- hugamálum, láta aldrei bugast, en sækja fram skref fyrir skref, unz tak- markinu er náö. Þessi 10 ára starfsemi F. U. J. í Hafn- arfirði gefur góðar vonir um það, að ekki einungis hafnfirzkir æskumenn og konur, heldur allur æskulýður þessa lands, verði nýtir og góðir starfsmenn fyrir verkalýðssamtökin í landinu. Stærri og einlægari ósk á félagið ekki á þessum tímamótum á starfsbraut sinni en þá, að félagið mætti eflast og blómgast, og að hin margvíslegu menn- ingaráhrif þess mættu verða sem var- anlegust, svo að áhrifin frá því næði tilgangi sínum. Verndum sjálf okkur innan vébanda F. U. J. og fáum fleiri til þess að ger- ast liðsmenn undir einkunnarorðunum: Friður, Frelsi, Framfarir.

x

Afmælisrit F.U.J.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisrit F.U.J.
https://timarit.is/publication/1183

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.