Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Side 7

Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Side 7
5 AFMÆLISRIT F. U. J. ríkssyni falið að gegna formannsstörfum í forföllum hans. Innstreymið 1930. í janúar 1930 fóru fram bæjarstjórn- arkosningar í Hafnarfiröi. Voru þær all- hart sóttar og mikill pólitískur áhugi í bænum um þær mundir. Ekki verður séð að F. U. J. hafi haft bein afskipti af kosningunum eða rætt um þær á fundi, en einstakir félags- menn unnu eftir mætti að sigri Alþýðu- flokksins í þessum kosningum eins og öðrum. En kosningarnar og sú pólitíska lyfting, sem þær ollu, urðu hinsvegar ærið þýðingarmiklar fyrir félagið. Á aðalfundi félagsins, 26. jan., gengu 23 nýir menn í félagið. Sumir þeirra urðu síðan um langt skeið einhverjir nýtustu menn félagsins og eru það jafnvel enn. Má þar nefna menn eins og Jón Magnús- son, Stefán Júlíusson og Svein V. Stef- ánsson. Einn þeirra manna, sem gengu í fé- lagið á þessum fundi, var Þorsteinn Björnsson. Hann var þá þegar kosinn formaður félagsins, en stjórnin var að öðru leyti þannig skipuð, að Frímann Eiríksson var ritari, en Guðjón Gísla- son gjaldkeri. Þorsteinn Björnsson gerðist brátt ötull og athafnamikill í formannsstarfi sínu. Þegar á aðalfundi lét hann kjósa nefnd til þess að endurskoða lög félagsins og var því lokið og nýju lögin samþykkt á næsta fundi (9. febr.). í þeim lögum er sagt að tilgangur félagsins sé, „að safna hafnfirzkum æskulýð til fylgis við jafn- aðarstefnuna og verklýðshreyfinguna og undii-búa hann til sjálfstæðrar þátttöku í störfum flokksins“. Þessum tilgangi hugðist félagið að ná með „öflugri út- breiðslu- og fræðslustarfsemi um kenn- ingar jafnaðarstefnunnar og kröfur hennar“. Það er því í samræmi við þessa stefnu- skrá, að haldinn var útbreiðslufundur 2. febrúar með þeim árangri, að 70 menn gengu í félagið, bæði piltar og stúlkur. Áður höfðu félagsmenn verið eingöngu piltar. Innstreymið í félagið hélt áfram fram eftir vetrinum. 9. febr. bætast 47 menn í hópinn, 16. febr. 22, og 9. marz 27. Alls gengu í félagið á þessu ári 214 manns. En ekki varð félaginu mikill styrkur í flestum þessara manna. Þeir komu í augnablikshrifningu og hurfu svo burt aftur, þegar hrifningin leið hjá. Sumir sóttu eina félagsskemmtun og tóku ekki annan þátt í félagslífinu. Nokkrir greiddu ekki einu sinni inntökugjaldið, og margir aldrei neitt ársgjald, svo að í árslok 1930 eru ógreidd ársgjöld frá því ári talin 344 kr. á reikningum félagsins, en þó guldu miklu færri af skráðum fé- lagsmönnum gjöld sín til félagsins árið 1931, og hafa þau nú fyrir löngu verið strikuð út sem ófáanleg. En þó að svona færi þegar frá leið, þá var félagslíf í F. U. J. mjög fjörugt árið 1930. Umræðufundi hélt félagið 13 og voru þeir allir mjög fjölsóttir. Auk þess hélt félagið fjórar ágætar skemmtanir og eina hlutaveltu. Ágóðinn af henni var látinn renna í Alþýðuhússjóð. Síðar í þessum þáttum verður minnzt á ýmislegt fleira, sem félagið starfaði að á þessu eftirminnilega ári í sögu þess. Aldan hjaðnar. Á aðalfundi 1931 skoraðist Þorsteinn Björnsson undan endurkosningu, enda

x

Afmælisrit F.U.J.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisrit F.U.J.
https://timarit.is/publication/1183

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.