Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Page 9
1
AFMÆLISRIT F. U. J.
Helgi Sigurðsson
Jón Magnússon
manna haustiö 1929.. en ekki komst
skriður á það fyrr en Jón Magnússon
tók það upp á fundi 11. jan. 1931. í
nefndinni, sem sá um útvegun og gerð
fánans, voru Jón Magnússon, Sigríður
Thordersen og Guðmundur Gissurarson.
Fáninn kostaði rúmt hálft annað hundr-
að krónur óg er hinn prýðilegasti gripur,
eins og menn vita.
Yfirleitt snerist starfsemin mest inn á
við árið 1931. Ekki var reynt að safna
mönnum í félagið, heldur að byggja upp
trausta starfsemi innan þess. í því skyni
var hafin útgáfa skrifaðs innanfélags-
blaðs og stofnaður málfundaflokkur.
Á því ári stofnaði líka félagið ásamt
Félagi ungra kommúnista sérstakt fim-
leikafélag, íþróttafélag verkamanna,
sem hefir starfað óslitið síðan, nú síöast
undir nafninu íþróttafélag Hafnarfjarð-
ar.
1932 var Helgi Sigurðsson kosinn for-
maður. Aðrir menn í stjórninni voru:
Jón Magnússon, varaformaður, Bjarni
íslejfsson, ritari, Stefán Júlíusson, gjald-
keri og Marteinn Marteinsson, fjármála-
ritari. Bjarni ritaði aldrei nema 2 fund-
argerðir og sagði sig skömmu seinna úr
félaginu. Stefán tók þá við ritarastörf-
um, en Marteinn var bæði gjaldkeri og
fjármálaritari, því að varamaður vildi
ekki taka sæti í stjórninni. Hefur Mar-
teinn verið gjaldkeri félagsins alla tíð
síðan og setið lengur en nokkur annað
maður í stjórn félagsins. Þessi stjórn
var endurkosin óbreytt árið 1933.
Sú breyting verður á umræðuefni fé-
lagsfundanna þessi tvö ár, að nú eru
verklýðsmál og pólitísk dægurmál rædd
miklu meira en áður. Tvívegis eru fjár-
hagsástæður bæjarfélagsins ræddar, svo
er rætt um atvinnumálin í bænum, um
hafnarmálið, um kjördæmaskipunina,
um ríkislögregluna, um verkfall í Kefla-
vík og margt fleira. Mikill áhugi var
ríkjandi í félaginu um að vinna að sigri