Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Síða 9

Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Síða 9
1 AFMÆLISRIT F. U. J. Helgi Sigurðsson Jón Magnússon manna haustiö 1929.. en ekki komst skriður á það fyrr en Jón Magnússon tók það upp á fundi 11. jan. 1931. í nefndinni, sem sá um útvegun og gerð fánans, voru Jón Magnússon, Sigríður Thordersen og Guðmundur Gissurarson. Fáninn kostaði rúmt hálft annað hundr- að krónur óg er hinn prýðilegasti gripur, eins og menn vita. Yfirleitt snerist starfsemin mest inn á við árið 1931. Ekki var reynt að safna mönnum í félagið, heldur að byggja upp trausta starfsemi innan þess. í því skyni var hafin útgáfa skrifaðs innanfélags- blaðs og stofnaður málfundaflokkur. Á því ári stofnaði líka félagið ásamt Félagi ungra kommúnista sérstakt fim- leikafélag, íþróttafélag verkamanna, sem hefir starfað óslitið síðan, nú síöast undir nafninu íþróttafélag Hafnarfjarð- ar. 1932 var Helgi Sigurðsson kosinn for- maður. Aðrir menn í stjórninni voru: Jón Magnússon, varaformaður, Bjarni íslejfsson, ritari, Stefán Júlíusson, gjald- keri og Marteinn Marteinsson, fjármála- ritari. Bjarni ritaði aldrei nema 2 fund- argerðir og sagði sig skömmu seinna úr félaginu. Stefán tók þá við ritarastörf- um, en Marteinn var bæði gjaldkeri og fjármálaritari, því að varamaður vildi ekki taka sæti í stjórninni. Hefur Mar- teinn verið gjaldkeri félagsins alla tíð síðan og setið lengur en nokkur annað maður í stjórn félagsins. Þessi stjórn var endurkosin óbreytt árið 1933. Sú breyting verður á umræðuefni fé- lagsfundanna þessi tvö ár, að nú eru verklýðsmál og pólitísk dægurmál rædd miklu meira en áður. Tvívegis eru fjár- hagsástæður bæjarfélagsins ræddar, svo er rætt um atvinnumálin í bænum, um hafnarmálið, um kjördæmaskipunina, um ríkislögregluna, um verkfall í Kefla- vík og margt fleira. Mikill áhugi var ríkjandi í félaginu um að vinna að sigri

x

Afmælisrit F.U.J.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisrit F.U.J.
https://timarit.is/publication/1183

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.