Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Blaðsíða 10
AFMÆLISRIT F. U. J.
8
Alþýðuflokksins í bæjarstjórnarkosning-
unum 1934.
Stjórnin, sem kosin var á aðalfundi
1934, Jón Magnússon, formaður, Vigfús
Sigurðsson varaformaður, Stefán Júl-
íusson ritari, Marteinn Marteinsson
gjaldkeri og Hannes Sigurjónsson fjár-
málaritari, hóf starf sitt með myndar-
legri árshátíð, og var þá gefið út afmæl-
isrit, sem Leiftur hét, 16 síður í allstóru
broti, hið eigulegasta rit. Einnig gaf fé-
lgaið út 1. maí-blað þetta ár.
Síðustu árin.
Hér verður ekki fjölyrt um starfsemi
félagsins tvö undanfarin ár, því að hún
má enn vera mönnum í fersku minni.
Einkum hefir verið lögð áherzla á innri
byggingu félagsins sjálfs með þeim
skilningi, að hlutverk félagsins sé að
vera skóli æskunnar undir annað og
meira starf í þágu Alþýðuflokksins og
þjóðfélagsins.
Fundum hefur fjölgað (4 árið 1936, en
6 árið 1937, auk skemmtifunda). Félaga-
talan hefur aukizt. Félagar voru ca. 50 í
ársbyrjun 1936, en 12. febr. 1938, þegar
félagið var 10 ára, taldi það 73 meðlimi.
Málfundaflokkur félagsins hefir verið
endurvakinn og saumaflokkur stofnað-
ur.
Félagið átti frumkvæði að því, að bær-
inn hóf sérstaka atvinnubótavinnu með
skólastarfsemi fyrir atvinnulausa ung-
linga veturinn 1936—37.
Þá var það og fyrir atbeina félagsins,
að nefnd hefir starfað við að svipast um
eftir stað, sem væri hentugur fyrir Al-
þýðuflokksfélögin í Hafnarfirði til
skemmtana og hvíldar.
í ársbyrjun 1937 fékk félagið rétt til að
láta formann sinn eiga sæti í Fulltrúa-
ráði verklýðsfélaganna í Hafnarfirði.
Stjórn félagsins 1936 var þannig skip-
uð: Vigfús Sigurðsson formaður, Ólafur
Jónsson, varaformaður, Sveinn V. Stef-
ánsson ritari, Marteinn Marteinsson
gjaldkeri og Haraldur Guðmundsson
fjármálaritari.
Árið 1937 skipuðu eftirtaldir menn
stjórnina: Sveinn V. Stefánsson, for-
maður, Níels Þórarinsson, varaformaður,.
Ólafur Jónsson, ritari, Marteinn Mar-
teinsson, gjaldkeri, og Pétur Óskarsson,
fjármálaritari.
Yfirlit.
Hér fer á eftir yfirlit yfir nokkra þætti
í starfsemi félagsins. Sýnir það hve
margir fundir hafa verið haldnir hvert
ár fyrir sig og hve margar skemmtanir,
og hve mörg erindi hafa verið flutt á
fundum félagsins. Almennir þjóðmála-
fundir, sem félagið hefir gengizt fyrir,
og kaffifundir eru taldir með í tölu
fundanna.
Ár Fundir Skemmtanir Erindi
1928 6 1 4
1929 2
1930 16 4 3
1931 14 2 3
1932 10 1 4
1933 9 4 3
1934 6 4 1
1936 4 2
1937 7 1 6
Alls 74 19 24
Við þessa skrá er það að athuga, að
fundirnir eru eitthvað fleiri en hér er
talið. Kaffifundir eru venjulega ekki
bókaðir í gerðabókum félagsins og al-
mennir þjóðmálafundir ekki heldur, en