Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Page 12

Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Page 12
AFMÆLISRIT F. U. J. 10 þennan vetur og þann næsta, og þótti það ágætt skemmtiatriði. Haustið 1931 var eftir tillögu frá Bjarna M. Jónssyni kosin nefncl til þess að undirbúa flokkastarfsemi innan fé- lagsins. í nefndinni voru Stefán Júlíus- son, Jóna ísleifsdóttir og formaður fé- lagsins, Ólafur Þ. Kristjánsson. Nefndin skilaði ýtarlegu áliti á næsta fundi (30. okt. 1931), og lagði fram almennar starfsreglur fyrir slíka innanfélags- flokka. Síðar á fundinum var málfuncLa- flokkur stofnaður fyrir atbeina Stefáns Júlíussonar. Stofnendur málfundaflokksins voru 6, en fleiri bættust við síðar. Stefán var formaður hans. Fundir voru haldnir vikulega og voru umræður oft bæði harð- ar og skemmtilegar. Starfaði flokkurinn fram í miðjan febrúar 1932, og hafði þá haldið 12 fundi. Flokkurinn tók aftur upp starfsemi sína í desember 1932, fyrst undir forustu Stefáns, en þegar hann hvarf burt úr bænum eftir áramótin, tók Jón Magnús- son við stjórn flokksins. Skýrslur eru ekki til um starfsemina að þessu sinni, en flokkurinn starfaði af talsverðu fjöri fram eftir vetrinum. Síðan liggur þessi starfsemi niðri, þar til í desember 1937, að nýr flokkur er myndaður. Hefir hann starfað síðan með miklum áhuga. Formaður hans er Stef- án Júlíusson, en 10 menn eru í flokkn- um. Sauvuiflokkur var stofnaður í desem- ber 1937, og eru í honum 8 stúlkur. For- maður flokksins er Unnur Erlendsdóttir. Leikflokkur hefir aldrei verið stofn- aður innan félagsins, en nokkrum sinn- um hafa fleiri eða færri félágsmenn æft smáleiki og sýnt á skemmtisamkomum. Öreiginn. Á 6. fundi félagsins, 9. des. 1928, minntist Guðm. Gissurarson á það, að vænlegt væri til gagns og skemmtunar í félagsskapnum, að gefa út innanfélags- blað. Tóku menn vel undir það, en ekkert mun hafa orðið úr framkvæmdum. Tveim árum síðar (14. des. 1930), er útgáfa innanfélagsblaös ákveðin. Jón Pálsson átti upptökin að því, en að und- irbúningi málsins höfðu þeir Guðmund- ur Gissurarson og Jón Magnússon unnið með honum. Blaðið var látið heita Ör- eiginn. Jóni Pálssyni var falin ritstjórn blaðsins, og var það i fyrsta sinn lesið upp á fundi 4. febr. 1931. Öreiginn er nú orðinn allstór bók, 86 blaðsíður í stóru broti. Alls hefir hann birzt 13 sinnum, misjafnlega stórvaxinn, en alltaf áheyrilegur. Jón Pálsson var ritstjóri að fyrstu 5 blöðunum, en aðrir ritstjórar hafa verið: Gunnar Jónsson, Stefán Júlíusson, Guðmundur B. Magn- ússon (frá Katrínarkoti), Magnús Kjartansson, Sveinn V. Stefánsson og Ólafur Jónsson. Fleiri félagar hafa skrifað i blaðið, og er sérstaklega ástæða til að nefna Valgeir Sigurðsson í þvi sambandi. Talsvert er skrifað undir dul- nefnum, og verður nú ekki um það sagt, hverjir það hafa gert. Sumt af því, sem ritað var í Öreigann, birtist síðar í Kyndli. Öreiginn skiptist þannig niður á ár, að 1930 kom hann út 5 sinnum, tvisvar 1932 og jafnoft 1933, einu sinni hvort árið 1935 og 1936, og tvívegis árið 1937. Hefir hann jafnan þótt góður gestur á fundi félagsins. Alþýðuhús. Eitt þeirra mála, sem F. U. J. hefir

x

Afmælisrit F.U.J.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afmælisrit F.U.J.
https://timarit.is/publication/1183

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.