Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Síða 14
AFMÆLISRIT F. U. J.
12
félaginu væri alveg óhætt að treysta
góðum málstað og leggja til þessarar
orrustu. Þó var ákveðið að fresta hólm-
göngunni að sinni, en halda í þess stað
opinn æskulýðsfund. Sá fundur var
haldinn nokkru síðar, en um hann er
ekkert bókað. Fór hann þó ágætlega
fram. Auk hafnfirzkra ræðumanna töl-
uðu þar menn úr F. U. J. í Reykjavík,
meðal annarra Árni Ágústsson, Kristinn
Ág. Eiríksson, Vilhjálmur S. Vilhjálms-
son og Þorvaldur Brynjólfsson.
9. marz var aftur haft orð á því, að
bjóða „Stefni“ til hólmgöngu, og var nú
ekki á það minnzt, að Reykvíkingar
tækju þátt í fundinum. Fundarmenn
voru allir á einu máli um að bjóða
,,Stefni“ út, en sumir töldu þó ekki
sanngjarnt að Sjálfstæðismönnum leyfð-
ist að tefla þar fram eldri mönnum en
þrítugum. Sigfús Magnússon og Ólafur
Þ. Kristjánsson og Kristinn Ág. Eiríks-
son úr Reykjavík, töldu sjálfsagt að
„Stefnir“ réði því sjálfur, með hvaða
lið hann kæmi á funidnn. Var það og
samþykkt.
Kappræðufundur þessi fór fram í Bæj-
arþingssalnum 23. marz við húsfylli.
Var ekki laust við að nokkur glímu-
skjálfti væri í F. U. J.-mönnum fyrir
fundinn, því að hér gengu þeir til leiks,
sem þeir höfðu aldrei háð áður, en mikið
var undir komið hvernig tækist. En
fundurinn reyndist þeim í öllu hinn
ánægjulegasti.
Ræðumenn af hendi F. U. J. voru:
Emil Jónsson, Guðm. Gissurarson, Guð-
mundur I. Guðmundsson, Ólafur Þ.
Kristiánsson, Þorsteinn Björnsson og
Þóroddur Hreinsson.
En meðal ræðumanna „Stefnis“ voru
Sigurgeir Gíslason og bæjarfulltrúarnir
Ásgrímur Sigfússon, Helgi Guðmundsson
og Þorleifur Jónsson.
Páll Sveinsson segir þannig frá þessum
fundi í áðurnefndri minningargrein:
„Félagið gekk með glæsilegan sigur af
hólmi. Ræðumenn þess voru margir,
allir innan þrítugs. Ræðurnar fluttar
með krafti og rökum, sóknin djarfmann-
leg, enda fyrir fögrum hugsjónum bar-
izt. En ræðumenn félags ungra Sjálf-
stæðismanna allir komnir á hin efri ár,
að undanskildum þremur, og sýndi það
enn betur hvoru megin æskan var.
Annars fór fundurinn vel fram sem
vera bar, og var F. U. J. til hins mesta
sóma.“
Hvernig Stefnir leit á sinn hlut eftir
fundinn, má marka af því, að þegar
F. U. J. ári síðar (1931) bauð ,,Stefni“
til annars kappræðufundar, er fram-
bjóðendurnir til Alþingis, Stefán Jóh.
Stefánsson og Bjarni Snæbjörnsson,
tækju þátt í með félögunum, þá neitaði
„Stefnir“, ásamt Bjarna Snæbjörnssyni,
að koma á þann fund.
F. U. J. og S. U. J.
Þegar Samband ungra jafnaðar-
manna var stofnað 4. maí 1929, var F.
U. J. í Hafnarfirði eitt þeirra fjögurra.
félaga, er það gerðu, og hefir það alla
tíð síðan verið önnur öflugasta stoð
Sambandsins. Hér verður sú saga ekki
rakin, en þess skal þó getið, að á 3. þingi
S. U. J. á Siglufirði í september 1930,
þegar kommúnistar klofnuðu út úr
samtökunum, þá stóðu fulltrúarnir úr
Hafnarfirði allir eins og einn veggur
með Alþýðuflokknum. Þessir fulltrúar
voru: Frímann Eiríksson, Guðmundur
Gissurarson, Jón Magnússon, Jónína