Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Blaðsíða 18

Afmælisrit F.U.J. - 01.06.1938, Blaðsíða 18
AFMÆLISRIT F. U. J. lff Fram tíl sóknar! Félag ungra jafnaðarmanna í Hafnar- firði hefur nú um 10 ára skeið verið cinn þáttur í hinni pólitísku baráttu al- þýðunnar hér í bæ. Þar hafa verið rædd flest þau mál Alþýðuflokksins, sem efst hafa verið á baugi á hverjum tíma. Fé- lagið hefur veriö vettvangur æskunnar til að láta mál alþýðunnar til sín taka, ræða um þau frá ýmsum hliðum, gera um þau ályktanir og annast fram- kvæmdir, eftir því sem ástæða og geta hefur leyft. — Með starfsemi sinni hefur F. U. J. aukið félagshyggju meðal al- þýðuæskunnar hér í bænum, þjálfað hana í félagsstarfsemi, og veitt henni þroska og æfingu til að taka raunhæfan þátt í verkalýðsbaráttunni. Það er að vísu svo, að þessi æskulýðshreyfing er ekki eins víðtæk hér í bæ og bezt væri á kosið, en hitt er vitanlegt, að starf- semi áhugaliðs F. U. J. á hverjum tíma hefur mjög gætt í hinni pólitísku og faglegu baráttu verkalýðsins. F. U. J. á nú sem endranær hóp af á- hugasömu og fórnfúsu fólki, bæði karla og konur. Starfsemin þarfnast einmitt áhuga og fórnfýsi, því nóg eru verkefn- in og nógir kraftarnir til að hrinda þeim í framkvæmd, ef viljinn er einlægur og Eftír Guðmund Gissurarson einbeittu-r, en kröftum sínum verður áhugalið félagsins að beina nú fyrst og fremst í þá átt að gera sem flesta ,og helzt alla að starfandi áhugaliði, þá munu margir bætast í hópinn, áður langt líður. Á þessum tímamótum F. U. J. vil ég færa því hugheilar árnaðaróskir, en þær felast í því fyrst og fremst, að félags- skapnum mætti auðnast að skapa meiri og einlægari félagshyggju, ná tökum á allri alþýðuæsku hér í bæ, veita henni félagslegt uppeldi á grundvelli jafnaðar- stefnunnar og gera hana að heilsteypt- um virkum aðila í alþýðusamtökunum. Setjið merkið hátt. Vinnið drengilega og markvíst. Fram til nýrrar og öflugri sóknar. Guðvi. Gissurarson. PRENTSMIÐJAN EDDA H.F.

x

Afmælisrit F.U.J.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisrit F.U.J.
https://timarit.is/publication/1183

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.