Félagsbréf - 01.05.1971, Blaðsíða 8
íslenzk
sendibréf
VALTÝR
STEFÁNSSON
SKRIFARINN Á STAPA
RISKUPINN I GÖRÐUM
KONUR SKRIFA BRÉF
HAFNARSTUDENTAR SKRIFA HEIM
DR. VALTÝR GUÐMUNDSSON SEGIR FRÁ
GÖMUL REYKJAVÍKURBRÉF
GEIR BISKUP GÓÐI
Ritsafn þetta, í sjö bindum, hefur að geyma úrval bréfa, sem öll
eru frá timabilinu 1790—1927.
I bréfum þessum ber æðimargt á góma, bæði broslegt og harm-
sögulegt. Þau bregða upp ljóslifandi myndum af höfundum sinum,
einkamálum þeirra, önn og áhyggjum, en einnig luma þau á marg-
háttuðum fróðleik um menn og málefni sins tima, og kemur þar
sitthvað í leitirnar, sem ekki er annars staðar að finna.
Dr. Finnur Sigmundsson, fyrrv. landsbókavörður, sá um útgáfuna
og ritaði skýringar.
ÞAU GERÐU GARÐINN FRÆGAN
MYNDIR UR ÞJÓÐLlFINU
MENN OG MINNINGAR
MEÐ VALTÝ STEFÁNSSYNI
Valtýr Stefánsson var i nærri 40 ár ritstjóri Morgunblaðsins og
undir hans stjórn varð það útbreiddasta dagblað landsins. Þótt nafn
hans sé órjúfanlega bundið blaðinu, munu viðtölin, sem hann birti
þar, efalitið halda nafni hans lengst á lofti, en í þeirri grein blaða-
mennsku var hann hinn mesti snillingur.
Valtýr ræddi við fjölda manna af öllum stéttum þjóðfélagsins um
lífsferil þeirra, áhugamál og viðfangsefni. Með árunum urðu þessi
viðtöl svo mörg og komu svo víða við, að segja má að í heild sinni
myndi þau eins konar þverskurð af islenzku þjóðlifi allt frá því
fyrir siðustu aldamót.