Félagsbréf - 01.05.1971, Page 12

Félagsbréf - 01.05.1971, Page 12
FERÐAROLLA MAGNÚSAR STEPHENSEN Sigurður Breiðfjörð FRÁ GRÆNLANDI FERÐABÖK HELGA PJETURSS W.L. Watts NORÐUR YFIR VATNAJÖKUL Fimmtiu árum síðar leggur Magnús dómstjóri Stephensen upp i síðustu ferð sina til Kaupmannahafnar og liefur þar vetursetu. Hann heldur sig stórmannlega eins og stöðu hans og ætt hæfir, enda heimagangur hjá helzta fyrirfólki borgarinnar og situr m. a. dýrlegar veizlur hjá konunginum. I ferðabókinni er lýst gaum- gæfilega öllu, sem þarna fer fram, hátterni fólks, samkvæmisvenj- um og klæðaburði, en fyrst og fremst Magnúsi sjálfum, í daglegu bjástri hans og áhyggjum. Jón Guðnason sá um útgáfuna. Þessu næst leggtn þjóðkunnur Islendingur leið sína til Grænlands. Það er Sigurður Breiðfjörð, sem árið 1831 ræðst þangað sem beykir við dönsku konungsverzlunina og dvelur þar til 1834. I ferðabók sinni, sem varð mjög vinsæl, lýsir hann á skemmtilegan hátt kynn- um siniun af Grænlendingum og öðru því helzta, sem við bar í ferðinni. Eiríkur Hreinn Finnbogason sá um útgáfuna. Sextíu ár líða, og aftur gefst okkur kostur að sækja Grænland lieim, að þessu sinni í fylgd með dr. Helga Pjeturss, jarðfræðingi. Á ferðum sinum gerði hann merkar visindalegar athuganir, og allar lýsingar hans frá Grænlandi eru lifandi og skemmtilegar. Vilhjálmur Þ. Gíslason sá um útgáfuna. W. L. Watts var enskur háskólastúdent, sem fór þrjár ferðir til íslands i rannsóknarskyni, hina siðustu árið 1875. I þeirri ferð komst hann fyrstur manna yfir þveran Vatnajökul. Um Watts komst Þorvaldur Thoroddsen svo að orði: „Á öllu ferðalagi sínu sýndi Watts frábæran dugnað og þrek, og ferðasaga hans er mjög skemmtileg. Hann hefur óvanalega vel kynnt sér siði og háttu íslendinga og ber þeim vel söguna." Watts lézt 1877, aðeins 26 ára gamall. Jón Eyþórsson íslenzkaði bókina og skýrir frá henni og höfundinum í inngangsritgerð. Jón Eyþórsson sneri ó islenzku. 10

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.