Félagsbréf - 01.05.1971, Side 18

Félagsbréf - 01.05.1971, Side 18
VÍSUR JARÐARINNAR Þorgeir Sveinbjamarson skáld lézt að heimili sínu í Reykjavík hinn 19. febrúar sl. Hann hafði um nokkurt skeið átt við vanheilsu að stríða og mun hafa grunað, að hverju dró, en áður en hann lagðist rúmfastur vann hann að því að búa nýja ljóðabók undir prentun og tókst honum að ljúka því verki. Nefndi hann bók sína Vísur jarSarinnar og er hún nýlega komin út hjá Almenna bóka- félaginu. Þorgeir Sveinbjarnarson var Borgfirðingur að uppruna, fæddur 14. ágúst 1905 að Efstabæ í Skorradal. Hann stundaði nám við Hvítár- bakkaskóla, og síðar við Tarna folkhögskola í Svíþjóð og Statens Gymnastikinstitut í Kaup- mannahöfn. Að loknu námi réðst hann íþróttakennari að Laugaskóla i Suður-Þing- eyjarsýslu og gegndi því starfi næstu 13 árin. Varð hann þá um sinn framkvæmdastjóri Iþróttasambands fslands og síðan forstjóri Sundhallar Reykjavíkur frá ársbyrjun 1945. Ekki er vitað, hvenær Þorgeir hóf í veruleg- um mæli að leggja stund á ljóðagerð, og senni- lega hefur hann þá verið fulltíða maður. En þjóðkunnugt skáld varð hann af tveimur ljóðabókum sínum, Vísum Bergþóru og Vís- um um drauminn. Kom hin fyrri út árið 1955, er höfundurinn stóð á fimmtugu, en hin tíu árum síðar. Meðal kunningja Þorgeirs var það vitað mál, að hann var hagorður í

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.