Fréttablaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 6
Bretland Julian Assange, stofnandi
uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks,
hefur boðist til þess að gefa sig fram
í Bandaríkjunum ef Barack Obama
Bandaríkjaforseti náðar Chelsea
Manning. Wikileaks skýrði frá þessu
í Twitter-skilaboðum.
Chelsea Manning var árið 2013
dæmdur í 35 ára fangelsisvist í
Bandaríkjunum fyrir uppljóstranir
til Wikileaks.
Sænskur áfrýjunardómstóll hafn-
aði fyrir helgi kröfu um að framsals-
krafa gegn Assange yrði felld niður.
Dómstóllinn segir enga ástæðu til
að líta á einangrun Assange í sendi-
ráði Ekvadors sem frelsissviptingu.
Í læknaskýrslum, sem Wikileaks
hefur birt opinberlega, segir að and-
legri heilsu Assange sé hætta búin í
sendiráðinu. - gb
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
Sími 587 2123
FJÖRÐUR
Sími 555 4789
SELFOSS
Sími 482 3949
15-50%
afsláttur af
umgjörðum
ÚTSALA
Frelsun undan sjúkdómum
Indra Jatra trúarhátíðin fór fram í síðustu viku í Nepal. Einn af hápunktum hátíðarinnar er þegar konur keppast um að dreypa á áfengum dropum
sem seytla út úr munni líkneskis guðsins Swet Bhairab á torgi í Katmandú. Þetta gera þær í þeirri trú að að kraftur vökvans muni frelsa þær undan
sjúkdómum. Á hátíðinni er Indra, konungur guðanna og regnsins heiðraður, en hátíðin markar endalok rigningartímabilsins. Fréttablaðið/EPa.
Brasilía Málaferlum sem tengjast
Petrobras-hneykslinu í Brasilíu
er engan veginn lokið þótt Dilma
Rousseff hafi verið rekin úr forseta-
embættinu í sumar. Í síðustu viku
var forveri hennar, Luiz Inacio Lula
da Silva, ákærður fyrir spillingu í
tengslum við hneykslið.
Hann er sagður hafa tekið þátt í
spillingunni, meðal annars með því
að telja ekki fram til skatts glæsi-
íbúð mikla í Guaraja, sem hann
segist þó aldrei hafa átt.
Deltan Dalagnol ríkissaksóknari
segir að Lula hafi meira að segja
verið höfuðpaurinn í Petrobras-
málinu: „Lula var á toppi valda-
píramídans,“ sagði saksóknarinn á
blaðamannafundi. „Án ákvörðunar-
valds hans hefði þessi svikamylla
aldrei getað verið til.“
Þau Lula og Dilma voru vinsæl-
ustu stjórnmálamenn Brasilíu lengi
vel, að minnsta kosti Lula. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum hefur
almenningur þó misst álit á öllum
stjórnmálamönnum.
Lula var stofnandi Verkamanna-
flokksins og vann stórsigur í kosn-
ingum árið 2003. Dilma var náinn
samstarfsmaður hans og tók við af
honum árið 2011. Þau segja pólit-
íska andstæðinga sína standa á bak
við dómsmálin. „Ef þau sanna að ég
hafi verið spilltur, þá skal ég sjálfur
gefa mig fram og gerast fangi,“ sagði
Lula við blaðamenn.
Petrobras-svikamyllan snerist um
að stjórnmálamenn veittu verktaka-
fyrirtækinu Petrobras samninga
gegn mútum. Í ljós hefur komið að
þessi iðja var afar útbreidd.
Málið hefur að mörgu leyti lamað
allt samfélagið, jafnt stjórnmálin
sem efnahagslífið. Fréttaskýrendur
hafa meira að segja sagt, sumir
hverjir, að múturnar hafi verið
nauðsynlegar til að halda samfélag-
inu gangandi.
Hagfræðingar eru að vonast til
að efnahagurinn byrji að rétta úr
kútnum á næsta ári eftir erfiða
kreppu. Óvíst er hins vegar hvort
dómsmálin tengd Petrobras muni
til lengdar draga nokkuð úr spill-
ingunni.gudsteinn@frettabladid.is
Skandallinn
sem ekki fer
Saksóknari segir Lula da Silva, fyrrverandi forseta,
hafa verið höfuðpaurinn í Petrobras-hneykslinu
sem lamað hefur brasilískt þjóðfélag lengi.
Ef þau sanna að ég
hafi verið spilltur,
þá skal ég sjálfur gefa mig
fram og gerast
fangi
Luiz Inacius Lula
da Silva, fyrr-
verandi forsætis-
ráðherra Brasilíu
Helstu dagsetningar
málaferlanna 2016
17. apríl samþykkti neðri deild
þingsins að hefja ákærumál varð-
andi embættismissi á hendur
Rousseff
12. maí samþykkti öldunga-
deildin að rétta yfir Rousseff
31. ágúst komst öldungadeildin
að niðurstöðu um að Roussef
hefði brotið af sér. Sama dag vék
Rousseff úr embætti og Michel
Temer varaforseti tók við
14. september var Lula ákærður
fyrir aðild að spillingarmálinu
Í skýringarmynd um
búvörusamningana á bls. 4 í
Fréttablaðinu sl. laugardag stóð
að bændur fá 79 kr./l í stuðning
frá ríkinu vegna samninganna.
Þetta er ekki rétt tala, en hún er
49 kr./l. Samtala stuðnings vegna
samninganna og framleiðsluverðs
frá afurðastöð er því 135,16 kr.
Beðist er velvirðingar á þessu. - hlh
leiðrétting
Náða Manning
og fá þá Assange
Julian assange Stofnandi Wikileaks
1 9 . s e p t e m B e r 2 0 1 6 m Á n U d a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
9
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
9
F
-0
C
0
C
1
A
9
F
-0
A
D
0
1
A
9
F
-0
9
9
4
1
A
9
F
-0
8
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K