Fréttablaðið - 19.09.2016, Page 11
NÝR ISUZU D-MAX
VERÐ FRÁ 6.990.000 kr. SJÁLFSKIPTUR, 6 GÍRA
Isuzu D-Max Lux, leðursæti, 17" álfelgur, hiti
í sætum, hraðastillir, rafdrifið bílstjórasæti,
handfrjáls símabúnaður (Bluetooth) o.m.fl.
EYÐSLA AÐEINS 8,4 L/1OO KM*
280.000 KR. KAUPAUKI
NÚNA FYLGIR ÖLLUM ISUZU D-MAX
DRÁTTARBEISLI OG HEITKLÆÐNING Á PALLINN
*M
ið
a
ð
v
ið
e
yð
sl
u
tö
lu
r
fr
á
f
ra
m
le
ið
a
n
d
a
á
b
e
in
sk
ip
tu
m
b
íl
í
b
lö
n
d
u
ð
u
m
a
ks
tr
i.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
3.5OO kg
NÝTT MEIRI DRÁTTARGETA
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
7
7
1
6
7
I
s
u
z
u
D
m
a
x
5
x
2
0
2
8
0
þ
ú
s
k
r
k
a
u
p
a
u
k
i
s
e
p
t
Enn einir þjóðarþráttarsamningarnir voru samþykktir á dögunum á Alþingi og allt fór
það fram samkvæmt dagskrá – eftir
vandlega undirbúinni dagskrá þar
sem atkvæðagreiðsla þingmanna er
táknrænt leikrit í lokin. Nítján sam
þykkir, sjö greiða atkvæði gegn en
hinir sitja hjá; ekki á okkar vegum,
kemur okkur ekki við, myndum
ekki gera þetta svona sjálf, þvoum
hendur okkar af þessu.
Táknrænt leikrit. Þau má nefnilega
ekki vanmeta. Það gleymdist nefni
lega að það er ekkert hægt að sitja
hjá. Sé maður á annað borð andvígur
slíkum framlögum úr almannasjóð
um til að styrkja atvinnugrein eða
lífsmáta eða listgrein – eða hvað við
viljum annars kenna landbúnaðinn
við – þá þurfa allir að taka afstöðu.
Kurteist fólk
Í tíð síðustu ríkisstjórnar –
Jóhönnu stjórnarinnar – var þingið
á löngum köflum gert óstarfhæft
með markvissu málþófi sem ekki
var síst stjórnað af núverandi ráð
herra landbúnaðarmála, Gunn
ari Braga Sveinssyni. Ríkisstjórn
Jóhönnu var gert ókleift að ná
nokkrum málum í gegnum brim
skafla málæðisins sem öllu drekkti,
með þeim afleiðingum fyrir Sam
fylkinguna að kjósendur kenna
henni um allt sem miður hefur farið
á Íslandi frá landnámi.
Á þessum árum þótti Fram
sóknarmönnum og Sjálfstæðisfólki
ekki tiltökumál að beita málþófi
á fjárlög – sem var einsdæmi –
aukinheldur að þeir hleyptu í gegn
smærri málum. Núverandi stjórnar
andstaða er öllu ábyrgari, gerir
samninga við stjórnarmeirihlutann
um að hleypa í gegn tilteknum
málum gegn því að fá eitthvað á
móti. Í tilviki búvörusamninga voru
það ákvæði um hugsanlega endur
skoðun eftir þrjú ár á samningun
um sem annars gilda til tíu ára – en
þó aðeins ef bændum þykir ástæða
til. Fulltrúar stjórnarandstöðu telja
sig hafa skýr loforð um að við þessi
endurskoðunarákvæði verði staðið.
En eitt er að vera háttvís og fara að
reglum lýðræðisins – það er mjög
mikilsvert og lofsvert að gera það
– en annað er að láta meirihlutann
fara sínu fram með öllu fyrirhafnar
laust, eins og manni virðist að gert
hafi verið í þessu tilviki. Hugsanleg
endurskoðun eftir þrjú ár: öllu
rýrari getur uppskeran ekki verið.
Manni virðist að þetta sé eigin
lega angi af öðru og stærra og meira
böli stjórnarandstöðu – að skynja
ekki slátt tímans; heyra ekki kröfur
fólks um nýja siði, breytt samfélag,
sem taki mið af almannahags
munum fremur en að þjóna sér
hagsmunum.
Kurteist fólk. Nema nú var það
sem sagt kurteisi flokkurinn sem
vildi ekki vera með – Björt fram
tíð, sem legið er á hálsi fyrir að
vera of málefnaleg, sagði nei og
tók ekki þátt í þessari kurteislegu
athöfn heldur greiddi atkvæði gegn
þessum samningum, sem skuld
binda ríkissjóð til milljarða útgjalda
um ókomin ár.
Samningar
Í nútímasamfélagi þarf að semja
um allt. Stéttirnar og hagsmuna
hóparnir þurfa að hafa sína öflugu
fulltrúa og talsmenn á þingi og það
er hlutverk þeirra að gæta hags
muna þeirra sem senda þá á þing,
og semja við þá sem eiga annarra
hagsmuna að gæta. Í samningum er
ekki hægt að sitja hjá. Maður verður
að koma fram með sínar áherslur og
kröfur og þær þurfa að vera skýrari
og eindregnari en svo að fá það
tryggt að ef til vill verði þetta endur
skoðað eftir þrjú ár, ef viðsemjand
anum líst svo á.
Meirihluti landsmanna starfar
ekki í landbúnaði. Raunar ansi
mikill meirihluti – satt að segja er
landbúnaður rúmlega 1% af vergri
þjóðarframleiðslu. Má raunar segja
að öll þjóðin eins og hún leggur sig
sé „neytendur“ sem þó eru aldrei
kvaddir til nokkru sinni. Samt er
áreiðanlega leitun að þeirri mann
eskju hér á landi sem ekki viður
kennir ómælda þýðingu landbún
aðar fyrir land og þjóð. Flest viljum
við að matvælaframleiðsla víða um
land eflist og styrkist, dafni og verði
sem fjölbreyttust og ánægjulegust.
Landsmenn gera sér líka almennt
grein fyrir því að erfitt er að reka
hér landbúnað og bændur þurfa
styrki og fyrirgreiðslu rétt eins og
tíðkast um alla Evrópu. Almennt
gerir fólk greinarmun á bændum
og framleiðslu þeirra annars vegar
og svo stórum milliliðum og má þar
einu gilda hvort um er að ræða auð
hring á borð við Mjólkursamsöluna
eða verslunarrisa eins og Haga.
En þegar gerðir eru samningar
við fulltrúa ríkisins – sem eru þá
jafnframt fulltrúar allra lands
manna – líka þeirra sem ekki starfa
við landbúnað – þá er það með öllu
óviðunandi að þar komi hvergi að
borðinu fulltrúi neytenda; sem eru
eiginlega allir landsmenn. Full
trúar ríkisins í þessum samningum
koma úr ráðuneyti landbúnaðar og
alkunna er að milli þess ráðuneytis
og bændaforystunnar hafa löngum
legið slíkir gagnvegir að tómt mál
er að tala um fulltrúa þess ráðu
neytis sem fulltrúa almennings í
nokkrum skilningi. Þó ekki væri
nema fyrir þessa sök hljóta fulltrúar
almennings á Alþingi, sem ekki
styðja sjálfvirk framlög til landbún
aðarkerfisins, að minnsta kosti að
ræskja sig aðeins.
Þjóðarþráttin
Guðmundur
Andri Thorsson
rithöfundur
Í dag
Meirihluti landsmanna
starfar ekki í landbúnaði.
Raunar ansi mikill meiri-
hluti – satt að segja er land-
búnaður rúmlega 1% af
vergri þjóðarframleiðslu.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 1 9 . s e p T e M B e R 2 0 1 6
1
9
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
9
F
-0
C
0
C
1
A
9
F
-0
A
D
0
1
A
9
F
-0
9
9
4
1
A
9
F
-0
8
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K