Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.09.2016, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 19.09.2016, Qupperneq 11
NÝR ISUZU D-MAX VERÐ FRÁ 6.990.000 kr. SJÁLFSKIPTUR, 6 GÍRA Isuzu D-Max Lux, leðursæti, 17" álfelgur, hiti í sætum, hraðastillir, rafdrifið bílstjórasæti, handfrjáls símabúnaður (Bluetooth) o.m.fl. EYÐSLA AÐEINS 8,4 L/1OO KM* 280.000 KR. KAUPAUKI NÚNA FYLGIR ÖLLUM ISUZU D-MAX DRÁTTARBEISLI OG HEITKLÆÐNING Á PALLINN *M ið a ð v ið e yð sl u tö lu r fr á f ra m le ið a n d a á b e in sk ip tu m b íl í b lö n d u ð u m a ks tr i. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is 3.5OO kg NÝTT MEIRI DRÁTTARGETA GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 E N N E M M / S ÍA / N M 7 7 1 6 7 I s u z u D m a x 5 x 2 0 2 8 0 þ ú s k r k a u p a u k i s e p t Enn einir þjóðarþráttarsamn­ingarnir voru samþykktir á dögunum á Alþingi og allt fór það fram samkvæmt dagskrá – eftir vandlega undirbúinni dagskrá þar sem atkvæðagreiðsla þingmanna er táknrænt leikrit í lokin. Nítján sam­ þykkir, sjö greiða atkvæði gegn en hinir sitja hjá; ekki á okkar vegum, kemur okkur ekki við, myndum ekki gera þetta svona sjálf, þvoum hendur okkar af þessu. Táknrænt leikrit. Þau má nefnilega ekki vanmeta. Það gleymdist nefni­ lega að það er ekkert hægt að sitja hjá. Sé maður á annað borð andvígur slíkum framlögum úr almannasjóð­ um til að styrkja atvinnugrein eða lífsmáta eða listgrein – eða hvað við viljum annars kenna landbúnaðinn við – þá þurfa allir að taka afstöðu. Kurteist fólk Í tíð síðustu ríkisstjórnar – Jóhönnu stjórnarinnar – var þingið á löngum köflum gert óstarfhæft með markvissu málþófi sem ekki var síst stjórnað af núverandi ráð­ herra landbúnaðarmála, Gunn­ ari Braga Sveinssyni. Ríkisstjórn Jóhönnu var gert ókleift að ná nokkrum málum í gegnum brim­ skafla málæðisins sem öllu drekkti, með þeim afleiðingum fyrir Sam­ fylkinguna að kjósendur kenna henni um allt sem miður hefur farið á Íslandi frá landnámi. Á þessum árum þótti Fram­ sóknarmönnum og Sjálfstæðisfólki ekki tiltökumál að beita málþófi á fjárlög – sem var einsdæmi – aukinheldur að þeir hleyptu í gegn smærri málum. Núverandi stjórnar­ andstaða er öllu ábyrgari, gerir samninga við stjórnarmeirihlutann um að hleypa í gegn tilteknum málum gegn því að fá eitthvað á móti. Í tilviki búvörusamninga voru það ákvæði um hugsanlega endur­ skoðun eftir þrjú ár á samningun­ um sem annars gilda til tíu ára – en þó aðeins ef bændum þykir ástæða til. Fulltrúar stjórnarandstöðu telja sig hafa skýr loforð um að við þessi endurskoðunarákvæði verði staðið. En eitt er að vera háttvís og fara að reglum lýðræðisins – það er mjög mikilsvert og lofsvert að gera það – en annað er að láta meirihlutann fara sínu fram með öllu fyrirhafnar­ laust, eins og manni virðist að gert hafi verið í þessu tilviki. Hugsanleg endurskoðun eftir þrjú ár: öllu rýrari getur uppskeran ekki verið. Manni virðist að þetta sé eigin­ lega angi af öðru og stærra og meira böli stjórnarandstöðu – að skynja ekki slátt tímans; heyra ekki kröfur fólks um nýja siði, breytt samfélag, sem taki mið af almannahags­ munum fremur en að þjóna sér­ hagsmunum. Kurteist fólk. Nema nú var það sem sagt kurteisi flokkurinn sem vildi ekki vera með – Björt fram­ tíð, sem legið er á hálsi fyrir að vera of málefnaleg, sagði nei og tók ekki þátt í þessari kurteislegu athöfn heldur greiddi atkvæði gegn þessum samningum, sem skuld­ binda ríkissjóð til milljarða útgjalda um ókomin ár. Samningar Í nútímasamfélagi þarf að semja um allt. Stéttirnar og hagsmuna­ hóparnir þurfa að hafa sína öflugu fulltrúa og talsmenn á þingi og það er hlutverk þeirra að gæta hags­ muna þeirra sem senda þá á þing, og semja við þá sem eiga annarra hagsmuna að gæta. Í samningum er ekki hægt að sitja hjá. Maður verður að koma fram með sínar áherslur og kröfur og þær þurfa að vera skýrari og eindregnari en svo að fá það tryggt að ef til vill verði þetta endur­ skoðað eftir þrjú ár, ef viðsemjand­ anum líst svo á. Meirihluti landsmanna starfar ekki í landbúnaði. Raunar ansi mikill meirihluti – satt að segja er landbúnaður rúmlega 1% af vergri þjóðarframleiðslu. Má raunar segja að öll þjóðin eins og hún leggur sig sé „neytendur“ sem þó eru aldrei kvaddir til nokkru sinni. Samt er áreiðanlega leitun að þeirri mann­ eskju hér á landi sem ekki viður­ kennir ómælda þýðingu landbún­ aðar fyrir land og þjóð. Flest viljum við að matvælaframleiðsla víða um land eflist og styrkist, dafni og verði sem fjölbreyttust og ánægjulegust. Landsmenn gera sér líka almennt grein fyrir því að erfitt er að reka hér landbúnað og bændur þurfa styrki og fyrirgreiðslu rétt eins og tíðkast um alla Evrópu. Almennt gerir fólk greinarmun á bændum og framleiðslu þeirra annars vegar og svo stórum milliliðum og má þar einu gilda hvort um er að ræða auð­ hring á borð við Mjólkursamsöluna eða verslunarrisa eins og Haga. En þegar gerðir eru samningar við fulltrúa ríkisins – sem eru þá jafnframt fulltrúar allra lands­ manna – líka þeirra sem ekki starfa við landbúnað – þá er það með öllu óviðunandi að þar komi hvergi að borðinu fulltrúi neytenda; sem eru eiginlega allir landsmenn. Full­ trúar ríkisins í þessum samningum koma úr ráðuneyti landbúnaðar og alkunna er að milli þess ráðuneytis og bændaforystunnar hafa löngum legið slíkir gagnvegir að tómt mál er að tala um fulltrúa þess ráðu­ neytis sem fulltrúa almennings í nokkrum skilningi. Þó ekki væri nema fyrir þessa sök hljóta fulltrúar almennings á Alþingi, sem ekki styðja sjálfvirk framlög til landbún­ aðarkerfisins, að minnsta kosti að ræskja sig aðeins. Þjóðarþráttin Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í dag Meirihluti landsmanna starfar ekki í landbúnaði. Raunar ansi mikill meiri- hluti – satt að segja er land- búnaður rúmlega 1% af vergri þjóðarframleiðslu. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 1 9 . s e p T e M B e R 2 0 1 6 1 9 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 9 F -0 C 0 C 1 A 9 F -0 A D 0 1 A 9 F -0 9 9 4 1 A 9 F -0 8 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 1 8 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.