Fréttablaðið - 19.09.2016, Side 12
Nýjast
Hull City 1 – 4 Arsenal
Leicester 3 – 0 Burnley
Man City 4 – 0 Bournemouth
West Brom 4 – 2 West Ham
Everton 3 – 1 Boro
Watford 3 – 1 Man Utd
C. Palace 4 – 1 Stoke City
Southampton 1 – 0 Swansea
Tottenham 1 – 0 Sunderland
Efst
Man. City 15
Everton 13
Tottenham 11
Arsenal 10
Chelsea 10
Neðst
Burnley 4
Bournemouth 4
West Ham 3
Sunderland 1
Stoke City 1
Enska úrvalsdeildin
Pepsi-deild karla
FH - Valur 1-1
0-1 Kristinn Freyr Sigurðsson, víti (19.), 1-1
Kristján Flóki Finnbogason (83.).
FH-ingum mistókst að tryggja sér
Íslandsmeistaratitilinn. Þeir eru þó
áfram í lykilstöðu.
Víkingur R. - Fylkir 2-2
1-0 Vladimir Tufegdzic (8.), 1-1 Garðar Jó-
hannsson (22.), 1-2 Oddur Ingi Guðmunds-
son (72.), 2-2 Josip Fucek (83.).
KR - Fjölnir 3-2
0-1 Gunnar Már Guðmundsson (8.), 1-1
Kennie Chopart (30.), 2-1 Óskar Örn Hauks-
son (49.), 2-2 Ingimundur Níels Óskarsson
(51.), 3-2 Morten Beck Andersen (70.).
Rautt spjald: Tobias Salquist, Fjölni (88.).
KA 2 – 1 Grindavík
Leiknir F. 1 – 0 Leiknir R.
Fram 2 – 1 Fjarðabyggð
Keflavík 2 – 2 Þór
Huginn 0 – 4 HK
Haukar 1 – 1 Selfoss
Efri
KA 48
Grindavík 41
Keflavík 34
Þór 33
Fram 29
Haukar 28
Neðri
Leiknir R. 28
Selfoss 25
HK 22
Huginn 21
Leiknir F. 18
Fjarðabyggð 17
Inkassodeildin
Olís-deild karla
ÍBV - Akureyri 25-24
Theodór Sigurbjörnsson 7/1, Sigurbergur
Sveinsson 6, Daníel Örn Griffin 4 - Andri
Snær Stefánsson 9/7, Karolis Stropus 8.
Olís-deild kvenna
Fram - Stjarnan 21-21
Ragnheiður Júlíusdóttir 7, Sigurbjörg Jó-
hannsdóttir 5 - Helena Rut Örvarsdóttir 4.
Valur - ÍBV 26-22
Diana Satkauskaite 8, Morgan Marie Þor-
kelsdóttir 5 - Sandra Erlingsdóttir 11.
Grótta - Selfoss 24-23
Laufey Ásta Guðmundsdóttir 8, Lovísa
Thompson 7 - Hrafnhildur Hanna Þrastar-
dóttir 7, Perla Ruth Albertsdóttir 6.
Fylkir - Haukar 15-21
Þuríður Guðjónsdóttir 7 - Sigrún Jóhanns-
dóttir 4, Maria Ines De Silve Pereira 4.
Í dag
Pepsi-deild karla:
16.45 Breiðablik - ÍBV Kópavogsv.
19.05 Þróttur - Víkingur Ó. Sport 2
19.30 Stjarnan - ÍA Sport
22.00 Pepsimörkin Sport
21.00 Messan Sport 2
Olís-deild karla:
19.30 Selfoss - Haukar Selfoss
19.30 Grótta - FH Hertz-höllin
19.30 Afturelding - Fram N1-höllin
19.30 Stjarnan - Valur TM-höllin
KörfubOlti „Þetta er frábær tilfinn-
ing. Hún var góð síðast en að gera
þetta tvisvar í röð er mjög sérstakt,“
sagði reynsluboltinn Jón Arnór Stef-
ánsson eftir að Ísland tryggði sér far-
seðilinn á annað Evrópumótið í röð.
Íslensku strákarnir unnu frá-
bæran sigur, 74-68, á sterku liði
Belga frammi fyrir troðfullri Laugar-
dalshöll á laugardaginn. Reiknings-
meistarar Körfuknattleikssam-
bandsins voru reyndar búnir að
finna út að Ísland mætti tapa með
16 stiga mun og kæmist samt áfram.
En það vissu strákarnir ekki. Þeir
vildu og ætluðu að vinna leikinn.
„Við fórum í þennan leik til að
vinna hann. Við fengum ekki að
vita nein úrslit fyrir leikinn. Þeir eru
með hörkulið og það sýnir mikinn
andlegan styrk að vinna þá,“ sagði
Jón Arnór sem var á annarri löpp-
inni í undankeppninni.
„Það er gaman að sjá hvernig
ungu strákarnir í liðinu hafa stigið
upp og dregið vagninn. Það er mjög
gott því ég hef verið í lélegu standi,“
sagði Jón Arnór
Erfitt í upphafi
Hann, líkt og fleiri leikmenn í
íslenska liðinu, átti erfitt uppdráttar
í sókninni framan af leik. Eftir fyrsta
leikhluta var skotnýting Íslands
einungis 18,2 prósent og aðeins þrír
leikmenn komnir á blað.
Jón Arnór klikkaði á fyrstu átta
skotunum sínum og íslenska liðið
lenti mest 14 stigum undir, 15-29,
snemma í öðrum leikhluta. Íslensku
strákarnir hittu skelfilega en voru
duglegir að koma sér á vítalínuna.
Alls komu 13 af 34 stigum Íslands í
fyrri hálfleik úr vítum.
Þrátt fyrir erfiða stöðu brotnaði
íslenska liðið ekki, hélt áfram að
berjast í vörninni og fór að minnka
muninn. Kristófer Acox jafnaði
metin í 34-34 af vítalínunni en
Belgar áttu lokaorðið í fyrri hálfleik
þegar þeir settu niður flautuþrist.
Hann var þó aðeins kinnhestur en
ekki rothögg. Í seinni hálfleik spil-
aði íslenska liðið svo frábærlega og
landaði sex stiga sigri, 74-68, á liði
sem fór í 16-liða úrslit á síðasta EM.
Greip tækifærið með báðum
„Fyrri hálfleikurinn á móti Sviss og
seinni hálfleikurinn gegn Belgíu eru
tveir bestu hálfleikir sem ég hef séð
landsliðið spila,“ sagði ein af hetjum
íslenska liðsins, Martin Hermanns-
son. Martin, sem fagnaði 22 ára
afmæli sínu á föstudaginn, byrjaði
alla sex leikina í undankeppninni
og tók stærra hlutverki og aukinni
ábyrgð fagnandi.
Strákurinn er algjörlega óttalaus
og gríðarlega þroskaður miðað við
aldur. Yfirvegunin er mikil og það er
sjaldan sem Martin tekur illa ígrund-
uð skot eða slæmar ákvarðanir.
Martin var stigahæstur í íslenska
liðinu á laugardaginn með 18 stig
auk þess sem hann tók þrjú fráköst,
gaf fimm stoðsendingar og stal bolt-
anum tvisvar sinnum. Þá var skot-
nýtingin frábær, eða 77,8 prósent.
Martin var ekki eini ungi KR-
ingurinn sem lét að sér kveða í
undankeppninni því áðurnefndur
Kristófer Acox kom eins og storm-
sveipur inn í íslenska liðið. Kristó-
fer var með 6,0 stig og 4,7 fráköst að
meðaltali í undankeppninni, þrátt
fyrir að hafa aðeins spilað 15 mín-
útur að meðaltali í leik.
„Hann hefur komið frábærlega
inn í þetta,“ sagði Hlynur Bærings-
son, fyrirliði landsliðsins, um nýja
félaga sinn undir körfunni. „Hann
er mjög sérstök týpa í íslenskum
körfubolta, mikill íþróttamaður og
það er gaman að spila með honum.
Þetta er góður drengur og framtíðin
er hans.“
Kristófer skilaði ekki einungis
flottum tölum heldur sendu
troðslur hans í heimaleikjunum
gegn Kýpur og Belgíu sterk skilaboð
og kveiktu í áhorfendum.
„Ég fékk smá nasaþef af þessu á
Smáþjóðaleikunum í fyrra en það er
geðveikt að spila svona alvöru leiki í
fullri höll,“ sagði Kristófer eftir leik.
Hann fékk ekki leyfi frá Furman-
háskólanum til að fara með á EM í
fyrra en hann ætlar að vera með að
ári.
„Það er ekkert annað í stöðunni,
þetta er geðveikt. Ég er bara orð-
laus,“ bætti Kristófer við.
Björt framtíð
Eins og Hlynur sagði er framtíðin
Kristófers og framtíðin í íslenska
landsliðinu virðist björt.
Elvar Már Friðriksson spilaði
minna en Martin og Kristófer í
undankeppninni en skilaði góðu
verki á báðum endum vallarins.
Miðherjinn hávaxni Tryggvi Snær
Hlinason er í mikilli framför og
handan við hornið bíða fleiri
strákar úr U-20 ára liðinu sem vann
sér sæti í A-deild Evrópumótsins í
sumar.
Þá eru lykilmenn eins og Haukur
Helgi Pálsson og Hörður Axel Vil-
hjálmsson á góðum aldri. Og þeir
sem eldri eru hafa lítið gefið eftir.
Það eru því spennandi tímar fram
undan í íslenskum körfubolta.
Framtíðin
er þeirra
Íslenska körfuboltalandsliðið verður á meðal þátt
tökuliða í öðru Evrópumótinu í röð. Ísland vann frá
bæran sigur á sterku liði Belgíu á laugardaginn þar
sem ungstirni liðsins skinu skært.
Haukur Helgi Pálsson og Kristófer Acox fallast í faðma eftir að lokaflautið gall í Laugardalshöllinni á laugardaginn. Íslenska liðið vann þá afar sterkan sigur, 74-68, á
öflugu liði Belga. Ísland vann fjóra af sex leikjum sínum í undankeppni EM 2017 og tryggði sér sæti í lokakeppninni, annað skiptið í röð. MyNd/BáRA dRöFN KRIStINSdÓttIR
EM 2017 í körfubolta
l EM 2017 hefst 31. ágúst og lýkur
17. september.
l EM 2017 verður með
sama sniði og EM 2015.
Leikið verður í fjórum
sex liða riðlum. Fjögur
efstu liðin í hverjum
riðli fara áfram í
16-liða úrslit.
l Riðlakeppnin fer fram í
fjórum borgum; Istanbúl
í Tyrklandi, Helsinki í Finn-
landi, Tel Avív í Ísrael og Cluj
í Rúmeníu. Útsláttarkeppnin
verður leikin í Sinan Erdem
Dome í Istanbúl.
l Eftirtalin lið komust á EM
2017: Tyrkland, Rúmenía,
Finnland, Ísrael, Spánn, Lit-
háen, Frakkland, Serbía,
Grikkland, Ítalía, Tékk-
land, Lettland, Króatía,
Rússland, Ungverjaland,
Belgía, Slóvenía, Svart-
fjallaland, Þýskaland,
Pólland, Ísland, Bretland,
Úkraína og Georgía.
l Dregið verður í riðla í Tyrklandi
22. nóvember næstkomandi.
Ingvi Þór
Sæmundsson
ingvithor@frettabladid.is
1 9 . s e P t e m b e r 2 0 1 6 m Á N u D A G u r12 s P O r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð
sport
1
9
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
9
F
-0
7
1
C
1
A
9
F
-0
5
E
0
1
A
9
F
-0
4
A
4
1
A
9
F
-0
3
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K