Fréttablaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 18
Blaðamaður leit inn í Góða hirð-
inn á dögunum. Úrvalið af alls
kyns húsgögnum, ljósum, lömp-
um, bókum, eldhúshlutum, leik-
föngum, barnakerrum og -vögn-
um blasti við. Margir viðskiptavin-
ir voru greinilega ekki að koma í
fyrsta skipti, sumir með fulla inn-
kaupakerru. Greinilegt að fólk
fylgist vel með því hvað kemur inn
í verslunina en daglega eru teknar
inn nýjar vörur.
Friðrik Ragnarsson, starfs-
maður í Góða hirðinum, segir að
alls kyns lampar og ljós komi til
þeirra á hverjum degi í alls konar
ásigkomulagi. „Sumt er nýlegt og
öðru hvoru fáum við fín hönnun-
arljós. Við fáum mikið af stand-
lömpum og sumir eru mjög gaml-
ir. Stundum er fólk að leita eftir
svona gömlum lömpum til að nota
sem skreytingu, til dæmis í sum-
arbústað. Oft lætur fólk setja nýjar
rafmagnssnúrur og þá er lampinn í
fullkomnu lagi,“ segir hann. „Fólk
kaupir gjarnan lampa til að gera
upp. Yfirleitt selst allt jafnóðum.
Svo koma sumir og kaupa vörur til
að endurselja,“ segir hann. „Hægt
er að fá lampa frá 200 krónum upp
í sjö þúsund svo það má gera mjög
góð kaup.“
Friðrik er búinn að vinna
lengi í Góða hirðinum og segist
hafa fundið fyrir breytingu eftir
að hrunið. „Þá fórum við að sjá
mikið af nýjum andlitum. Fólk
sem við höfðum ekki séð áður. Svo
er mikill áhugi á hansahillum og
tekkhúsgögnum hjá ungu fólki.“
Friðrik segir að gaman sé að sjá
þegar viðskiptavinir rekast á hluti
sem þeir þekkja frá gamla daga, til
dæmis á heimili ömmu og afa. Af
nógu er að taka því mikið úrval er
í Góða hirðinum af alls kyns stofu-
skrauti, styttur í hinum ýmsu út-
færslum. Síðan er hægt að gera góð
kaup í bolla- og matarstellum.
Góði hirðirinn hefur verið
starfræktur í þessari mynd frá
árinu 1999. Starfsemin hófst
hins vegar árið 1993 þegar Sorpa
hóf samstarf við nokkur líknar-
félög um endurnýtingu húsgagna.
Sorpa tók alfarið við þessari end-
urnýtingu árið 1997. Markmið
Góða hirðisins hefur alltaf verið
að endurnýta nytjahluti til áfram-
haldandi lífs og rennur ágóðinn til
góðgerðarmála.
Gamalt,
gott og ódýrt
Það leynast oft gamlir dýrgripir inni á milli hjá
Góða hirðinum í Fellsmúla. Falleg loftljós, stand- og
borðlampar eru þar á meðal. Margir gefa hluti sem
þeir eru hættir að nota til Góða hirðisins og þar getur
fólk keypt þá fyrir afar sanngjarnt verð.
„Það er mikilvægt að útilýsing sé
þannig úr garði gerð að hún skili
ekki bara nægjanlegri ratlýsingu
heldur trufli ekki nágranna eða
önnur svæði en lýsingin á að ein-
blína á. Myrkrið sem við búum við
nánast allt árið er einmitt mikil-
vægt að nýta og við viljum að úti-
lýsing skapi fallegt samspil skugga
og birtu. Við viljum alls ekki yfir-
lýsa allt og tapa þannig stemning-
unni,“ segir Skarphéðinn Smith,
framkvæmdastjóri S. Guðjóns-
sonar.
S. Guðjónsson er rótgróið fyrir-
tæki sem hefur starfað frá 1958
og hefur í gegnum tíðina komið
að mörgum af stærstu verkefnum
landsins að sögn Skarphéðins. Má
þar nefna Orkuveitu Reykjavíkur,
Ráðhús Reykjavíkur, Hæstarétt
Íslands og Hörpuna svo fátt eitt
sé nefnt. „Nánast öll útilýsing við
Hörpu er einmitt frá S.Guðjóns-
syni,“ upplýsir Skarphéðinn.
Fagleg ráðgjöf
„Það er mikilvægt að fá ráðgjöf
um hvað hentar,“ segir Skarphéð-
inn og bendir á að hjá S. Guðjóns-
syni starfi reynslumiklir ráðgjafar
og lýsingahönnuðir sem geti hjálp-
að fólki við að hanna sem besta lýs-
ingu, hvort sem er innandyra eða
utan.
En hvað er vinsælast í útilýs-
ingu þessa dagana? „Það er ýmiss
konar óbein LED-lýsing sem er
höfð til dæmis undir bekkjum eða
niðurgrafin sem lýsir upp gróður
og steinhleðslur,“ svarar Skarp-
héðinn. Hann segir mikilvægt að
passa að lamparnir sem eru not-
aðir falli vel að umhverfinu og þoli
íslenska veðráttu. „Ljósapollar eða
-staurar standa alltaf fyrir sínu
sérstaklega við innkeyrslur og við
gangstíga.“
Skemmtilegar nýjungar
„Það nýjasta í staurum eru glæsi-
legir lampar frá belgíska hönnun-
arfyrirtækinu Modular en lamp-
inn George hefur slegið hressilega í
gegn. Í veggljósum er enn mjög vin-
sælt að nota ferkantaða kubba sem
lýsa upp og niður, en slíkir lamp-
ar uppfylla einmitt þessa kröfu
sem við setjum að lýsing sé óbein,
upp eða niður eða hvort tveggja og
lýsi ekki mikið fram. Slíkir lamp-
ar mynda alltaf meiri glýju og geta
truflað nágrennið. Síðustu miss-
erin hefur það einnig færst í vöxt
að vera með lítil LED-ljós innfelld,
hvort sem er í pallaefni eða stein-
hleðslur. Lömpunum er þá komið
fyrir í um 30cm hæð og lýsa þeir
með óbeinni birtu niður á við og
verður þá til nokkurs konar næt-
urlýsing,“ lýsir Skarphéðinn. Hann
bendir þó á að þrátt fyrir að óbein
lýsing sé falleg og skemmtileg þá
sé mikilvægt að staðir eins og við
grill, innganga eða heita potta séu
með nægjanlega góðri birtu svo
hægt sé að sjá vel til.
Verið velkomin
S.Guðjónsson er staðsett að
Smiðjuvegi 3 og er fólki velkomið
að líta við með teikningar, fá sér
rjúkandi kaffibolla og fá ráðgjöf
um hvað hentar best til þess að lýs-
ingin sé fagleg og falleg.
Samspil skugga og birtu
Mikilvægt er að Íslendingar hugi vel að útilýsingu enda búa þeir við langa vetur og takmarkaðrar birtu nýtur við stóran hluta ársins.
S. Guðjónsson við Smiðjuveg 3 býður upp á mikið úrval útiljósa og faglega ráðgjöf við val á þeim.
Sumt er nýlegt og
öðru hvoru fáum við fín
hönnunarljós. Við fáum
mikið af standlömpum
og sumir eru mjög gaml-
ir. Stundum er fólk að
leita eftir svona gömlum
lömpum til að nota sem
skreytingu, til dæmis í
sumarbústað.
Friðrik Ragnarsson hjá Góða hirðinum
Síðustu misserin
hefur það einnig færst í
vöxt að vera með lítil
LED-ljós innfelld, hvort
sem er í pallaefni eða
steinhleðslur. Lömp-
unum er þá komið fyrir í
um 30cm hæð og lýsa
þeir með óbeinni birtu
niður á við og verður þá
til nokkurs konar nætur-
lýsing.
Skarphéðinn Smith, framkvæmdastjóri
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Skarphéðinn Smith hjá S. Guðjónsson, en þar starfa reynslumiklir ráðgjafar og lýsingahönnuðir sem hjálpa til við val á lýsingu.
Mikið úrval er af alls kyns loftljósum, borð- og standlömpum í Góða hirðinum.
MYND/GVA
Sumir þarfnast viðgerðar en aðrir eru í góðu lagi. MYND/GVA
LjóS oG LAMpAr Kynningarblað
19. september 20164
1
9
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
9
E
-E
E
6
C
1
A
9
E
-E
D
3
0
1
A
9
E
-E
B
F
4
1
A
9
E
-E
A
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K