Fréttablaðið - 19.09.2016, Page 22

Fréttablaðið - 19.09.2016, Page 22
Ljós sem eru hönnuð í anda sjötta og sjöunda áratugarins prýða nú nýtt kaffihús, Kaffi Laugalæk, og koma þar vel út. Með Demo-loft- ljósinu eru þau Dagný Elsa Ein- arsdóttir og Magnús Ólafsson hús- gagnasmíðameistari að endur- vekja íslenskt handverk sem var nokkuð algengt á þessum tíma. Dagný Elsa segir að það hafi því miður ekki varðveist mörg eintök af þessum fallegu ljósum. „Þetta er gömul hugmynd sem við erum að endurvekja. Þessi ljós voru víða og fólk var að gera þau í hinum ýmsu myndum, stundum var grind- in utan á og spónninn fyrir innan og stundum öfugt. Svo voru þau í mismunandi formum. Ég rakst ein- mitt á mynd á netinu af ljósi í þess- um stíl frá því um 1960 en það var komið alla leið til Bandaríkjanna en hafði verið keypt í Danmörku. Þessi andi sveif því yfir vötnunum á Norðurlöndunum.“ Endurnýting hugmyndin Dagný Elsa segir að enginn einn hönnuður hafi verið að ljósunum. „Ég kannaði það mikið til að vera viss um að vera ekki að stela hönn- un einhvers. Enda gefum við okkur svo sem ekki út fyrir að vera hönn- uðir ljóssins, við erum meira að endurvekja gamla hönnun og færa í stílinn. Við styrktum ljósið líka, settum í það brasshringi, einföld- uðum það en gerðum það sterkara.“ Hugmyndin að ljósunum kom þannig til að þegar Dagný Elsa var í námi í húsgagnasmíði tók hún áfanga í hönnun samhliða. Eitt verkefni í þeim áfanga snerist um endurnýtingu. „Á verskstæðinu þar sem ég var í húsgagnasmíð- inni var mikið af spóni sem fór til spillis og ég fór að hugsa hvernig hægt væri að nýta hann. Ég fór svo í smávegis rannsóknarvinnu og þá kom þetta ljós upp víða og þannig kviknaði hugmyndin.“ Heillandi tími Sama hugsun, að endurvekja gam- alt handverk og endurnýta, er á bak við hönnun jólatrjáa sem þau Dagný Elsa og Magnús hafa gert. „Við fórum á Árbæjarsafn og feng- um að skoða gömlu trén sem þar eru. Aðlöguðum þau svo aðeins að nútímanum með því til dæmis að setja tinda á greinarnar til að auð- velda skreytingu og hafa þau sund- urtakanleg svo hægt sé að geyma þau auðveldlega í poka milli ára.“ Dagný Elsa er heilluð af hönn- un sjötta og sjöunda áratugarins og sækir enn innblástur í hana. „Ég er svakaleg sixtís mann- eskja, finnst það algjört gullald- artímabil. Nú er ég að endurvekja skermagerðina síðan þá, og lamp- ana og er að fara út í bæði borð- lampa og standlampa líka, þessa með gæsahálsinn,“ segir hún. Mikil vinna á bak við ljósin Dagný segist hógvær ekki geta sagt að Demo-ljósin renni út hjá þeim Magnúsi enda sé svona handverk frekar dýrt. „Það er óttalegt staut að gera þetta. Það eru þrettán hringir á hverju ljósi og þarf að máta hvern þeirra á grindina og líma hann saman. Hver og einn þessara þrettán hringja er svo límdur á sex stöð- um á grindina. Allt er bæsað í höndunum, hver og ein ræma fyrir sig. Við erum búin að reikna út hve margar vinnustundir fara í ljósagerðina og ef við gerðum eitt ljós í einu tæki það hátt í tvo daga að gera það. En ljósin eru búin að geta sér gott orð, það eru marg- ir sem kannast við þau,“ segir Dagný Elsa og brosir. Gömul hönnun endurvakin Dagný Elsa Einarsdóttir er heilluð af hönnun sjötta og sjöunda áratugarins. Demo-ljósin sem þau Magnús Ólafsson gera eru í stíl þess tíma.   Mikil vinna er á bak við Demo-ljósin. MYNDIR/KARL PETERSSON Demo-ljósin eru í stíl sjötta og sjöunda áratugarins. Jólatré sem þau Dagný Elsa og Magnús gera eru líka byggð á gömlu handverki. Demo-ljósið er fáanlegt í tveimur stærðum og ýmsum litum og einnig ólitað. Lilja Björk Hauksdóttir liljabjork@365.is ORKA NÁTTÚRUNNAR · Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is NOTAR ÞÚ MEIRA EN AÐRIR? Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn til allra landsmanna á samkeppnishæfu verði. Við viljum nýta auðlindir af ábyrgð og nærgætni og bæta lífsgæðin í nútíð og framtíð. • Reiknaðu út orkunotkun heimilistækjanna • Berðu orkunotkun þína saman við önnur heimili • Fáðu góð ráð varðandi orkunotkun • Kíktu á reiknivél ON: www.on.is/reiknivel LJóS OG LAMPARKynningarblað 19. september 20168 1 9 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 9 F -1 5 E C 1 A 9 F -1 4 B 0 1 A 9 F -1 3 7 4 1 A 9 F -1 2 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 1 8 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.