Fréttablaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 48
Þegar gengið er inn í BYKO í Breidd tekur við viðskiptavinum hefðbundin byggingavöruverslun. En þegar gengið er fram hjá máln- ingarvörum, vinnufötum, borvél- um og sturtuklefum er komið inn í ævintýralega deild sem er sann- kölluð hátíð fyrir augað. Þar blasa við fallegar glitrandi ljósakrónur, nýmóðins kúplar, gamaldags loft- ljós og allt þar á milli. Páll Hafsteinn Ársælsson tekur brosandi á móti viðskiptavinum fullur fróðleiks um allt sem snýr að lýsingu. „Okkar megináhersla er á heimilin og tekur hið mikla úrval hjá okkur mið af því,“ segir hann og leiðir blaðamann um ljósa- hafið. „En vissulega þjónustum við líka verktaka og þá sem eru að setja upp ljós í heilu húsin eða blokkirnar.“ Gæðin eru mikilvæg Páll segir fólk hugsa öðruvísi um ljósakrónur í dag en það gerði áður. „Í gamla daga var fjárfest- ing að kaupa ljósakrónu en í dag getur þú sett ljós í heila íbúð fyrir brot af því sem það kostaði fyrir þrjátíu eða fjörutíu árum.“ Hann áréttir þó að lægra verð hafi ekki komið niður á gæðunum. „Við leggjum mikla áherslu á gæði hér í BYKO en það er bara þann- ig að eftir því sem þróunin verð- ur meiri, því meiri verða gæðin en verðið lækkar,“ segir hann. Þá segir Páll að BYKO bjóði sannar- lega upp á samkeppnishæft verð á ljósum. Fjölbreytt merki BYKO býður upp á fjölbreytt ljós frá ýmsum merkjum. Páll nefnir til að mynda norska merkið Scan- light. „Það er birgir sem við höfum skipt við í hátt í áratug. Þar eru menn á tánum og fylgjast vel með nýjungum og tískustraumum enda eru þeir töluvert áberandi í ljós- um,“ segir Páll og segir Scanlight vinsælt meðal Íslendinga. „Enda er smekkur okkar ekki ósvip- aður smekk Norðmanna,“ segir hann glettinn. Af öðrum merkj- um sem BYKO er með nefnir Páll írska merkið Robus, þýska merkið Brilliant auk fjölda annarra. Miklir tískustraumar En hvað er í tísku núna? „Stíll- inn er mjög fjölbreyttur, allt frá minimalískum upp í íburðarmik- inn,“ svarar Páll. „Þessi fjaður- ljós eru til dæmis mjög vinsæl,“ segir hann og bendir á hvíta ljósa- krónu úr fjöðrum. „Þá þykja þess- ar Edisonperur líka mjög flottar,“ segir hann og á við mjög falleg ljós sem eru í raun bara perur úr reyk- litu gleri. Páll segir koparinn hafa verið mjög eftirsóttan síðustu tvö ár. „En það er ekki mikið af kopar og messing á markaðnum.“ Páll segir þó mest áberandi þá tísku sem ríkir hjá unga fólkinu. „Unga fólkið er svona „back to the sixties“. Það er með hansahillur og tekkstóla og vill gjarnan fá ljós í sama stíl. Við erum með nokk- ur ljós, til dæmis reyklitaðar gler- ljósakrónur og fleiri, sem henta mjög vel þessum sérstaka stíl.“ Páll segir töluverða vinnu liggja í því að fylgja tískustraumum. „Innkaupafólkið okkar fer á sýn- ingar, heimsækir birgja og fylg- ist vel með straumum og stefnum í gegnum netið.“ Hann er inntur eftir því hvort innfelldu ljósin sem voru afar vin- sæl á tímabili séu það enn. „Já, þau eru vinsæl en það eitthvað að minnka. Nú er að aukast að fólk blandi þessu tvennu saman, er með milda lýsingu út með veggjum en kaupi sér falleg ljós yfir borðstofu- og stofuborð. Enda eru ljósakrón- ur í dag mublur sem gaman er að skreyta rými með.“ Lýsa upp haustið Páll segir fólk iðulega taka við sér strax eftir verslunarmanna- helgi og huga þá að því að lýsa upp myrkrið sem fer að færast yfir. „Fólk er þá bæði að huga að útilýsingu og inniljósum,“ segir hann. Útiljós eru orðin afar vin- sæl að hans sögn, sér í lagi vilji fólk lýsa upp garðana sína á fal- legan máta. Perur eru frumskógur Mikil þróun hefur verið á peru- markaðnum undanfarin ár enda gamla glóperan dottin út og LED- ljós og díóður teknar við. „Peru- markaðurinn er hálfgerður frum- skógur og oft kem ég að fólki sem stendur fyrir framan perurekk- ann, ráðvillt á svip, með gömlu peruna í hendi og veit ekkert hvað það á að velja,“ segir Páll og hlær. En þá er gott að hafa ráða- góða menn í vinnu sem vita hvað snýr fram og aftur. „Við aðstoðum fólk við að finna réttu gerðina af perum.“ Páll segir BYKO leggja frum- áherslu á góða þjónustu. „Við vilj- um að fólk komi hingað og fái að tala við fagmann sem þekkir til og getur leyst úr málunum. Virk vefverslun Þeir sem búa úti á landi þurfa ekki að leggja upp í langferð til að kaupa ljós hjá BYKO því það er rekin öflug vefverslun á www. byko.is. „Það er orðið algengt að fólk utan af landi kaupi ljós í gegn- um netið, og svo sendum við hvert á land sem er.“ Ljós eru tískuvara Ljósadeild BYKO er með þeim glæsilegri á landinu. Úrvalið er mikið en þar má fá allt frá einföldum skermum og kúplum upp í glæsilegar kristalsljósakrónur. Mikil áhersla er lögð á gæði, góða þjónustu og samkeppnishæft verð. Unga fólkið er svona „back to the sixties“. Það er með hansahillur og tekkstóla og vill gjarnan fá ljós í sama stíl. Við erum með nokk- ur ljós, til dæmis reyklit- aðar glerljósakrónur og fleiri, sem henta mjög vel þessum sérstaka stíl. Páll Ársælsson Páll Ársælsson leiðbeinir viðskipta- vinum um val á ljósum og perum. Kopar og messing er vinsælt líkt og Edisonperurnar sem sjást til hægri á myndinni.Í BYKO má einnig fá fjölda lampa og veggljósa. Kristallinn stendur alltaf fyrir sínu. Úrvalið í ljósadeild BYKO er mikið. MYND/GVA Ljós OG LAMPAr Kynningarblað 19. september 201614 1 9 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 9 E -E 9 7 C 1 A 9 E -E 8 4 0 1 A 9 E -E 7 0 4 1 A 9 E -E 5 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 1 8 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.