Fréttablaðið - 19.09.2016, Qupperneq 54
Ástkær sonur okkar og bróðir,
Ágúst Helgi Ágústsson
andaðist á vökudeild Barnaspítala
Hringsins sunnudaginn 11. september.
Hann verður jarðsunginn frá
Selfosskirkju þriðjudaginn
20. september kl. 12.30.
Sérstakar þakkir til starfsfólks barna- og vökudeildar á
Barnaspítala Hringsins fyrir góða umönnun og virðingu.
Telma Halldórsdóttir Ágúst Hjálmarsson
Júlía Mjöll Högnadóttir
Þórhildur María Högnadóttir
og aðrir ástvinir.
Elskulegur bróðir okkar,
mágur og frændi,
Halldór Guðbrands
Bárðarson
Hlévangi, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
þriðjudaginn 13. september.
Útför hans fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju,
föstudaginn 23. september kl. 13.00.
Guðlaug Bárðardóttir Ólafur Þ. Guðmundsson
Oliver Bárðarson
Halldóra Jóna Guðmundsdóttir
og systkinabörn.
Hugheilar þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur samúð, hlýhug
og kærleik við andlát og útför
Sigurðar Inga Sveinssonar
húsasmíðameistara,
Tjarnarflöt 6, Garðabæ.
Halldóra Salóme Guðnadóttir
Ragnheiður Katrín, Sveinn Ingi, Þórunn Inga
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Ingunn K. Þormar
lést á heimili sínu, Hrafnistu
Hafnarfirði, 10.september sl. Útför
hennar fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 23. september kl. 13.00. Þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins.
Sigfús Þormar Þóra Steindórsdóttir
Sigríður Þormar
Sigfríð Þormar Jón Pétursson
Kristinn Þormar Jónína Samúelsdóttir
Jón L. Árnason vann það afrek að verða heimsmeistari sveina í skák, þennan dag árið 1977,
aðeins sextán ára gamall. Eini kepp-
andinn sem sigraði Jón var Garrí
Kasparov en hann hafnaði í þriðja
sæti. Heimsmeistaramót unglinga
í skák var haldið í Frakklandi þetta
ár. Jón L. hlaut þar níu vinninga af
ellefu mögulegum. Í öðru sæti var
Bandaríkjamaðurinn Jay White-
head með átta og hálfan vinning og
þriðji varð Garrí Kasparov, eins og
áður sagði. Hann var þá unglinga-
meistari Sovétríkjanna og hlaut átta
vinninga á heimsmeistaramótinu.
Árangur Jóns á mótinu vakti að
vonum eftirtekt og var honum vel
tekið við heimkomuna. Aðstoðar-
maður hans var Margeir Pétursson.
Jón L. var nemandi við Menntaskól-
ann við Hamrahlíð á þessum tíma.
Hann byrjaði að tefla tólf ára gam-
all og rakti upphaf skákáhugans til
heimsmeistaraeinvígis Fischers og
Spasskys hér á landi.
Þ EttA G E r ð i St : 1 9 . S E P t E M B E r 1 9 7 7
16 ára heimsmeistari
Jón L. Árnason skákmaður ásamt Ólafi Ragnarssyni og Óla Tynes.
Heimspekikaffi verður haldið í menningar-húsinu Gerðubergi í Breiðholti á miðviku-dag klukkan 20. Fjallað verður um áhrif frétta-
mennsku á ástand heimsins og munu
Gunnar Hersveinn, rithöfundur og
heimspekingur, og Birta Björnsdóttir,
fréttamaður á fréttastofu rÚV, leiða
spjallið.
Gunnar Hersveinn hefur meðal
annars rannsakað friðarmenningu og
birt niðurstöður sínar í bókinni Hug-
skot – skamm-, fram- og víðsýni. Birta
á hins vegar langan feril að baki sem
blaðamaður, meðal annars á Morgun-
blaðinu, Stöð 2 og rÚV. Hún mun veita
innsýn í aðferðir og ábyrgð fréttamiðla
þegar fjalla á um stríð, en efni og fram-
setning fjölmiðla hefur óumdeilanleg
áhrif á skoðanir fólks og hegðun stjórn-
valda.
„Það er alltaf gaman að tala um
vinnuna og allt sem henni tengist. Þegar
minn gamli samstarfsfélagi Gunn-
ar Hersveinn bauð mér að taka þátt í
þessum áhugaverðu umræðum þurfti ég
ekki að hugsa mig tvisvar um,“ útskýrir
Birta. „Í starfi fréttamanns í erlendum
fréttum er umfjöllunarefni eðli máls-
ins samkvæmt oft ófriður úti í heimi.
Það kemur okkur við. Það er hins vegar
gaman að velta fyrir sér hvernig fréttir
af ófriði eru sagðar, og eflaust engin ein
rétt aðferð til þess. Einblínum við um of
á hörmungar sem fylgja ófriði?“
Hún segir að í fréttaskrifum sé leitast
við að halda staðreyndum til haga og
gefa sem skýrasta mynd af gangi mála
hverju sinni og draga ólík sjónarmið að
borðinu.
„Það er að mínu mati mikilvægt að
einblína ekki bara á framgang stríð-
andi fylkinga hverju sinni og mark-
mið þeirra heldur einnig hvaða áhrif
ófriður hefur á venjulegt fólk. Gæti það
mögulega haft áhrif á baráttu fyrir upp-
rætingu ófriðar að við mátum okkur í
aðstæður fólks sem á um sárt að binda
vegna hans? Ég á nú kannski ekkert
endilega von á því að við finnum upp-
skriftina að heimsfriði þessa tilteknu
kvöldstund en held að allir hafi gott af
því að velta þessum málum fyrir sér,“
segir hún að lokum. sara@frettabladid.is
Gaman að tala um það
sem tengist vinnunni
Birta Björnsdóttir fréttamaður tekur þátt í Heimspekikaffi á miðvikudag. Umræðuefni er
áhrif fréttamennsku á ástand heimsins og mun Birta veita innsýn í fréttamiðla.
1356 Hundrað ára stríðið: Englendingar vinna sigur á Frökkum
í orrustunni við Poitiers og taka Jóhann góða Frakkakonung
höndum.
1667 „Gullskipið“ Het Wapen van Amsterdam strandar á Skeiðar
ársandi með mikinn farm af gulli og dýrum steinum að talið er. Öll
áhöfnin ferst, um 140 manns.
1802 Andvana síamstvíburar, samvaxin stúlkubörn, fæðast í
Rangárvallasýslu.
1874 Blaðið Ísafold hefur göngu sína. Árið 1929 sameinast það
Verði og verður vikuútgáfa Morgunblaðsins til 1968.
1939 Þýski kafbáturinn U30, sem sökkt hafði breska farþega
skipinu Athenia á fyrsta degi seinni heimsstyrjaldarinnar, kemur til
Reykjavíkur með þrjá slasða menn. Þeir höfðu slasast þegar kaf
báturinn gerði árás á breskt flutningaskip vestur af Bretlandi.
1985 Jarðskjálfti sem mælist 8,1 á Richter skekur Mexíkóborg með
þeim afleiðingum að fimm þúsund manns bíða bana.
Merkisatburðir
Birta Björnsdóttir, fréttamaður á RÚV, mun ræða um áhrif fréttamennsku á ástand heimsins
á Heimspekikaffi sem fram fer í Gerðubergi.
1 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m Á N U D A G U r14 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
1
9
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
9
F
-0
C
0
C
1
A
9
F
-0
A
D
0
1
A
9
F
-0
9
9
4
1
A
9
F
-0
8
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K