Fréttablaðið - 08.08.2016, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 8 5 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 8 . á g ú s t 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
skólar og náM-
skeið
Að láta draum-
inn rætast
Gnægð af
skemmtilegum
og fróðlegum
námskeiðum
bíða þín
handan
hornsins.
skoðun Guðmundur Andri
skrifar um íþróttir. 10
sport Þórir Hergeirsson stefnir
að því að vinna gull á ÓL. 12
Fréttir Vinnumálstofnun
kemur á fót mansalsteymi 8
plús 2 sérblöð l Fólk
l skólar og náMskeið
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
1 GB
netnotkun eða
1.000 kr.
á mán. í 12 mán.
fylgir!
2 GB
netnotkun eða
2.000 kr.
á mán. í 12 mán.
fylgir!
Samsung
Galaxy J5 2016
Samsung
Galaxy S7 iPhone SE iPhone 6s
2 GB
netnotkun
eða 2.000 kr.
á mán. í 12 mán.
fylgir!
1 GB
netnotkun
eða 1.000 kr.
á mán. í 12 mán.
fylgir!
stjórnMál „Mér þykir það ekki boð-
legt að við förum af stað í þessa vinnu
án þess að vita hvenær þingið eigi
að klárast,“ segir Birgitta Jónsdóttir,
þingflokksformaður Pírata.
Þingflokksformenn stjórnarand-
stöðunnar ætla að funda áður en
Alþingi kemur saman til að ræða
hvernig megi knýja fram dagsetningu
alþingiskosninga.
„Nú er Sigurður Ingi að tala um
það að koma fram með frumvarp um
hlutfallslegt afnám verðtryggingar og
eitthvað álíka. Ef þú ert að bæta svona
stórum málum ofan á það sem fyrir er
þá erum við að tala um þing minnst
til áramóta og þá þarf að afgreiða fjár-
lög,“ segir Birgitta. „Þetta er allt saman
mjög skrítið og það eru alltaf að koma
einhverjar nýjar vendingar.“
Oddný G. Harðardóttir, formaður
Samfylkingarinnar, segir dónaskap
við þingið og þjóðina að ekki sé búið
Andstaðan hyggst knýja fram kjördag
Oddný G.
Harðardóttir
formaður Sam-
fylkingarinnar
Birgitta Jónsdóttir
þingflokksfor-
maður Pírata
Óttarr Proppé
formaður Bjartrar
framtíðar
að ákveða dagsetningu þingkosninga.
„Ég held að þingstörfin geti ekki
gengið eðlilega fyrr en kjördagur er
kominn. Það er ekki þannig að það
sé bara stjórnarandstaðan sem þolir
ekki þessa óvissu í landinu, fólkið
vill fá að vita þetta. Það eru fleiri með
plön en bara stjórnmálaflokkarnir,“
segir Oddný.
Óttarr Proppé formaður Bjartrar
framtíðar segir flokkinn byrjaðan að
stilla upp listum en að skortur á dag-
setningu alþingiskosninga reynist
uppstillingarstarfinu erfitt.
„Maður finnur fyrir því að það er
ekkert sérlega gaman að biðja fólk um
að gefa kost á sér í kosningum sem
þau vita ekki hvort verða haldnar eða
hvenær verða haldnar,“ segir Óttarr.
Allir flokkarnir á Alþingi eru farnir
að huga að undirbúningi kosninga í
haust þrátt fyrir að óvissa sé um dag-
setningu þeirra. – srs / sjá síðu 4
Eftir að Gló opnaði í Fákafeni
hefur skapast frábær aðstaða til
námskeiðahalds auk þess sem
fólk getur keypt inn fjölbreytt-
ar hollustu- og lífrænar vörur,
fengið sér töfrandi drykki eða
notið heilnæmra máltíða. Aukn-
ar vinsældir hafa gert það að
verkum að nú er í boði stærri og
fjölbreyttari námskeiðsdagskrá.
Sölvi Pétursson sem hefur um-
sjón með námskeiðunum, nokk-
urs konar skólastjóri, segir að
fólk geti sótt sér fræðslu hjá
þekktum erlendum sem inn-
lendum fyrirlesurum. „Öll nám-
skeiðin eru tengd heilbrigðum
lífsstíl,“ segir Sölvi. „Allt frá
jákvæðri sálfræði yfir í vegan
eða hráfæðismatreiðslunám-
skeið, lífsstílsþjálfun og lífsstíls-
breytingar. Fyrirlesararnir eru
með mismunandi áherslur sem
eykur á fjölbreytnina og gerir
námskeiðin meira spennandi,“
segir hann.
Spennandi námskeiðMeðal þekktra fyrirlesara eru
Þorbjörg Hafsteinsdóttir sem
hefur getið sér mjög gott orð
fyrir námskeiðið Ljómandi.
Þetta er tíunda skiptið sem hún
er með Ljómandi námskeiðið
sem tekur fjórar vikur. „Sykur-
laus og full af orku eftir sumar-
ið,“ segir hún.Ásdís Ragna Einarsdóttir
grasalæknir kennir fólki grunn-
atriði sem hjálpa við að betrum-
bæta mataræðið á einfaldan
og öfgalausan hátt á einu nám-
skeiði sínu en einnig er hún með
námskeiðið „Hreint mataræði“.
„Lærðu hvernig þú getur virkj-
að afeitrunarkerfi líkamans til
fulls og gefðu líkamanum tæki-
færi á að endurnýja sig á hreinu
mataræði,“ segir Ásdís.Þá verður námskeið í ágúst
með metsöluhöfundinum Ani
Phyo en hún sýnir hve auðvelt og
fljótlegt er að útbúa hráfæði sem
hentar fyrir alla fjölskylduna.
Ani býr í Los Angeles, hún er af-
rekskona í íþróttum, heilsufrum-
kvöðull og höfundur verðlauna-
bóka um hráfæði. Hún hefur
meðal annars unnið með Hvíta
húsinu að verkefnum tengdum
heilsu auk þess sem hún er með
heilsuátak með borgarstjórn Los
Angeles um þessar mundir. Ani
deilir á námskeiðinu öflugum og
góðum ráðum sínum um breytt-
an og umhverfisvænan lífsstíl,
náttúrulega fegurð, líkamsrækt
og hamingju.Helga Arnardóttir er með
námskeið um jákvæða sálfræði.
Á námskeiðinu verður fjallað
um andlega vellíðan og leiðir
til þess að auka hana. Sex mis-
munandi leiðir, byggðar á rann-
sóknum á hamingju og vellíðan,
verða teknar fyrir, ein í hverj-
um tíma. Þátttakendur fá sam-
svarandi æfingar til þess að gera
heima milli tímanna.Meðal annarra fyrirlesara má
nefna Röggu Nagla sem heldur
sitt fyrsta námskeið á Gló í sept-
ember og kennir þátttakendum
að njóta matar með núvitund-
ina að vopni, Davíð Kristins-
son heldur sitt sívinsæla nám-
skeið „30 dagar“ í október, Júlía
Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi
kennir heilsusamlega matargerð
og Birna Ásbjörnsdóttir fjallar
um meltingu og þarmaflóruna.AfsláttarkortSölvi segir að styttri námskeið
séu yfirleitt tveir til þrír tímar
og fari fram á kvöldin. Einn-
ig eru í boði lengri námskeið,
4-6 skipti, eða helgarnámskeið.
Námskeiðunum fylgja afsláttar-
kort sem gilda í verslun Gló en
margar vörur sem sýndar eru á
námskeiðunum fást á staðnum.
Sölvi starfar á Gló Kaffi &
Tonic barnum í Fákafeni þar
sem hann galdrar fram alls
kyns heilsudrykki og er leitast
við að hámarka hollustu í hverj-
um sopa. Hann segist hafa hug á
að vera með námskeið um gerð
slíkra drykkja en það verður
tæpast fyrr en á næsta ári. Hins
vegar er ástæða til að heim-
sækja Sölva á barinn og fá sér
hollustu í kroppinn.
Heill heilsuheimurVerslunin býður upp á vörur sem
henta vel þeim sem vilja breyta
lífsstílnum og afsláttarkortið
gildir fyrir allar vörur. Starfs-
menn eru vel að sér og gefa við-
skiptavinum góð ráð um notkun.
„Margir nýta sér að borða
á veitingastaðnum hjá okkur
fyrir námskeið eða á eftir. Svo
er auðvelt að ná sér í mat í búð-
inni. Við erum með mjög mikið
úrval af nýjum vegan vörum
sem hafa ekki verið til áður á Ís-
landi. Í raun er Gló í Fákafeni
heill heilsuheimur,“ segir Sölvi.
„Við erum með grænmetiskæli
og fáum vikulega mjög skemmti-
legt úrval af lífrænu grænmeti,
til dæmis marglitar gulrætur.“
Hægt er að skoða námskeiða-
framboð og skrá sig á öll nám-
skeiðin á heimasíðunni glo.is og
einnig er hægt að fylgjast með
námskeiðum og öðrum viðburð-
um á Facebook-síðu Gló.
Fyrirlesararnir eru með mismunandi áherslur
sem eykur á fjölbreytnina og gerir nám-
skeiðin meira spennandi. Öll námskeiðin eru tengd
heilbrigðum lífsstíl.“
Sölvi Pétursson
Skólar og námskeið
8. ágúst 2016
Kynningarblað Gló | Stílvopnið | Retor fræðsla| KILROY | Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn |
Sölvi Pétursson er skólastjóri yfir námskeiðunum hjá gló. Einnig sér hann um gló Kaffi & Tonic barinn í Fákafeni. MynD/Hanna
Heilsuheimur spennandi námskeiða
Gló í Fákafeni býður upp á sérstaklega spennandi námskeið á næstunni fyrir alla þá sem vilja huga að bættum lífsstíl og heilsurækt.
Mismunandi námskeið með frábærum fyrirlesurum, meðal annars jákvæðri sálfræði, hráfæðismatreiðslu og Ljómandi með Tobbu.
NæStu NámSkeið og fyrirleStrAr á gló í fákAfeNi14. ágúst – Honey LaBronx – Veganismi og rétt-lætisbarátta16. ágúst - Ásdís Ragna Einars-dóttir - Hreint mat-aræði: Hreinsun17. ágúst – Any Phyo: Fresh Sa-vory Recipes19. ágúst – Ani Phyo: Decadent Guilt-Free Sweets20. ágúst – Ani’s Mexican in the Raw29. ágúst – Helga Arnardóttir - Aukin vellíðan með aðferðum jákvæðrar sálfræði31. ágúst - Ljómandi með Tobbu
lÍFið „Taskan “The Period Pouch”
er eins og verkfærataska, hún inni-
heldur allt það sem þú þarft á að
halda þegar þú ert á blæðingum,“
segir Rakel Karlsdóttir, hönnuður en
hún er að setja á laggirnar vörur sem
aðstoða konur þegar Rósa frænka
kemur óvænt í heimsókn.
Hugmyndin kviknaði þegar
Rakel var í hesta-
ferðalagi. „Hvaða
kona þekkir ekki
ástandið þegar
þú þarft að
skipta um bindi
eða túrtappa og
það er engin
r u s l a t u n n a
nálægt.“
– gló / sjá síðu 22
Verkfærakista
fyrir konur á
blæðingum
Sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir komst í undanúrslit í sinni grein á Ólympíuleikunum í Ríó, líkt og Hrafnhildur Lúthersdóttir. Þær kepptu í undanúrslitunum í nótt. FréttaBlaðið/antOn
rakel Karlsdóttir
0
8
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
3
1
-E
F
6
0
1
A
3
1
-E
E
2
4
1
A
3
1
-E
C
E
8
1
A
3
1
-E
B
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K