Fréttablaðið - 08.08.2016, Síða 1

Fréttablaðið - 08.08.2016, Síða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 8 5 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 8 . á g ú s t 2 0 1 6 Fréttablaðið í dag skólar og náM- skeið Að láta draum- inn rætast Gnægð af skemmtilegum og fróðlegum námskeiðum bíða þín handan hornsins. skoðun Guðmundur Andri skrifar um íþróttir. 10 sport Þórir Hergeirsson stefnir að því að vinna gull á ÓL. 12 Fréttir Vinnumálstofnun kemur á fót mansalsteymi 8 plús 2 sérblöð l Fólk l  skólar og náMskeið *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 1 GB netnotkun eða 1.000 kr. á mán. í 12 mán. fylgir! 2 GB netnotkun eða 2.000 kr. á mán. í 12 mán. fylgir! Samsung Galaxy J5 2016 Samsung Galaxy S7 iPhone SE iPhone 6s 2 GB netnotkun eða 2.000 kr. á mán. í 12 mán. fylgir! 1 GB netnotkun eða 1.000 kr. á mán. í 12 mán. fylgir! stjórnMál „Mér þykir það ekki boð- legt að við förum af stað í þessa vinnu án þess að vita hvenær þingið eigi að klárast,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata. Þingflokksformenn stjórnarand- stöðunnar ætla að funda áður en Alþingi kemur saman til að ræða hvernig megi knýja fram dagsetningu alþingiskosninga. „Nú er Sigurður Ingi að tala um það að koma fram með frumvarp um hlutfallslegt afnám verðtryggingar og eitthvað álíka. Ef þú ert að bæta svona stórum málum ofan á það sem fyrir er þá erum við að tala um þing minnst til áramóta og þá þarf að afgreiða fjár- lög,“ segir Birgitta. „Þetta er allt saman mjög skrítið og það eru alltaf að koma einhverjar nýjar vendingar.“ Oddný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir dónaskap við þingið og þjóðina að ekki sé búið Andstaðan hyggst knýja fram kjördag Oddný G. Harðardóttir formaður Sam- fylkingarinnar Birgitta Jónsdóttir þingflokksfor- maður Pírata Óttarr Proppé formaður Bjartrar framtíðar að ákveða dagsetningu þingkosninga. „Ég held að þingstörfin geti ekki gengið eðlilega fyrr en kjördagur er kominn. Það er ekki þannig að það sé bara stjórnarandstaðan sem þolir ekki þessa óvissu í landinu, fólkið vill fá að vita þetta. Það eru fleiri með plön en bara stjórnmálaflokkarnir,“ segir Oddný. Óttarr Proppé formaður Bjartrar framtíðar segir flokkinn byrjaðan að stilla upp listum en að skortur á dag- setningu alþingiskosninga reynist uppstillingarstarfinu erfitt. „Maður finnur fyrir því að það er ekkert sérlega gaman að biðja fólk um að gefa kost á sér í kosningum sem þau vita ekki hvort verða haldnar eða hvenær verða haldnar,“ segir Óttarr. Allir flokkarnir á Alþingi eru farnir að huga að undirbúningi kosninga í haust þrátt fyrir að óvissa sé um dag- setningu þeirra. – srs / sjá síðu 4 Eftir að Gló opnaði í Fákafeni hefur skapast frábær aðstaða til námskeiðahalds auk þess sem fólk getur keypt inn fjölbreytt- ar hollustu- og lífrænar vörur, fengið sér töfrandi drykki eða notið heilnæmra máltíða. Aukn- ar vinsældir hafa gert það að verkum að nú er í boði stærri og fjölbreyttari námskeiðsdagskrá. Sölvi Pétursson sem hefur um- sjón með námskeiðunum, nokk- urs konar skólastjóri, segir að fólk geti sótt sér fræðslu hjá þekktum erlendum sem inn- lendum fyrirlesurum. „Öll nám- skeiðin eru tengd heilbrigðum lífsstíl,“ segir Sölvi. „Allt frá jákvæðri sálfræði yfir í vegan eða hráfæðismatreiðslunám- skeið, lífsstílsþjálfun og lífsstíls- breytingar. Fyrirlesararnir eru með mismunandi áherslur sem eykur á fjölbreytnina og gerir námskeiðin meira spennandi,“ segir hann. Spennandi námskeiðMeðal þekktra fyrirlesara eru Þorbjörg  Hafsteinsdóttir sem hefur getið sér mjög gott orð fyrir námskeiðið Ljómandi. Þetta er tíunda skiptið sem hún er með Ljómandi námskeiðið sem tekur fjórar vikur. „Sykur- laus og full af orku eftir sumar- ið,“ segir hún.Ásdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir kennir fólki grunn- atriði sem hjálpa við að betrum- bæta mataræðið á einfaldan og öfgalausan hátt á einu nám- skeiði sínu en einnig er hún með námskeiðið „Hreint mataræði“. „Lærðu hvernig þú getur virkj- að afeitrunarkerfi líkamans til fulls og gefðu líkamanum tæki- færi á að endurnýja sig á hreinu mataræði,“ segir Ásdís.Þá verður námskeið í ágúst með metsöluhöfundinum Ani Phyo en hún sýnir hve auðvelt og fljótlegt er að útbúa hráfæði sem hentar fyrir alla fjölskylduna. Ani býr í Los Angeles, hún er af- rekskona í íþróttum, heilsufrum- kvöðull og höfundur verðlauna- bóka um hráfæði. Hún hefur meðal annars unnið með Hvíta húsinu að verkefnum tengdum heilsu auk þess sem hún er með heilsuátak með borgarstjórn Los Angeles um þessar mundir. Ani deilir á námskeiðinu öflugum og góðum ráðum sínum um breytt- an og umhverfisvænan lífsstíl, náttúrulega fegurð, líkamsrækt og hamingju.Helga Arnardóttir er með námskeið um jákvæða sálfræði. Á námskeiðinu verður fjallað um andlega vellíðan og leiðir til þess að auka hana. Sex mis- munandi leiðir, byggðar á rann- sóknum á hamingju og vellíðan, verða teknar fyrir, ein í hverj- um tíma. Þátttakendur fá sam- svarandi æfingar til þess að gera heima milli tímanna.Meðal annarra fyrirlesara má nefna Röggu Nagla sem heldur sitt fyrsta námskeið á Gló í sept- ember og kennir þátttakendum að njóta matar með núvitund- ina að vopni, Davíð Kristins- son heldur sitt sívinsæla nám- skeið „30 dagar“ í október, Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi kennir heilsusamlega matargerð og Birna Ásbjörnsdóttir fjallar um meltingu og þarmaflóruna.AfsláttarkortSölvi segir að styttri námskeið séu yfirleitt tveir til þrír tímar og fari fram á kvöldin. Einn- ig eru í boði lengri námskeið, 4-6 skipti, eða helgarnámskeið. Námskeiðunum fylgja afsláttar- kort sem gilda í verslun Gló en margar vörur sem sýndar eru á námskeiðunum fást á staðnum. Sölvi starfar á Gló Kaffi & Tonic barnum í Fákafeni þar sem hann galdrar fram alls kyns heilsudrykki og er leitast við að hámarka hollustu í hverj- um sopa. Hann segist hafa hug á að vera með námskeið um gerð slíkra drykkja en það verður tæpast fyrr en á næsta ári. Hins vegar er ástæða til að heim- sækja Sölva á barinn og fá sér hollustu í kroppinn. Heill heilsuheimurVerslunin býður upp á vörur sem henta vel þeim sem vilja breyta lífsstílnum og afsláttarkortið gildir fyrir allar vörur. Starfs- menn eru vel að sér og gefa við- skiptavinum góð ráð um notkun. „Margir nýta sér að borða á veitingastaðnum hjá okkur fyrir námskeið eða á eftir. Svo er auðvelt að ná sér í mat í búð- inni. Við erum með mjög mikið úrval af nýjum vegan vörum sem hafa ekki verið til áður á Ís- landi. Í raun er Gló í Fákafeni heill heilsuheimur,“ segir Sölvi. „Við erum með grænmetiskæli og fáum vikulega mjög skemmti- legt úrval af lífrænu grænmeti, til dæmis marglitar gulrætur.“ Hægt er að skoða námskeiða- framboð og skrá sig á öll nám- skeiðin á heimasíðunni glo.is og einnig er hægt að fylgjast með námskeiðum og öðrum viðburð- um á Facebook-síðu Gló. Fyrirlesararnir eru með mismunandi áherslur sem eykur á fjölbreytnina og gerir nám- skeiðin meira spennandi. Öll námskeiðin eru tengd heilbrigðum lífsstíl.“ Sölvi Pétursson Skólar og námskeið 8. ágúst 2016 Kynningarblað Gló | Stílvopnið | Retor fræðsla| KILROY | Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn | Sölvi Pétursson er skólastjóri yfir námskeiðunum hjá gló. Einnig sér hann um gló Kaffi & Tonic barinn í Fákafeni. MynD/Hanna Heilsuheimur spennandi námskeiða Gló í Fákafeni býður upp á sérstaklega spennandi námskeið á næstunni fyrir alla þá sem vilja huga að bættum lífsstíl og heilsurækt. Mismunandi námskeið með frábærum fyrirlesurum, meðal annars jákvæðri sálfræði, hráfæðismatreiðslu og Ljómandi með Tobbu. NæStu NámSkeið og fyrirleStrAr á gló í fákAfeNi14. ágúst – Honey LaBronx – Veganismi og rétt-lætisbarátta16. ágúst - Ásdís Ragna Einars-dóttir - Hreint mat-aræði: Hreinsun17. ágúst – Any Phyo: Fresh Sa-vory Recipes19. ágúst – Ani Phyo: Decadent Guilt-Free Sweets20. ágúst – Ani’s Mexican in the Raw29. ágúst – Helga Arnardóttir - Aukin vellíðan með aðferðum jákvæðrar sálfræði31. ágúst - Ljómandi með Tobbu lÍFið „Taskan “The Period Pouch” er eins og verkfærataska, hún inni- heldur allt það sem þú þarft á að halda þegar þú ert á blæðingum,“ segir Rakel Karlsdóttir, hönnuður en hún er að setja á laggirnar vörur sem aðstoða konur þegar Rósa frænka kemur óvænt í heimsókn. Hugmyndin kviknaði þegar Rakel var í hesta- ferðalagi. „Hvaða kona þekkir ekki ástandið þegar þú þarft að skipta um bindi eða túrtappa og það er engin r u s l a t u n n a nálægt.“ – gló / sjá síðu 22 Verkfærakista fyrir konur á blæðingum Sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir komst í undanúrslit í sinni grein á Ólympíuleikunum í Ríó, líkt og Hrafnhildur Lúthersdóttir. Þær kepptu í undanúrslitunum í nótt. FréttaBlaðið/antOn rakel Karlsdóttir 0 8 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 3 1 -E F 6 0 1 A 3 1 -E E 2 4 1 A 3 1 -E C E 8 1 A 3 1 -E B A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 5 6 s _ 7 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.