Fréttablaðið - 08.08.2016, Qupperneq 2
Seguldrifinn
blandari
Veður
Norðlæg átt 8-15 m/s í dag, einna hvassast
suðaustan- og austanlands og má búast
við að hviður verði varasamar austur af
Öræfum og að Austfjörðum. sjá síðu 16
Lundar á sundi
Mikill fjöldi lundapysja var á sundi við Heimaey í gær. Í júlí sagði Erpur Snær Hansen fuglafræðingur í Eyjafréttum að lundavarp í Eyjum lofaði mjög
góðu. Þó væri útlitið dekkra í Dyrhólaey og Ingólfshöfða sem og í Papey. Hlutfall hola sem orpið væri í væri mjög hátt. Fréttablaðið/Óskar P. Friðriksson
samfélag Tvö börn á Þingeyri
mættu hvorki í leikfimi né skóla-
sund í heilt ár vegna baðvarðar
grunnskólans í bænum.
Miklar deilur hafa staðið milli
foreldra barnanna og fjölskyldu
baðvarðarins sem heitir Kristján
Þ. Ástvaldsson. Kristján var kærður
árið 2014 fyrir líkamsárás á móður
barnanna en var sýknaður í héraðs-
dómi og í Hæstarétti. Í dóminum
segir að lögreglustjórinn hafi ekki
náð að sanna sekt Kristjáns.
Deilurnar hófust eftir að faðir
barnanna lét yfirvöld vita af meint-
um tryggingasvikum Kristjáns. Í
kjölfarið héldu foreldrar barnanna
því fram að Kristján hefði ráðist á
móðurina. Þá hafa ýmsar ásakanir
komið frá fjölskyldunum hvorrar í
garð annarrar.
Málið hefur farið víða en í dag
er það á borði menntamálaráðu-
neytisins, umboðsmanns Alþingis
og Ísafjarðarbæjar. Einnig hafa lög-
regluyfirvöld ítrekað haft afskipti
af málinu. Þá hefur umboðsmaður
barna mætt á Þingeyri og haft
afskipti af málinu.
Kristján segir deilurnar hafa byrj-
að eftir að maður Mörtu hafi logið
því að hann væri að svíkja út bætur.
Kristján hefur ávallt neitað því að
hafa ráðist á móður barnanna.
„Þetta fólk hefur verið á móti mér
í mörg ár og ég veit ekki af hverju.
Þau hafa kallað mig ljótum nöfnum
opinberlega og hafa reynt að ljúga
ýmsu upp á mig, til að mynda reyndi
hann að fá mig rekinn úr öðru starfi
sem hafnarvörður með lygum. Þetta
játaði hann fyrir dómi,“ segir Krist-
ján sem er hættur sem baðvörður.
„Ég fæ annað starf hjá bænum.
Bæjarstjórinn komst að þeirri
niðurstöðu að það væri betra að ég
væri ekki lengur í þessu starfi. Ég hef
alltaf gert það sem bærinn biður
mig um í þessu máli,“ segir Kristján.
Að sögn Kristjáns hefur málið
tekið mikið á hann og fjölskyldu
hans. Hann er tveggja barna faðir.
„Þetta hefur verið alveg ömur-
legt en ég fæ ekkert að verja mig á
meðan þessi lögreglustjóri er við
völd,“ segir Kristján.
Skólastjórinn í grunnskólanum á
Þingeyri vildi ekki tjá sig um málið
en tók fram að hún reyndi alltaf
að bera hag barnanna fyrir brjósti.
Foreldrar barnanna vildu ekki tjá sig
um málið að svo stöddu.
nadine@frettabladid.is
Fjölskyldudeilur héldu
börnum frá skólasundi
Tvö börn á Þingeyri mættu hvorki í leikfimi né skólasund í eitt ár vegna deilna
foreldra þeirra við baðvörðinn. Málið er á borði menntamálaráðuneytisins og
umboðsmanns Alþingis. Ömurlegt segir baðvörðurinn sem er hættur störfum.
Í nokkur ár hafa staðið miklar deilur milli tveggja fjölskyldna á Þingeyri.
Fréttablaðið/PJEtUr
Belgía Hryðjuverkasamtökin sem
kenna sig við íslamskt ríki (ISIS),
sögðu í gær að maður sem réðst
á tvær lögreglukonur með sveðju
í belgísku borginni Charleroi á
laugardag hafi verið liðsmaður sam-
takanna.
Belgísk lögregluyfirvöld segja
árásarmanninn vera 33 ára Alsíring.
Lögregla skaut hann til bana. Vitni
segja að maðurinn hafi endurtekið
hrópað „Allahu Akbar“, eða Guð er
mestur, á meðan árásinni stóð. – þea
Árásarmaður
tengdur ISIS
lögregla í Charleroi. nordiCPhotos/aFP
samfélag Fjölskyldustemming var á
Klambratúni í gær en þar brá Sirkus
Íslands á leik. Fjölskylduhátíðin á
túninu var hluti af lokadagskrá Hin-
segin daga sem lauk í gær.
Hápunktur Hinsegin daga var
Gleðigangan á laugardaginn. Þar
vakti það mikla athygli þegar Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Íslands,
hélt þar ávarp fyrstur allra forseta.
Guðni nýtti tækifærið í ávarpi sínu
við gleðigönguna í gær til þess að
hvetja alla til að taka sérstaklega á
þeim fordómum sem enn þarf að
glíma við í heimi íþróttanna.
Fordómarnir þykja djúpstæðir og
nánast fáheyrt að atvinnuíþrótta-
menn komi út úr skápnum.
„Maður heyrir sögur af til dæmis
strákum í handbolta eða jafnvel fót-
bolta sem þora ekki að koma út úr
skápnum í liðunum sínum og hætta
frekar í íþróttinni til þess að koma
út úr skápnum," segir Bjarni Snæ-
björnsson, sem situr í stjórn hinseg-
in íþróttafélagsins Styrmis. – srs/us
Karnival á Klambratúni
brugðið á leik á klambratúni í gær.
Fréttablaðið/hanna
Ég fæ ekkert að verja
mig á meðan þessi
lögreglustjóri er við völd.
Kristján Þ. Ástvaldsson, fyrrverandi bað-
vörður
8 . á g ú s t 2 0 1 6 m á N u D a g u R2 f R é t t i R ∙ f R é t t a B l a ð i ð
0
8
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
3
1
-F
4
5
0
1
A
3
1
-F
3
1
4
1
A
3
1
-F
1
D
8
1
A
3
1
-F
0
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K