Fréttablaðið - 08.08.2016, Page 11
Húsfélagaþjónustan ehf • Auðbrekku 16 • 200 Kópavogi • sími 555 6855 • gsm 863 8855 • husfelag@husfelag.is • www. husfelag.is
Hreinsum glugga og klæðningar
á öllum stærðum húsa
Vanir menn - Vönduð vinnubrögð.
Sími 555 6855
www.husfelag.is
husfelag@husfelag.is
569 6900 08:00–16:00www.ils.is
Stofnframlög fyrir almennar íbúðir
Samkvæmt nýjum lögum um almennar íbúðir er Íbúðalána-
sjóði falið að sjá um veitingu stofnframlaga ríkisins. Markmið
laganna er að ölga hagkvæmum og ódýrum íbúðum, styðja
við fyrstu kaup og tryggja aukið framboð af hagkvæmum
leiguíbúðum.
Stofnframlög ríkisins munu nema 18% af stofnvirði eignar-
innar og framlag sveitarfélags 12% — og getur falist í niður-
fellingu á gjöldum sveitarfélags. Eitt af skilyrðum fyrir
veitingu stofnframlags er að umsækjandi hafi þegar fengið
samþykkt stofnframlag hjá sveitarfélagi.
Stofnframlagið getur verið veitt til húsnæðissjálfseignar-
stofnana, sveitarfélaga, lögaðila í eigu sveitarfélaga og
annarra lögaðila.
Opnað verður fyrir umsóknir hjá Íbúðalánasjóði
fljótlega. Frekari upplýsingar á www.ils.is.
Nýtt kerfi sem
hjálpar þér af stað
Egill Skallagrímsson, frumskáld okkar Íslendinga, þakkar í Sonatorreki sínu Óðni fyrir
„íþrótt vammi firrða“, hina vamm-
lausu íþrótt. Hann lagði kannski
ekki nútímaskilning í orðið „íþrótt“,
en hvað veit maður svo sem; hann
stundaði um sína daga ýmsar
íþróttir eins og lesa má í sögu hans,
og ekki beinlínis vammlausar allar –
til dæmis varð knattleiksiðkun hans
á barnsaldri tilefni til hans fyrstu
mannvíga af því að honum líkuðu
ekki blygðunarlausir yfirburðir mót-
herjans, enda sjálfur „kappsamur
mjög og reiðinn“. Þá var hann sjö
ára. Það skánaði lítið skapið með
aldrinum.
Skáldamót?
Nema þegar hann orti. Þar var hann
skástur og næstum eins og maður. Í
skáldskapnum sjáum við glitta í sál,
tilfinningar, mannúð, mýkt, næm-
leik og glettni. Egill Skallagrímsson
hefði verið eins og hvert annað
ómenni ef ekki hefði verið fyrir
skáldskapinn, íþrótt vammi firrða.
Gaman að geta þess að það var
raunar keppt í ljóðagerð á Ólympíu-
leikum fram yfir seinna stríð, þótt
ekki fari sögum af vinningsljóðun-
um lengur. Það segir auðvitað ekki
allt; varla muna aðrir en ryksækn-
ustu íþróttasagnfræðingar almennt
eftir því hverjir sigruðu í bogfimi á
skautum á árunum fyrir stríð eða
fimmtánhundruð metra pokahlaupi
eða hverju sem fólk var nú að keppa
í á ólympíuleikum gegnum tíðina.
Mikið væri gaman að sjá keppt í
yrkingum, til dæmis á Landsmóti
Ungmennafélaganna. Maður færi
aldeilis á slíkt skáldamót. Þá mætti
hugsa sér ýmsar greinar: keppni í
ítalskri sonnettu með fyrirfram-
gefnum yrkisefnum og þremur
líkingum; hexametri án atrennu um
sögulegt efni, og í leonískum hætti í
heimsádeilustíl – eða órímuðu ljóði
í fimm línum um haustið með einni
metafóru – að ógleymdum öllum
rímnaháttunum: þeir eru í sjálfu sér
heilt íþróttamót. Kona á peysufötum
myndi stjórna – kallast „edda“ – og
í stað þess að segja hátt „Stigið!“
myndi hún hefja prjón á loft og segja
„Yrkið!“
Í sjálfu sér
Er ekki tóm vitleysa að gera svo ein-
dregna aðgreiningu íþrótta og lista?
Skilgreining á list þegar ég var krakki
hljóðaði upp á að þar væri um að
ræða mannlega iðju sem hefði nota-
Íþrótt vammi fyllt
gildi sitt í sjálfri sér; við búum til skál
til að geyma ávexti og svo búum
við til skál sem hrindir frá sér öllum
ávöxtum jafnharðan; er bara þarna;
og er þá ílátið orðið að listaverki.
Hið sama gildir um vel heppnaða
íþróttaviðburði á borð við Brennó
eða Yfir við gamla fjósið í Karfa-
voginum á mínum leikárum – og
líka alla þessa boltaleiki sem við
fylgjumst mörg hver áfjáð með og
borgum fólki há laun til að stunda
af listfengi; rétt eins og við borgum
listamönnum fyrir að iðka sínar
kúnstir fyrir okkur.
Öll dýr stunda sínar sérstöku
íþróttir sem hafa notagildi sitt
fólgnar í sjálfum sér; fuglarnir taka
kollsteypur og svífa í ólýsanlegum
bogum um loftin blá en köngulóin
spinnur sinn fagra vef og er með
sérstöku sniði hjá hverri og einni,
eins og lopapeysan hjá íslenskum
konum; hin íslenska húsfluga
stundar þá áhættusæknu jaðarí-
þrótt að reyna að komast eins mikið
ofan í vitin á sofandi manneskju og
mögulegt er án þess að týna lífinu
en kisa brýnir klærnar á forboðnum
stólsetum; hundurinn hleypur,
hesturinn stekkur – og kýrnar leika
við hvurn sinn fíngur. En menn-
irnir – þeir halda landsmót og
ólympíuleika þar sem þeir stökkva
og hlaupa, grýta þungum hlutum og
eltast við bolta. Og sumt fólk gerir
þetta af slíku listfengi að aðrir menn
hafa yndi af því að horfa á það.
Það er fallegt. En takmörk eru
samt fyrir því hversu miklu á að
kosta til við þá iðju. Eins gaman og
það getur verið að fylgjast með vel
þjálfuðu fólki gera sitt besta til að ná
einhverjum uppdiktuðum mark-
miðum þá verður að segjast að æ
meira í nútíma-íþróttum verkar á
mann eins og afkáraskapur; ekki
endilega út af tilgangsleysi þess að
henda kúlu eða stökkva þrístökk því
að eins og Steinn benti okkur á þá
er tilgangsleysið nú einu sinni „lífið
sjálft“, heldur einmitt út af hinu;
þegar reynt er troða tilgangi inn í
íþróttaiðkunina; og eiga þá kepp-
endur að varpa ljósi á ágæti einhvers
þjóðskipulags eða jafnvel þjóðernis;
þeim er þá byrluð alls kyns ólyfjan
á borð við stera sem æra þá og
afskræma, eingöngu fyrir stundarár-
angur. Í þeim tilvikum er hægt að
tala um íþrótt vammi fyllta.
„Mens sana in corpore sano“
sögðu Rómverjar, „heilbrigð sál
í hraustum líkama“. Þetta er góð
áminning um jafnvægi sálar og
líkama og það hvernig okkur ber
að rækta hvort tveggja með gagn-
kvæmri hliðsjón. Lýsingarorðið
sanus þýðir ekki bara heilbrigður
heldur líka skynsamur, eðlilegur –
óbrjálaður, í sjálfum sér.
Hvernig er heilbrigður og óbrjál-
aður líkami? Hann er eðli sínu
samkvæmur. Hann er eins og hann
kemur af skepnunni, náttúrulegur –
hann er „í formi“ og vöðvarnir starfa
eins og náttúran ætlaði þeim, því að
okkur er eiginlegt að hreyfa okkur
hæfilega. Hann er óskemmdur af of
einhliða mat eða óhóflegu áfengi, of
einhliða hreyfingu eða hreyfingar-
leysi – slíkt hirðuleysi um líkamann
bitnar á sálinni, sem í orðræðu
nútímans er aldrei nefnd annað en
„sálartetrið“ eins og hún sé eitthvað
grey en ekki okkar dýrasta eign. En
heilbrigður líkami er líka óbrjálaður
af of einhæfri þjálfun tiltekinna
einangraðra eiginleika. Það getur
naumast verið nokkrum manni hollt
að vera til dæmis alltaf í þrístökki,
sem allir sjá hversu fáránleg aðferð
er við að koma sér á milli tveggja
staða …
Guðmundur
Andri Thorsson
rithöfundur
Í dag
En heilbrigður líkami er líka
óbrjálaður af of einhæfri
þjálfun tiltekinna einangr-
aðra eiginleika. Það getur
naumast verið nokkrum
manni hollt að vera til dæmis
alltaf í þrístökki, sem allir sjá
hversu fáránleg aðferð er við
að koma sér á milli tveggja
staða …
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 8 . Á g ú s T 2 0 1 6
0
8
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
3
2
-1
B
D
0
1
A
3
2
-1
A
9
4
1
A
3
2
-1
9
5
8
1
A
3
2
-1
8
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K