Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.08.2016, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 08.08.2016, Qupperneq 11
Húsfélagaþjónustan ehf • Auðbrekku 16 • 200 Kópavogi • sími 555 6855 • gsm 863 8855 • husfelag@husfelag.is • www. husfelag.is Hreinsum glugga og klæðningar á öllum stærðum húsa Vanir menn - Vönduð vinnubrögð. Sími 555 6855 www.husfelag.is husfelag@husfelag.is 569 6900 08:00–16:00www.ils.is Stofnframlög fyrir almennar íbúðir Samkvæmt nýjum lögum um almennar íbúðir er Íbúðalána- sjóði falið að sjá um veitingu stofnframlaga ríkisins. Markmið laganna er að ölga hagkvæmum og ódýrum íbúðum, styðja við fyrstu kaup og tryggja aukið framboð af hagkvæmum leiguíbúðum. Stofnframlög ríkisins munu nema 18% af stofnvirði eignar- innar og framlag sveitarfélags 12% — og getur falist í niður- fellingu á gjöldum sveitarfélags. Eitt af skilyrðum fyrir veitingu stofnframlags er að umsækjandi hafi þegar fengið samþykkt stofnframlag hjá sveitarfélagi. Stofnframlagið getur verið veitt til húsnæðissjálfseignar- stofnana, sveitarfélaga, lögaðila í eigu sveitarfélaga og annarra lögaðila. Opnað verður fyrir umsóknir hjá Íbúðalánasjóði fljótlega. Frekari upplýsingar á www.ils.is. Nýtt kerfi sem hjálpar þér af stað Egill Skallagrímsson, frumskáld okkar Íslendinga, þakkar í Sonatorreki sínu Óðni fyrir „íþrótt vammi firrða“, hina vamm- lausu íþrótt. Hann lagði kannski ekki nútímaskilning í orðið „íþrótt“, en hvað veit maður svo sem; hann stundaði um sína daga ýmsar íþróttir eins og lesa má í sögu hans, og ekki beinlínis vammlausar allar – til dæmis varð knattleiksiðkun hans á barnsaldri tilefni til hans fyrstu mannvíga af því að honum líkuðu ekki blygðunarlausir yfirburðir mót- herjans, enda sjálfur „kappsamur mjög og reiðinn“. Þá var hann sjö ára. Það skánaði lítið skapið með aldrinum. Skáldamót? Nema þegar hann orti. Þar var hann skástur og næstum eins og maður. Í skáldskapnum sjáum við glitta í sál, tilfinningar, mannúð, mýkt, næm- leik og glettni. Egill Skallagrímsson hefði verið eins og hvert annað ómenni ef ekki hefði verið fyrir skáldskapinn, íþrótt vammi firrða. Gaman að geta þess að það var raunar keppt í ljóðagerð á Ólympíu- leikum fram yfir seinna stríð, þótt ekki fari sögum af vinningsljóðun- um lengur. Það segir auðvitað ekki allt; varla muna aðrir en ryksækn- ustu íþróttasagnfræðingar almennt eftir því hverjir sigruðu í bogfimi á skautum á árunum fyrir stríð eða fimmtánhundruð metra pokahlaupi eða hverju sem fólk var nú að keppa í á ólympíuleikum gegnum tíðina. Mikið væri gaman að sjá keppt í yrkingum, til dæmis á Landsmóti Ungmennafélaganna. Maður færi aldeilis á slíkt skáldamót. Þá mætti hugsa sér ýmsar greinar: keppni í ítalskri sonnettu með fyrirfram- gefnum yrkisefnum og þremur líkingum; hexametri án atrennu um sögulegt efni, og í leonískum hætti í heimsádeilustíl – eða órímuðu ljóði í fimm línum um haustið með einni metafóru – að ógleymdum öllum rímnaháttunum: þeir eru í sjálfu sér heilt íþróttamót. Kona á peysufötum myndi stjórna – kallast „edda“ – og í stað þess að segja hátt „Stigið!“ myndi hún hefja prjón á loft og segja „Yrkið!“ Í sjálfu sér Er ekki tóm vitleysa að gera svo ein- dregna aðgreiningu íþrótta og lista? Skilgreining á list þegar ég var krakki hljóðaði upp á að þar væri um að ræða mannlega iðju sem hefði nota- Íþrótt vammi fyllt gildi sitt í sjálfri sér; við búum til skál til að geyma ávexti og svo búum við til skál sem hrindir frá sér öllum ávöxtum jafnharðan; er bara þarna; og er þá ílátið orðið að listaverki. Hið sama gildir um vel heppnaða íþróttaviðburði á borð við Brennó eða Yfir við gamla fjósið í Karfa- voginum á mínum leikárum – og líka alla þessa boltaleiki sem við fylgjumst mörg hver áfjáð með og borgum fólki há laun til að stunda af listfengi; rétt eins og við borgum listamönnum fyrir að iðka sínar kúnstir fyrir okkur. Öll dýr stunda sínar sérstöku íþróttir sem hafa notagildi sitt fólgnar í sjálfum sér; fuglarnir taka kollsteypur og svífa í ólýsanlegum bogum um loftin blá en köngulóin spinnur sinn fagra vef og er með sérstöku sniði hjá hverri og einni, eins og lopapeysan hjá íslenskum konum; hin íslenska húsfluga stundar þá áhættusæknu jaðarí- þrótt að reyna að komast eins mikið ofan í vitin á sofandi manneskju og mögulegt er án þess að týna lífinu en kisa brýnir klærnar á forboðnum stólsetum; hundurinn hleypur, hesturinn stekkur – og kýrnar leika við hvurn sinn fíngur. En menn- irnir – þeir halda landsmót og ólympíuleika þar sem þeir stökkva og hlaupa, grýta þungum hlutum og eltast við bolta. Og sumt fólk gerir þetta af slíku listfengi að aðrir menn hafa yndi af því að horfa á það. Það er fallegt. En takmörk eru samt fyrir því hversu miklu á að kosta til við þá iðju. Eins gaman og það getur verið að fylgjast með vel þjálfuðu fólki gera sitt besta til að ná einhverjum uppdiktuðum mark- miðum þá verður að segjast að æ meira í nútíma-íþróttum verkar á mann eins og afkáraskapur; ekki endilega út af tilgangsleysi þess að henda kúlu eða stökkva þrístökk því að eins og Steinn benti okkur á þá er tilgangsleysið nú einu sinni „lífið sjálft“, heldur einmitt út af hinu; þegar reynt er troða tilgangi inn í íþróttaiðkunina; og eiga þá kepp- endur að varpa ljósi á ágæti einhvers þjóðskipulags eða jafnvel þjóðernis; þeim er þá byrluð alls kyns ólyfjan á borð við stera sem æra þá og afskræma, eingöngu fyrir stundarár- angur. Í þeim tilvikum er hægt að tala um íþrótt vammi fyllta. „Mens sana in corpore sano“ sögðu Rómverjar, „heilbrigð sál í hraustum líkama“. Þetta er góð áminning um jafnvægi sálar og líkama og það hvernig okkur ber að rækta hvort tveggja með gagn- kvæmri hliðsjón. Lýsingarorðið sanus þýðir ekki bara heilbrigður heldur líka skynsamur, eðlilegur – óbrjálaður, í sjálfum sér. Hvernig er heilbrigður og óbrjál- aður líkami? Hann er eðli sínu samkvæmur. Hann er eins og hann kemur af skepnunni, náttúrulegur – hann er „í formi“ og vöðvarnir starfa eins og náttúran ætlaði þeim, því að okkur er eiginlegt að hreyfa okkur hæfilega. Hann er óskemmdur af of einhliða mat eða óhóflegu áfengi, of einhliða hreyfingu eða hreyfingar- leysi – slíkt hirðuleysi um líkamann bitnar á sálinni, sem í orðræðu nútímans er aldrei nefnd annað en „sálartetrið“ eins og hún sé eitthvað grey en ekki okkar dýrasta eign. En heilbrigður líkami er líka óbrjálaður af of einhæfri þjálfun tiltekinna einangraðra eiginleika. Það getur naumast verið nokkrum manni hollt að vera til dæmis alltaf í þrístökki, sem allir sjá hversu fáránleg aðferð er við að koma sér á milli tveggja staða … Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í dag En heilbrigður líkami er líka óbrjálaður af of einhæfri þjálfun tiltekinna einangr- aðra eiginleika. Það getur naumast verið nokkrum manni hollt að vera til dæmis alltaf í þrístökki, sem allir sjá hversu fáránleg aðferð er við að koma sér á milli tveggja staða … s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 8 . Á g ú s T 2 0 1 6 0 8 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 3 2 -1 B D 0 1 A 3 2 -1 A 9 4 1 A 3 2 -1 9 5 8 1 A 3 2 -1 8 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 7 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.