Fréttablaðið - 08.08.2016, Side 14
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is,
s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351
Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Stutt er síðan greint var frá í frétt-
um að íslenskur nemi í vöruhönn-
un hefði hannað vatnsflösku sem
brotnar niður í náttúrunni. Hann
er á sömu línu og þó nokkrir aðrir
hönnuðir sem hafa sömu markmið
að leiðar ljósi. Hér eru dæmi um
þrjú umhverfis væn verkefni:
Ætir sixpack-hringir
Bjórframleiðandinn Saltwater Bre-
wery í Flórída hefur unnið að því
með auglýsingastofunni We Be-
lievers í New York að skipta út
hinum hefðbundnu sixpack-hringj-
um úr plasti fyrir hringi úr hveiti
og byggi en það eru einmitt auka-
afurðir sem verða til við fram-
leiðslu bjórs. Þessir nýju hring-
ir eru því ætir auk þess sem þeir
brotna auðveldlega niður í nátt-
úrunni.
Samkvæmt Greenpeace enda
um tíu milljónir tonna af plasti í
sjónum á hverju ári. Hluti þess er
étinn af dýrum sjávar og veldur
skaða. Talið er að yfir 50 prósent
sjófugla innbyrði plastrusl. Six-
pack-hringir úr plasti þykja hafa
sérlega slæm áhrif á umhverfið
þar sem dýr geta fest sig í þeim og
kafnað.
Upphaflega prófuðu hönnuðirnir
að nota þara en efnið þótti of stíft
á þurru landi þannig að dýrum
stafaði hætta af. Því var niður-
staðan sú að nota hveiti og bygg til
að móta klassíska sixpack-hringi.
Fyrirtækið ætlar að framleiða 400
þúsund æta hringi í hverjum mán-
uði. Vonir standa til að þetta verði
til að hvetja aðra stærri framleið-
endur til að stökkva á umhverfis-
væna vagninn.
Þari í stað plasts
AMAM er hönnunarteymi þriggja
japanskra hönnuða sem hlaut Lex-
us-hönnunarverðlaunin í ár. Verk-
efnið heitir Agar Plasticity en
breski hönnuðurinn Max Lamb,
sem er þekktur fyrir frumlega
nýtingu efniviðar, var leiðbein-
andi AMAM.
Agar er hlaupkennt efni sem
búið er til úr þörungum. Efnið
notuðu hönnuðirnir til að búa til
umhverfisvænar umbúðir. Hönn-
uðirnir voru tilnefndir til verð-
launanna í nóvember og notuðu
tímann til að prófa efnið. Þann-
ig sendu þeir ilmvatnsflösku frá
Tókýó til Mílanó en Lexus-verð-
launin eru veitt árlega í tengslum
við hönnunarvikuna í borginni.
Hönnuðirnir voru allir nemend-
ur í vöruhönnun við Tama Art há-
skólann og mynduðu AMAM árið
2015 þegar tveir þeirra höfðu lokið
mastersgráðu við London’s Royal
College of Art.
Mygla til góðs
Fyrirtækið Ecovative hannar um-
hverfisvæn efni sem eiga að leysa
af hólmi ýmis plastefni sem notuð
hafa verið í umbúðir. Fyrirtæk-
ið var tilnefnt til hönnunarverð-
launa ársins 2015 sem veitt eru af
hönnunarsafninu í London.
Efnið sem Ecovative hefur
hannað er úr myglu (mycelium)
sem blandað hefur verið saman
við aukaafurðir úr landbúnaði
líkt og hýði utan af fræjum og
kornstönglum. Þannig verður til
nokkurs konar lífrænt plastefni.
Ólíkt öðrum plastefnum, sem
eru búin til úr ólífrænum efnum,
brotnar efnið niður í náttúrunni.
Nýjasta afurð Ecovative er
„gerðu það sjálfur“ pakki sem
gefur listamönnum og hönnuðum
tækifæri til að rækta sjálfir efnin
sem þeir vilja nota í verk sín.
Sveppaefnið hefur ekki aðeins
verið notað til að búa til umbúðir
heldur hafa líka ýmsir munir litið
dagsins ljós. Til dæmis lampa-
skermar eftir hönnuðinn Dani-
elle Trofe sem hún kallar Mush-
lume og Mush-bloom.
VistVÆn hönnun
Vitund um mikilvægi umhverfisverndar og skaðleg áhrif ólífrænna efna
á náttúruna hefur aukist. Hönnuðir leita nú sumir leiða til að skipta út
umhverfisspillandi efnum fyrir önnur sem brotna niður í náttúrunni.
ecovative býr til umbúðir úr myglu sem blandað er aukaafurðum úr landbúnaði.
agar Plasticity úr smiðju amam.
Klassískum plasthringjum skipt út fyrir hringi sem búnir eru til úr byggi og hveiti.
GÆÐI - ENDING - ÁNÆGJA
www.weber.is
8 . á g ú s t 2 0 1 6 M á N U D A g U R2 F ó l k ∙ k y N N i N g A R b l A ð ∙ X X X X X X X X
ALLTAF VIÐ HÖNDINA
Þú getur lesið
Fréttablaðið í heild
sinni á Vísi og í
Fréttablaðs-appinu
... allt sem þú þarft
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
F ó l k ∙ k y N N i N g A R b l A ð ∙ H e i M i l i
0
8
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
3
2
-0
3
2
0
1
A
3
2
-0
1
E
4
1
A
3
2
-0
0
A
8
1
A
3
1
-F
F
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K