Fréttablaðið - 08.08.2016, Side 16
Útgefandi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UmSjónarmaðUr aUglýSinga
Jón Ívar Vilhelmsson| jonivar@365.is | s. 512-5429
ÁbyrgðarmaðUr
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
Guðfinna segir að hún hafi vilj-
að nota tækifærið og efla sig sem
stjórnanda. Hún hélt því á vit æv-
intýranna og fór í mastersnám sem
heitir International Human Reso-
urce Management eða alþjóðleg
mannauðsstjórnun. Guðfinna valdi
skóla sem heitir Birmingham City
University. „Það voru ýmsir þættir
sem urðu til þess að ég valdi hann.
Í fyrsta lagi leist mér vel á námið
og í öðru lagi leist okkur hjónunum
vel á Birmingham. Hún er önnur
stærsta borg Bretlands en þrátt
fyrir það þekktum við engan sem
hafði verið þar og almennt virtust
flestir þekkja mjög lítið til borgar-
innar. Okkur fannst það vera kost-
ur því okkur langaði til að geta kúpl-
að okkur alveg út í þennan tíma og
vera þar sem væru fáir Íslendingar.
Ekki spillti fyrir að Sinfóníuhljóm-
sveit Birminghamborgar er mjög
virt en maðurinn minn, Sigurjón
Örn Sigurjónsson, er mikill áhuga-
maður um klassíska tónlist. Því
má svo bæta við, fyrir þá sem hafa
áhuga á málefnum sveitarfélaga, að
Birmingham City er fjölmennasta
sveitarfélag í Evrópu,“ útskýrir hún.
Þegar hún er spurð hvort ekki sé
dýrt að fara í nám í Bretlandi, svar-
ar hún: „Skólagjöld eru há í Bret-
landi og því er það nokkuð dýrt.
Skólagjöldin mín voru um tvær
milljónir króna sem er samt ekki
svo mikið á breskan mælikvarða,
sem spilaði líka inn í við val á skól-
anum. Námið tók eitt ár. Kennslan
var búin í lok apríl en eftir það tóku
við skrif á mastersritgerð sem ég
skilaði í september 2015,“ segir hún.
Öðruvísi en í HÍ
Guðfinna segir að námið hafi
verið að sumu leyti ólíkt því sem
hún hafði kynnst úr Háskóla Ís-
lands. „Til dæmis var lögð miklu
meiri áhersla á þátttöku í tímum. Á
hverjum degi urðum við að vinna í
hópum, svara ákveðnum spurning-
um og kynna niðurstöður okkar. Við
vorum líka mikið hvött til að spyrja
og deila reynslu okkar og hugmynd-
um í tímum. Í náminu voru skipu-
lagðir nokkrir hlutverkaleikir þar
sem við tókum m.a. ráðningarvið-
töl, þurftum að taka á máli þar sem
starfsmaður var ósáttur við yfir-
mann sinn og í því þriðja á máli þar
sem starfsmaður var grunaður um
að hafa brotið af sér í starfi. Erf-
iðasti hlutverkaleikurinn var samt
þegar við, sem fulltrúar brugg-
verksmiðju, áttum að semja við yf-
irmenn á kránum okkar (dæmigert
breskt vinnuumhverfi) um kaup og
kjör. Þá voru fyrrverandi samninga-
menn frá verkalýðsfélögum fengn-
ir til að leika hlutverk viðsemjenda
okkar og það verður að viðurkenn-
ast að við höfðum lítið í þá að gera.“
Guðfinna segir að þetta hafi verið
frábær lífsreynsla. „Ég hafði ekki
búið erlendis áður. Það var mjög gef-
andi og lærdómsríkt að búa í svona
fjölþjóðlegu umhverfi en Birming-
ham er ein helsta innflytjendaborg
Bretlands.
Námið styrkti mig
Faglega séð hefur námið styrkt mig
í hlutverki mínu sem stjórnandi en
ég stýri upplýsingadeild Garða-
bæjar. Í mastersverkefninu náði ég
að samtvinna mannauðsstjórnun og
upplýsingamiðlun, sem hefur verið
mitt fag, með því að gera rann-
sókn á því hvernig starfsfólk upp-
lifir gæði innri upplýsingamiðlun-
ar hjá stórri breskri stofnun. Við
urðum sjálf að finna okkur „place-
ment“ hjá fyrirtæki eða stofnun og
vinna þar rannsókn sem yrði síðan
efni lokaritgerðarinnar. Upplýs-
ingamiðlun er eitt af þeim atriðum
sem hafa áhrif á það sem er kall-
að helgun starfsmanna sem aftur
hefur áhrif á frammistöðu þeirra
og stofnunarinnar í heild, þannig að
það er til mikils að vinna að vanda
þar til verka. Ég var svo heppin að
fá frábæran leiðbeinanda við gerð
lokaritgerðarinnar og að hafa með
hennar hjálp fengið tækifæri til að
kynna niðurstöður mínar á alþjóð-
legri mannauðsráðstefnu sem hald-
in var í Kanada í júní á þessu ári,“
greinir hún frá.
Eiginmaðurinn er rafmagns- og
tölvuverkfræðingur og vinnur við
forritun. „Vinnuveitendur hans voru
svo almennilegir að leyfa honum að
taka tölvuna með sér og vinna í fjar-
vinnu. Yngri sonur minn og kær-
astan hans sem voru þá 18 ára voru
hjá okkur frá ágúst og fram í miðj-
an desember. Eldri sonur minn varð
eftir til að geta byrjað sitt nám í Há-
skóla Íslands. Við leigðum okkur
lítið raðhús á almennum markaði
svo það var ekkert vandamál. Það
tók mig reyndar um 50 mínútur að
komast í og úr skólanum með strætó
en það vandist fljótt.“
Vel tekið af samnemendum
Guðfinnu var vel tekið af samnem-
endum sem voru sextán og komu
frá tíu löndum. Hún segist hafa
verið langelst í hópnum en það
truflaði aldrei. „Ég vakti mikla
athygli fyrir að vera Íslendingur
en Bretar eru gríðarlega spennt-
ir fyrir Íslandi. Það var frábær
reynsla að búa í Birmingham og
upplifa það fjölbreytta mannlíf sem
þar er, til dæmis eru mjög margir
innflytjendur frá Indlandi og Pak-
istan og indverskir veitingastað-
ir á öðru hverju horni sem okkur
fannst frábært. Við bjuggum í frið-
sælu íbúðahverfi í suðurhluta borg-
arinnar og höfðum ekta breskan
pöbb í tveggja mínútna göngufjar-
lægð frá heimilinu svo við upplifð-
um líka þá stemningu. Fólkið sem
við kynntumst er auðvitað líka of-
arlega í okkar huga. Ég var svo
heppin að eignast tvær góðar vin-
konur sem ég hef haldið sambandi
við. Við upplifum sterk tengsl við
borgina eftir þessa dvöl og ég fæ
ákveðna „heimþrá“ við að hugsa til
hennar.
Gífurlega lærdómsríkt
Hvað varðar námið sjálft stendur
vinnan við lokaverkefnið upp úr.
Ég gerði bæði rafræna spurninga-
könnun og stýrði tveimur fókushóp-
um sem ræddu málefnið sem var
gífurlega lærdómsríkt.“
Guðfinna segist mæla með því
að fólk láti drauma sína rætast.
„Ef fólk hefur tækifæri til þess
mæli ég hiklaust með því. Þetta
var önnur mastersgráðan sem ég
næ mér í eftir að ég byrjaði að
vinna hjá Garðabæ. Þá fyrri, sem
er í opinberri stjórnsýslu, kláraði
ég frá Háskóla Íslands árið 2006.
Það nám tók ég með fullri vinnu
sem er auðvitað mikið álag en líka
skemmtilegt. Bæði þá og í náminu
úti upplifði ég hvað það er gaman
að fara í nám þegar maður er kom-
inn með reynslu úr atvinnulífinu og
getur þannig tengt saman fræðin
og praktíkina.“
Útskriftin var í janúar 2016. “Það gladdi mig mikið hvað stjórnendur stofnunar-
innar sem ég vann rannsóknina hjá virtust ánægðir með mína vinnu og auðvitað
líka allur sá stuðningur og hvatning sem ég fékk frá leiðbeinandanum í gegnum allt
ferlið,” segir guðfinna.
guðfinna til vinstri með vinkonum sínum, þeim neenu og Cauline, á stúdenta-
barnum við skólann.
lét drauminn rætast og fór í nám
guðfinna björk Kristjánsdóttir hefur starfað sem upplýsingafulltrúi Garðabæjar í fjórtán ár. Hún upplifði þörf til að breyta aðeins til og
ákvað að sækja um námsleyfi og láta gamlan draum rætast, að fara í nám og búa um tíma í öðru landi og fór til Bretlands í háskólanám.
BÓKLEGT ÖKUNÁM Á NETINU
ÞÚ LÆRIR ÞEGAR ÞÉR HENTAR
OG Á ÞEIM HRAÐA SEM ÞÉR HENTAR
OPIÐ ALLAN SÓLAHRINGINN
Netökuskólinn hefur það að markmiði að bjóða
uppá bóklegt nám með áherslu á gæði og gott verð.
netokuskolinn.is
elín
albertsdóttir
elina@365.is
SKólar og nÁmSKeið Kynningarblað
8. ágúst 20162
0
8
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
3
1
-F
E
3
0
1
A
3
1
-F
C
F
4
1
A
3
1
-F
B
B
8
1
A
3
1
-F
A
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K