Fréttablaðið - 27.09.2016, Qupperneq 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 2 8 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 2 7 . s e p t e M b e r 2 0 1 6
26. nóvember kl. 20.00
Jólatónleikar í Grafarvogskirkju
Miðala á miði.
Fréttablaðið í dag
sKOðun Jón Sigurðsson skrifar
um aflandsreikninga. 12
spOrt Ætla að endurheimta
gullið á Evrópumótinu í hópfim-
leikum. 14
tÍMaMót Kvennakór Reykja-
víkur stóð sig með
prýði í alþjóðlegri
kórakeppni. 16
lÍfið Götutískan
olli engum von-
brigðum á
tískuvikunni
í London
sem lauk í
gær. 24
plús 2 sérblöð l fólK
l vörubÍlar Og vinnuvélar
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
HeilbrigðisMál Taka á mikla fjár-
muni út úr heilsugæslustöðvum
sem reknar eru af opinbera kerfinu
á höfuðborgarsvæðinu til að greiða
fyrir einkavæðingu heilsugæslukerfis-
ins. Þetta er mat Ófeigs Tryggva Þor-
geirssonar, svæðisstjóra og fag stjóra
lækninga hjá Heilsugæslunni í Grafar-
vogi. Hann sér fram á að skera niður
um sextíu milljónir í þegar fjársveltu
kerfi. Hann telur að féð fari í að fjár-
magna einkareknar stöðvar, og segist
óttast meiri þynningu á þjónustu í
kjölfar þess.
Verið er að breyta fjármögnun
heilsugæslustöðva á höfuðborgar-
svæðinu og einkavæða kerfið að
hluta. Opna á tvær nýjar heilsugæslu-
stöðvar og taka upp nýtt greiðslu-
fyrirkomulag þar sem fjármagn á að
fylgja skjólstæðingum að sænskri
fyrirmynd. Þetta á að tryggja réttlát-
ari dreifingu rekstrarfjár til starfsemi
heilsugæslustöðva.
„Ríkið gerir kröfulýsingu um starf-
semina og borgar stofnkostnaðinn,
einkaaðilar reka svo starfsemina á
sínum forsendum,“ segir Ófeigur.
„Það sem við höfum verulegar
áhyggjur af, eftir að hafa séð fyrstu
útreikninga, er að það sé ekki að
koma fé inn í heilsugæsluna til að
standa undir þessum breytingum,
það eigi eingöngu að dreifa fénu á
fleiri staði. Þetta þýðir niðurlagningu
starfa í kerfi sem nú þegar er búið að
tálga inn að beini, sem er fullkomlega
óásættanlegt,“ segir Ófeigur. Ófeigur
telur að þetta muni vinna þvert á
endurreisn heilsugæslustöðvanna
undanfarið ár, og muni auka álag á
spítalana aftur.
Í svari velferðarráðuneytisins við
fyrirspurn um þetta mál segir að í fjár-
lögum ársins 2016 hafi verið miðað
við að tvær til þrjár nýjar heilsu-
gæslustöðvar tækju til starfa undir
lok þessa árs og var gert ráð fyrir fjár-
mögnun þeirra í þrjá mánuði 2016.
Þau áform frestuðust. Tvær nýjar
stöðvar taka til starfa 1. febrúar árið
2017. Það reyni því ekki á fjármögnun
vegna þeirra fyrr en þá. Í tengslum við
breytingar á heilsugæslu höfuðborg-
arsvæðisins og innleiðingu á nýju
greiðsluþátttökukerfi kom fram vilji
til að styrkja heilsugæsluna um 300 til
400 milljónir króna á næsta ári. Nýtt
kerfi miðist við að stöðvar fái greitt
fyrir þá þjónustu sem þær veiti og
því verði allar stöðvarnar jafnsettar
þegar kemur að fjármögnun þeirra,
óháð rekstrarformi.
saeunn@frettabladid.is
Óttast að heilsugæslustöðvar
verði fjársveltar með einokun
Svæðis- og fagstjóri lækninga hjá Heilsugæslunni í Grafarvogi segir heilsugæslustöðvar sjá fram á verulegan
niðurskurð vegna nýs greiðslufyrirkomulags. Hann segir að verið sé að einkavæða kerfið með því að þynna
út fjármögnun heilsugæslustöðva. Vilji er til að styrkja heilsugæsluna um 300-400 milljónir á næsta ári.
Þetta þýðir niður-
lagningu starfa í
kerfi sem nú þegar er búið að
tálga inn að
beini.
Ófeigur Tryggvi Þor-
geirsson, fag stjóri
lækninga hjá Heilsu-
gæslunni í Grafarvogi
saMfélag Geir Þorsteinsson, for-
maður KSÍ, segir að sambandið
hafi reiknað með auknum launa-
kostnaði í kringum Evrópumótið í
fótbolta, hvort sem það yrðu ráðnir
fleiri starfsmenn eða núverandi
starfsmenn fengju aukamánuð
greiddan vegna álags sem fylgdi
mótinu. Í gær sagði Fréttablaðið
frá því að KSÍ hefði samþykkt að
greiða formanninum einnig slíkar
greiðslur. „Ég gerði tillöguna um
launauppbótina og síðar bar Gylfi
[Orrason, formaður fjárhags-
nefndar KSÍ, innsk. blm.] upp til-
lögu um formanninn. Þá vék ég af
fundinum. Ég gat ekki borið fram
tillögu um sjálfan mig,“ segir Geir.
„Heimildirnar fyrir þessum greiðsl-
um eru í fjárhagsáætlun sambands-
ins frá ársþinginu,“ sagði hann. - bbh
Gert var ráð
fyrir auknum
launakostnaði
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra pússar gleraugun á meðan eldhúsdagsumræður fóru fram á Alþingi í gær. Töluvert var rætt um heilbrigðis-
mál í ræðum stjórnarandstöðunnar og jafnvel sagt að Kristján sæi ekki vandamálin. Þá er allavega gott að eiga hrein gleraugu. fréttablaðið/eyÞór
2
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:5
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
B
2
-7
F
8
4
1
A
B
2
-7
E
4
8
1
A
B
2
-7
D
0
C
1
A
B
2
-7
B
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K