Fréttablaðið - 27.09.2016, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 27.09.2016, Blaðsíða 10
Stórhöfða 31 ∆ 110 Reykjavík ∆ sími 569 3000 ∆ stafir@stafir.is stafir.is Aukaársfundur um sameiningarmál Stafir lífeyrissjóður boðar til aukaársfundar á Grand hóteli Reykjavík fimmtudaginn 29. september 2016 kl. 16. Lögð verður fram á fundinum tillaga um sameiningu Stafa lífeyrissjóðs og Sameinaða lífeyrissjóðsins til umræðu og síðan atkvæðagreiðslu. Stjórn Stafa lífeyrissjóðs PI PA R\ TB W A • S ÍA Gleraugnaverslunin þín MJÓDDIN Sími 587 2123 FJÖRÐUR Sími 555 4789 SELFOSS Sími 482 3949 15-50% afsláttur af umgjörðum ÚTSALA Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Samgöngur Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar í síðustu viku var lögð fram harðorð bókun um Snæfells- nesveg, sem er milli Hörðudals og Stykkishólmsvegar. „Sveitarstjórn Dalabyggðar krefst þess að Alþingi og ríkisstjórn vakni af þyrnirósar- svefni og setji verulega aukið fjár- magn til samgöngumála þannig að íbúar landsins og gestir geti ferðast um landið með þokkalega öruggum hætti. Ekki ætti að þurfa að stofna til nýrra gjaldstofna þar sem álögur á eldsneyti og farartæki eru þegar skýjum ofar,“ segir þar meðal annars. Vegurinn er 60 km langur malar- vegur og tengir saman Snæfellsnes og Dali. Á fundinum voru kynntar umferðartölur Vegagerðarinnar þar sem kom fram að sumardagsumferð sé allt að 160 prósentum meiri nú en árið 2010. Þá voru upplýsingar frá lögreglu einnig kynntar en á árinu eru skráð 14 umferðaróhöpp þar sem 21 einstaklingur var fluttur með sjúkrabíl á heilbrigðisstofnun. Í 12 af þessum 14 óhöppum áttu erlendir ferðamenn í hlut. Þá hefur í 18 til- vikum þurft að sækja skemmda bíla með dráttarbílum. Á veginum eru 14 einbreiðar brýr, margar blindhæðir og krappar beygjur. Í tölvupósti vegamálastjóra til íbúa á Skógar- strönd fyrr á árinu kemur fram að Vegagerðin hafi ekkert fjármagn í aðgerðir við veginn og endurbygging hans sé ekki á neinum áætlunum. – bbh Dalabyggð vill að ríkið vakni af þyrnirósarsvefni Alls eru 14 einbreiðar brýr á veginum og margar blindhæðir. frettAblAðið/Pjetur Húnaþing Með núverandi fyrirkomu- lagi lögreglunnar á Norðurlandi vestra er lögreglan að varpa ábyrgð yfir á aðra viðbragðsaðila og stefnir öryggi íbúa á svæðinu í hættu. Þetta er mat Geirs Karlssonar, yfirlæknis Heil- brigðisstofnunar Norðurlands vestra á Hvammstanga. Geir ritaði lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra og innanríkis- ráðuneytinu bréf þar sem hann fer yfir áhyggjur sínar af staðsetningu lög- reglumanna á svæðinu. Í ágúst þurfti að bíða eftir lögreglu í tvær klukku- stundir þegar maður lést er bifreið fór í höfnina á Hvammstanga vegna þess að lögreglan var við æfingar á Sauðárkróki. „Mér finnst það algerlega óásættan- leg staða hvort sem er fyrir íbúa svæð- isins eða viðbragðsaðila hér að þurfa að bíða svo lengi eftir aðstoð lögreglu þegar mikið liggur við,“ segir Geir. Björn Pálsson, lögreglustjóri Norð- urlandsumdæmis vestra, segir það rétt að öryggi íbúa á Hvammstanga sé ekki það sama og annarra. „Já, ef við horfum á þetta sem ein- hvers konar gæði, og kannski er rétt að hugsa það svo, þá er þeim misskipt í þessu eins og öðru, til dæmis fjar- lægð frá spítala,  lækni og svo fram- vegis,“ segir Páll. „Staðsetning okkar manna er reglulega í skoðun en engin afgerandi ákvörðun hefur verið tekin um breytingu á henni. Það eru margir þéttbýlisstaðir, bæði hér í þessu umdæmi og annars staðar, sem búa við svipaðar aðstæður.“ Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitar- stjóri Húnaþings vestra, segir marga íbúa finna fyrir öryggisleysi og er sammála Geir yfirlækni um að öryggi þeirra sé stefnt í hættu. „Ég er sammála yfirlækni og get staðfest að þetta er upplifun margra íbúa. Þá veldur fjar- vera lögreglu auknu álagi og þjónustu- þyngd á fjölskyldudeild Húnaþings vestra. Íbúar upplifa varnarleysi, bið eftir lögreglu er það löng að eftir að hringt er þá getur margt gerst meðan beðið er, sem kallar síðar á áfallahjálp og sálræna úrvinnslu,“ segir Guðný Hrund. sveinn@frettabladid.is Íbúar Húnaþings í meiri hættu en aðrir Yfirlæknir Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga segir íbúa svæðisins í meiri hættu vegna fjarlægðar við lögregluþjóna á vakt. Viðbragðstími lögreglu er allt að tvær klukkustundir og segir sveitarstjóri að íbúar finni fyrir óöryggi. lítið öryggi er að búa á Hvammstanga. Þar finna íbúar fyrir öryggisleysi samkvæmt sveitastjóranum og yfirlækni sem ritaði lögreglu bréf eftir hörmulegt slys í ágúst. Bandaríkin Barack Obama Banda- ríkjaforseti lýsti í gær miklum áhyggjum af ástandinu í sýrlensku borginni Aleppo. Eins og stendur fara uppreisnarmenn með völdin í meiri- hluta borgarinnar en stjórnarherinn situr um borgina. Obama sagði sjúkraliða eiga erfitt með að ráða við þann mikla fjölda borgara sem særðir eru og anna þeir því ekki eftirspurn. Þá sagði hann blóð til gjafar sem og lyf nærri á þrotum eftir þriggja vikna umsátur stjórnar- hersins. Einnig lýsti hann yfir áhyggj- um af því að vatn væri af skornum skammti eftir loftárás á dælustöð. „Það sem við höfum séð frá ríkis- stjórn Assads [Sýrlandsforseta] og bandamönnum þeirra Rússum er ákveðin herferð gegn óbreyttum borgurum. Sprengjum er varpað á þá þar til þeir gefast upp og hlýða,“ sagði talsmaður forsetans, Josh Earnest, í gær. - þea Lýsir áhyggjum af Aleppo 2 7 . S e p t e m B e r 2 0 1 6 þ r i Ð J u d a g u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a Ð i Ð 2 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :5 2 F B 0 7 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A B 2 -D 3 7 4 1 A B 2 -D 2 3 8 1 A B 2 -D 0 F C 1 A B 2 -C F C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 0 7 2 s _ 2 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.