Fréttablaðið - 27.09.2016, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 27.09.2016, Blaðsíða 31
Atvinnutækjadeild Volvo tilheyra fjögur fyrirtæki; Volvo Trucks, Volvo CE, Volvo Bus, Volvo Penta og Renault Trucks. Volvo Trucks höndlar eins og nafnið gefur til kynna með vörubíla, Volvo CE með vinnuvélar, Volvo Bus með rútur, Volvo Penta með bátavélar og síð- ast en ekki síst eru það atvinnu- bílar frá Renault Trucks. Atvinnu- tækjadeildin flytur í nýtt húsnæði í lok næsta árs og binda menn mikl- ar vonir við það. „Nýverið fengum við úthlutaða lóð að Hádegismóum, við hliðina á Morgunblaðshúsinu. Við gengum til samninga við Loft- orku og eru jarðvegsframkvæmd- ir þegar hafnar og í framhaldi hefj- ast byggingaframkvæmdir og við sjáum fram á að þeim ljúki í lok árs og við getum þá flutt inn í lok þess næsta,“ segir Kristinn Már Emils- son, framkvæmdastjóri atvinnu- tækjasviðs Brimborgar. Við flutningana stækkar aðstað- an umtalsvert. „Verkstæðisrýmið verður stærra auk þess sem öll að- koma og aðstaða á útisvæðinu verð- ur rýmri,“ segir Kristinn. Flutningarnir munu líka skapa umtalsvert hagræði. „Í dag er sölu- deildin okkar og varahlutadeildin á einum stað og verkstæðis móttakan á öðrum. Í Hádegis móum verður allt á einum stað. Þá ætlum við að bæta við hraðþjónustu og dekkjaverkstæði svo eitthvað sé nefnt og við það þurfum við eðli málsins samkvæmt að bæta við okkur mannskap. Við flutningana verða sömuleiðis skarpari skil á milli atvinnutækja- og fólksbíla- hluta Brimborgar.“ En hvernig er starfsemi atvinnu- tækjadeildarinnar almennt háttað? „Við erum að þjónusta þau atvinnu- tæki sem við seljum og viljum fyrst og fremst líta á okkur sem þjón- ustufyrirtæki. Starfsemin skiptist í söludeild nýrra og notaðra atvinnu- tækja, sölu á varahlutum tengdum atvinnutækjum og tvískipt verk- stæði. Annars vegar Volvo vöru- bílar og rútur og hins vegar Volvo vinnuvélar og bátavélar, en á síðar- nefnda sviðinu er meira unnið úti á vettvangi. Í því skyni erum við með mjög vel útbúna verkstæðisbíla sem geta farið á staðinn og þjón- ustað viðkomandi tæki en þannig má oft komast hjá því að flytja þau á verkstæði,“ útskýrir Kristinn. Volvo er að sögn Kristins traust merki en fyrirtæk- ið leggur gríðar lega áherslu á um- hverfismál, öryggi og gæði. Krist- inn segist vissulega finna fyrir uppsveiflunni í tengslum við auk- inn ferðamannastraum til lands- ins en sala á rútum er þó svipuð og í fyrra. „Við erum búnir að selja fjórar rútur það sem af er ári og eru menn ánægðir með þær. Þá höfum við átt einhverja bíla á lager og höfum nú hjá okkur Volvo 9900 á lager. Þetta er einstaklega glæsi- legur 49 sæta bíll í sérstakri VIP útgáfu. Þeir sem eru að svipast um eftir rútu ættu ekki að láta hann fram hjá sér fara.“ Kristinn segir kúltúrinn hjá Volvo mjög góðan og fer framleiðsl- an eftir ströngustu gæðastöðlum. „Frændur okkar hjá Volvo í Sví- þjóð hafa líka stutt vel við bakið á okkur sem gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum okkar fyrsta flokks þjónustu,“ segir Kristinn en starfsmenn deildarinnar eru ein- mitt nýkomnir úr vettvangsferð í verk smiðju Volvo Trucks í Gauta- borg. „Við fórum í Volvo safnið, þjálf- unarsetrið og verksmiðjuna en það kemur mönnum alltaf jafn mikið á óvart hvað allt er skipu- lagt og hreint. „Menn sjá eflaust fyrir sér að vörubílaverksmiðja sé full af skít og drullu en þarna sést ekki ryk á gólfi. Allt fer eftir ströngustu ferlum og hver íhlutur í bílana kemur á fyrirfram ákveðn- um tíma. Bílarnir líða svo fumlaust eftir færibandinu og fyrr en varir eru þeir tilbúnir til afhendingar.“ Um næstu helgi fer Iceland Fish ing Expo fram í Laugardals- höll, þar verður Brimborg með glæsilegan Volvo Penta sýningar- bás þar sem hægt verður að kynna sér bátavélaframleiðsluna í þaula. „Í tilefni sýningarinnar erum við með tilboð á Volvo Penta vélbún- aði og varahlutum í september,“ segir Kristinn og vonar að sem flestir nýti sér tilboðið og líti inn á sýninguna. Nánari upplýsingar er að finna á volvotrucks.is, volvoce.is, volvobus.is og volvopenta.is í síma 515-7070. Spennandi tímar fram undan  Brimborg hefur verið með umboðið fyrir Volvo á Íslandi síðan 1988. Volvo atvinnutækjadeildin er fjórskipt og höndlar með allt frá vörubílum til bátavéla. Deildin mun flytjast á næstu misserum af Bíldshöfða í nýtt og stærra húsnæði að Hádegismóum. Við flutningana í Hádegismóa mun skapast umtalsvert hagræði og verður hægt að veita enn betri þjónustu. MYNDIR/GVA „Við lítum fyrst og fremst á okkur sem þjónustufyrirtæki,“ segir Kristinn. Volvo 9900 49 sæta VIP hópferðabifreið. Nánari upplýsingar er að finna á volvotrucks.is, volvoce.is, volvobus.is, volvopenta.is og í síma 515-7070. Kynningarblað VöRuBílAR oG VINNuVélAR 27. september 2016 13 2 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :5 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A B 2 -C 9 9 4 1 A B 2 -C 8 5 8 1 A B 2 -C 7 1 C 1 A B 2 -C 5 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 7 2 s _ 2 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.