Fréttablaðið - 27.09.2016, Síða 40

Fréttablaðið - 27.09.2016, Síða 40
Fish and Chips vagninn hóf starf- semi vorið 2015, hann var þá fluttur til landsins frá Bretlandi, glænýr og sérhannaður fyrir svona veitingasölu. „Við keyptum vagninn í vor og ætlum að vera með opið út september. Þar sem allra veðra er von er kannski ekki heppilegt að standa úti og borða yfir veturinn,“ segir Árni. „Hins vegar hafa Íslendingar verið dug- legir að koma til okkar og taka matinn með sér heim eða í vinnu. Þeir eru duglegir að koma á mat- artímum til okkar, útlendingar koma allan daginn og á kvöldin. Það er mjög líflegt og skemmti- legt fólk sem fær sér fisk og franskar,“ segir Árni. Hann leggur mikla áherslu á ferskt og gott hráefni. Hann rekur fiskútgerð og vinnslu ásamt fjölskyldu sinni og fisk- urinn er því ávallt framreiddur nýveiddur. „Við steikjum fiskinn og franskar alveg eins og Bret- ar gera þetta best. Margir Bret- ar hafa komið til okkar og segj- ast aldrei hafa fengið svona góðan mat. Það er mikið hrós þar sem fiskur og franskar er þjóðarrétt- ur þeirra. Síðan látum við fram- leiða fyrir okkur þrjár gerðir af mjög góðum sósum sem passa vel með. Á góðviðrisdögum er oft löng biðröð hjá okkur.“ Árni segist hafa stokkið á þennan rekstur þegar hann vissi að vagninn væri til sölu. „Fjöl- skyldunni þótti passa vel að reka svona stað með fram útgerðinni. Við erum með línuþorsk sem við veiðum og verkum. Okkur fannst þetta skemmtileg viðbót sem hefur heppnast mjög vel. Vagninn stendur á bak við Slippinn, rétt hjá Sjóminjasafninu, við Hlés- götu sem gengur út frá Geirsgötu. Árni og fjölskylda hans hafa rekið Fiskkaup á Granda í meira en fjörutíu ár. Árni segir að veit- ingavagnar með fish and chips séu algengir í Bretlandi. „Þetta er líka vinsæll matur hér á landi og við erum oft beðin um að koma í fyrir tæki eða veislur. Við höfum ekki gert það þar sem fólk þekk- ir okkur á þessum ákveðna stað. Hins vegar væri grundvöllur fyrir fleiri vagna hér á landi,“ segir hann. Nú fer hver að verða síðastur að smakka fisk og franskar hjá Árna því síðasti opnunardagur sumarsins er á föstudag. Þá fer vagninn í geymslu þar til vorið kemur á ný. Við steikjum fiskinn og franskar alveg eins og Bretar gera þetta best. Margir Bretar hafa komið til okkar og segjast aldrei hafa fengið svona góðan mat. Það er mikið hrós þar sem fiskur og franskar er þjóðarréttur þeirra. Árnir Rudolf Elín Albertsdóttir elin@365.is Árni Rudolf í Fish and Chips vagninum sem brátt verður lokað og settur í geymslu. MYND/ANTON BRINK Fiskur og franskar vinsæll biti Áhugi fólks hefur aukist mikið á svokölluðu „street food“ sem hefur lengi tíðkast víða um heim. Árni Rudolf hefur rekið Fish and Chips vagninn við Vesturbugt ásamt fjölskyldu sinni frá því í vor. Hann segir mikinn áhuga á fiski og frönskum hér á landi. Pallbílar eru og hafa ávallt verið afar vinsælir í Bandaríkjunum. Eins og fjöldamörg undanfarin ár eru Ford F-pallbílarnir langvinsælast- ir pallbíla. Þá er Ford F einnig sölu- hæsti bíll Bandaríkjanna og hefur verið árum saman. Núverandi kynslóð Ford F lín- unnar er sú 13. síðan 1948 og sú vinsælasta til þessa. Söluaukning- in fyrstu sjö mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra varð 8,8 prósent. Hér er listi yfir 15 vinsælustu bílana í Bandaríkjunum. Þrír efstu eru pallbílar, í 4.-11. sæti eru fólks- bílar, jeppar og jepplingar sem eru japanskir að uppruna. Bílarnir í 12. til 15. sæti eru bandarískir. 1. Ford F-lína 2. Chevrolet Silverado 3. Ram Pickup 4. Toyota Camry 5. Honda Civic 6. Toyota Corolla 7. Honda Accord 8. Toyota RAV4 9. Nissan Altima 10. Honda CR-V 11. Nissan Rouge 12. Ford Escape 13. Ford Fusion 14. Ford Explorer 15. Chevrolet Equinox Heimild: www.fib.is F pallbíllinn vinsælastur Startarar og alternatorar Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar. Varahluta og viðgerðaþjónusta, gerum föst verðtilboð í viðgerðir Bíldshöfða 14 sími 553-1244 55ár í þjónustu við bíleigendur! ljosboginnehf@simnet.is ljosbogi n@ljosboginn.is Startarar og alternatorar Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar. Varahluta og viðgerðaþjónusta, gerum föst verðtilboð í viðgerðir Bíldshöfða 14 sími 553-1244 55ár í þjó tu við bíleigendur! ljosboginnehf@simnet.is Startar r og rnatorar Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar. Höfum innig varahluti í alternatora og startara Verktakar, Iðnaðarmenn, Húsbílaeigendur Vorum að fá nýja sendingu af vinnuvéladekkjum og vörubíladekkjum, búkolludekk-hjólaskófludekk ofl, höfum einnig boddýhluti og ljós fyrir vörubíla. Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík s: 696 1050 • okspares@okspares.is Eigum til á lager hljóðlátar og handtækar rafstöðvar frá 0.7KVA upp í 3 KVA. Getum einnig útvegað rafstöðvar frá 6 til 1000 KVA. Startarar og alternatorar Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar. Varahluta og viðgerðaþjónusta, gerum föst verðtilboð í viðgerðir Bíldshöfða 14 sími 553-1244 55ár í þjónustu við bíleigendur! ljosboginnehf@simnet.is ljosbogi n@ljosboginn.is Startarar og alternatorar Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar. Varahluta og viðgerðaþjónusta, gerum föst verðtilboð í viðgerðir Bíldshöfða 14 sími 553-1244 55ár í þjó tu við bíleigendur! ljosboginnehf@simnet.is Startar r og rnatorar Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar. Höfum innig varahluti í alternatora og startara Verktakar, Iðnaðarmenn, Húsbílaeigendur Vorum að fá nýja endingu af vinnuvéladekkjum og vörubíladekkjum, búkolludekk-hjólaskófludekk ofl, höfum einnig boddýhluti og ljós fyrir v rubíla. Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík s: 696 1050 • okspares@okspares.is Eigum til á lager hljóðlátar og handtækar rafstöðvar frá 0.7KVA upp í 3 KVA. Getum einnig útvegað rafstöðvar frá 6 til 1000 KVA. Startarar og alte natorar Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar. Varahluta og viðgerðaþjónusta, gerum föst verðtilboð í viðgerðir Bíldshöfða 14 sími 553-1244 55ár í þjónustu við bíleigendur! ljosboginnehf@simnet.is ljosbogi n@ljosboginn.is Startarar og alternatorar Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar. Varahluta og viðgerðaþjónusta, gerum föst verðtilboð í viðgerðir Bíldshöfða 14 sími 553-1244 55ár í þjó tu við bíleigendur! ljosboginnehf@simnet.is Startar r og rnatorar Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla o vi nuvélar. Höfum innig varahluti í alternatora og startara Verktakar, Iðnaðarmenn, Húsbílaeigendur Vorum að fá nýja sendingu af vinnuvéladekkjum og vörubíladekkjum, búkolludekk-hjólaskófludekk ofl, höfum einnig boddýhluti og ljós fyrir vörubíla. Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík s: 696 1050 • okspares@okspares.is Eigum til á lager hljóðlátar og handtækar rafstöðvar frá 0.7KVA upp í 3 KVA. Getum einnig útvegað rafstöðv r frá 6 til 1000 KVA. Eigum til á lager hljóðlátar og handtækar rafstöðvar frá 0.7KVA upp í 3 KVA. Getum einnig útvegað rafstöðvar frá 6 til 1000 KVA. Verktakar, Iðnaðarmenn, Húsbílaeigendur Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík • s: 696 1050 • okspares@okspares.is Vorum að fá nýja sendingu! Vinnuvéladekk og vörubíladekk, búkolludekk-hjólaskófludekk ofl. Höfum einnig boddýhluti og ljós fyrir vörubíla. Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík • s: 696 1050 • okspares@okspares.is Vorum að fá nýja sendingu! Bjóðum tilboðsverð á ýmsum stærðum af vinnuvéladekkjum meðan birðir endast VöRuBílAR Og VINNuVélAR Kynningarblað 27. september 201622 2 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :5 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A B 2 -B 5 D 4 1 A B 2 -B 4 9 8 1 A B 2 -B 3 5 C 1 A B 2 -B 2 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 7 2 s _ 2 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.