Fréttablaðið - 27.09.2016, Page 70

Fréttablaðið - 27.09.2016, Page 70
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is L istamaðurinn Philippe Clause flutti til Reykja-víkur frá heimaborg sinni, París, árið 2006. Sex árum síðar flutti hann aftur, þá til Seyðisfjarðar þar sem hann hefur búið síðan. Á Seyðisfirði rekur Philppe litla pop-up verslun og opna vinnustofu sem er starfrækt yfir sumartímann. Nýjasta verkefni hans er aftur á móti the Scent Bank þar sem hann reynir að fanga ilm Seyðisfjarðar í flöskur fyrir aðra til að njóta. „Verkefnið gengur út á það að fanga ilminn úr firðinum: af sjónum, fjöllunum og nánasta umhverfi og setja á flöskur,“ útskýrir Philippe. Í sumar safnaði hann fjölda jurta sem hann hefur notað til eimingar og er afrakstur- inn ilmblanda sem hann nefnir Blær. „Ilmurinn er ekki alveg tilbúinn. Þetta er verk í vinnslu. En það er hægt að kaupa prufur af Blæ í vinnustofu minni á Seyðis- firði sem fólk getur þá notað til að fríska upp á heimilið eða notað sem húðmistur á sjálft sig. Prufurnar eiga að gefa fólki nasa- þefinn af því sem koma skal,“ segir hann og hlær. Hann tekur fram að hann taki því fagnandi þegar við- skiptavinir gefi honum álit sitt á ilminum eða komi með tillögur að „ilmi Seyðisfjarðar“ því svo víð- tækt hugtak sé upplifunum háð. Annar vinkill verkefnisins, segir hann, er að kanna hvernig rækta Fangar ilm Seyðisfjarðar og setur hann á flöskur Philippe Clause er franskur listamaður búsettur á Seyðisfirði. Nýj- asta verkefni hans, The Scent Bank, er tilraun til að fanga ilm Seyðis- fjarðar í flöskur fyrir aðra til að njóta. Ilminn nefnir hann Blær. The Scent Bank er verkefni listamannsins Philippe Clause. Listamaðurinn Philippe Clause vinnur að því að þróa ilm sem mun fanga anganina sem einkennir Seyðisfjörð. megi plöntur á sem sjálfbærastan hátt á stað þar sem engan jarð- varma er að finna. „Mér fannst áhugavert að kanna hvernig rækta megi plöntur á sjálfbæran hátt í jafn miskunnarlausu umhverfi og þessu, þar sem er enginn jarð- varmi og vetur eru snjóþungir og dimmir. Ég hef verið að prófa mig áfram með rakatæki sem nærir rætur plantna með því að fram- leiða gufu, það hefur virkað ágæt- lega hingað til.“ Í vetur hyggst hann þróa verk- efnið áfram og ætlar meðal annars að reyna að fanga ilminn af dýralíf- inu í firðinum. „Þetta er langt ferli sem tekur tíma að vinna. Í vetur ætla ég að kynna mér enn frekar ilmvatnsgerð, þróa Blæ áfram og safna prufum í næsta ilm,“ segir hann að lokum. sara@frettabladid.is VerkeFnið gengur út á það að Fanga ilminn úr Firðinum: aF Sjónum, Fjöllunum og nánaSta umhVerFi og Setja á FlöSkur 2 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r26 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð 2 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :5 2 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A B 2 -9 3 4 4 1 A B 2 -9 2 0 8 1 A B 2 -9 0 C C 1 A B 2 -8 F 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 2 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.