Fréttablaðið - 27.09.2016, Page 72

Fréttablaðið - 27.09.2016, Page 72
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Bakþankar Tvennt hefur gerst upp á síð­kastið sem kennir okkur hvernig tæknikratakjaftæði virkar, en það er skilvirkasta aðferð stjórnmálamanna í dag. Hið fyrra var þegar bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar sagði að „mistök í afgreiðslu á [þessum] upplýsingum“ hefðu orðið til þess að Flateyringar voru ekki látnir vita að vatn þeirra væri mengað. Svona málflutningur myndi kannski halda saurgerla­ menguðu vatni ef um væri að ræða höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York en ekki litla ráðhúsið á Ísafirði. Með álíka stjórnsýslu er kannski ástæða fyrir Flateyringa að vakna snemma á morgnana og athuga hvort skólinn sé ekki örugglega enn þá í þorpinu. Hið síðara var þegar Jón Gunnars­ son sagði langa og flókna sögu af ferlum og nefndum þar sem einu skynsamlegu sögulokin yrðu að vera þau að samþykkja nýtingarflokk rammaáætlunar. Til allrar hamingju var hann stoppaður af þegar hann ætlaði að stinga upp í viðmælanda sinn, sem var honum ósammála, með þeim rökum að hún væri ekki nógu vel upplýst. Allt of margir stjórnmálamenn virðast vilja gefa okkur þá sýn á stjórnmálin að þau séu tæknikratísk maskína, þangað sem mál eru sett inn og þegar þau koma út eru þau orðin að vilja þeirra sem auðinn og völdin hafa. Þetta á að líta út eins og náttúru­ lögmál. Stórfyrirtækin verða sterkari, náttúran mengaðri, þeir sem berjast í bökkum verða umkomulausari og þeir sem skilja þetta ekki verða allt í einu illa að sér. Þess vegna er ekki hægt að breyta stjórnarskránni, koma auðlindum í eigu þjóðarinnar, bæta kjör hinna launalægstu, stoppa stór­ iðjubrjálæði og hætta að soga máttinn úr minni byggðum. Þess vegna ræða stjórnmálamenn heldur ekki lengur hugsjónir. Tannhjól í maskínu þarf jú ekki haus. En ég ætla að fara að for­ dæmi Bjartar Ólafsdóttur, ég sit ekki undir þessu tæknikratakjaftæði. Tæknikrata­ kjaftæði OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA 2 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :5 2 F B 0 7 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A B 2 -7 F 8 4 1 A B 2 -7 E 4 8 1 A B 2 -7 D 0 C 1 A B 2 -7 B D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 2 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.