Fréttablaðið - 05.09.2016, Page 6
Viðskiptavinir í Vildarþjónustu
Arion banka fá Leikhúskort
Þjóðleikhússins á sérstökum kjörum.
Kynntu þér málið á arionbanki.is
Dýrmæt upplifun
á góðu verði
Móðir Teresa dýrlingur
Frans páfi heilsar safnaðarbörnum sínum undir mynd af Móður Teresu en hún var í gær tekin í dýrlingatölu við hátíðlega athöfn í Páfagarði. Tug-
þúsundir voru viðstaddir athöfnina. Móðir Teresa var albönsk, fædd Agnes Gonxha Bojaxhiu, og stofnaði nunnuregluna Trúboðar kærleikans í
indversku borginni Kalkútta þar sem hún starfaði til dauðadags árið 1997. Fyrir starf sitt fékk hún friðarverðlaun Nóbels 1979. Nordicphotos/AFp
✿ Kjósendur í þing-
kosningaprófkjörum
Ár
Atkvæði
greidd
28. september 1970 9.271
1974 Ekki prófkjör
21. nóvember 1977 9.877
29. október 1979 11.637
29. nóvember 1982 8.155
18. október1986 6.546
26. október 1990 8.480
30. október 1994 7.297
1999 Uppstilling
23. nóvember 2002 7.499
29. október 2006 10.846
14. mars 2009 7.492
25. nóvember 2012 7.546
3.september 2016 3.430
ÞýsKAlAnd Alternative für Deutsc-
hland, flokkur þjóðernissinna í Þýska-
landi, fékk betri kosningu en Kristi-
legir demókratar, flokkur kanslarans
Angelu Merkel, í kosningum sam-
bandsríkisins Mecklenburg-Vorpom-
mern í gær, ef marka má útgönguspár.
Búist er við því að AfD hafi fengið
um 22 prósent atkvæða, flokkur jafn-
aðarmanna um þrjátíu prósent en
Kristilegir demókratar tæp tuttugu
prósent. Kristilegir demókratar hafa
aldrei fengið jafnslæma kosningu í
ríkinu.
Ríkið er heimaríki Merkel og velta
þýskir fjölmiðlar fyrir sér hvort þetta
bendi til kosningasigurs AfD í þing-
kosningum sem fara fram á næsta ári.
Kristilegir demókratar hafa með
Jafnaðarmannaflokknum farið með
stjórntaumana í Mecklenburg-Vor-
pommern síðasta kjörtímabil og því
ekki búist við að breyting yrði þar á.
Leif-Erik Holm, oddviti AfD í ríkinu,
var kátur í samtali við þýska fjölmiðla
í gær. „Kannski er þetta upphafið að
endalokum kanslaratíðar Angelu
Merkel,“ sagði hann. Holm byggði
kosningabaráttu sína á andstöðu við
flóttamannastefnu ríkisstjórnarinnar
og telur hann að Þjóðverjar taki á móti
of mörgum flóttamönnum. – þea
Þjóðernissinnar
stærri en
Kristilegir
demókratar
Angela Merkel
kanslari Þýska-
lands
stjórnmÁl Það er viðbúið að kosn-
ingaþátttaka í Alþingiskosningunum
í haust verði með versta móti. Þetta
segir Grétar Þór Eysteinsson prófessor
við Háskólann á Akureyri.
Tvö prófkjör Sjálfstæðisflokksins
fóru fram um helgina. Í sameiginlegu
prófkjöri fyrir Reykjavíkurkjördæmin
tvö lentu Ólöf Nordal og Guðlaugur
Þór Þórðarson í efstu tveimur sæt-
unum og í Norðvesturkjördæmi bar
þingmaðurinn Haraldur Benedikts-
son sigur úr býtum. Athygli vekur
að þátttaka í báðum prófkjörum
dregst mjög saman frá fyrri árum.
1.516 greiddu atkvæði í Norðvestur,
samanborið við rúmlega 2.700 fyrir
þingkosningarnar 2009, og í Reykja-
vík kusu 3.430. Þetta er versta kjör-
sókn í prófkjöri flokksins í Reykjavík
frá upphafi. Til samanburðar kusu ríf-
lega tvöfalt fleiri í prófkjöri flokksins í
nóvember 2012.
„Það sem af er undirbúningi þess-
ara kosninga þá hefur kjörsókn verið
dræm hjá þeim flokkum sem valið
hafa prófkjörsleiðina,“ segir Grétar
og bendir í því samhengi á prófkjör
Pírata. Þar tóku 1.319 þátt og kjörsókn
var í kringum 35 prósent. „Verði kjör-
sókn sambærileg í prófkjörum ann-
arra flokka gefur það vísbendingar
um að kjörsókn verði með allra versta
móti í þingkosningunum sjálfum.
Þetta er þróun sem hefur verið í gangi
frá hruni og forvitnilegt að sjá hvort
haldi áfram.“
Grétar telur að minnkandi stjórn-
málaáhugi fólks í bland við minnk-
andi traust á stjórnmálamönnum hafi
þessar afleiðingar. Hann telur ósenni-
legt að tímasetningin prófkjöranna og
kosninganna hafi áhrif í þessu sam-
hengi. „Það er mögulegt að tilkoma
Viðreisnar hafi haft sitt að segja en ég
tel ekki að hún skýri allt saman.“
Líkt og áður segir varð Ólöf Nor-
dal, varaformaður flokksins, efst í
prófkjörinu en hún hlaut 61 prósent
atkvæða í fyrsta sætið. Það er tíu pró-
sentustigum minna en Hanna Birna
Kristjánsdóttir hlaut í prófkjörinu
2012 en örlítið meira en Illugi Gunn-
arsson árið 2009. „Það kemur ekki á
óvart að Guðlaugur Þór klípi nokkur
prósent af fyrsta sætinu. Sem stendur
á Sjálfstæðisflokkurinn engan afger-
andi leiðtoga í borginni og sextíu
prósent því í raun ásættanlegt,“ segir
Grétar Þór. johannoli@frettabladid.is
Líklega dræm kjörsókn í haust
Fáir hafa tekið þátt í þeim prófkjörum sem lokið er. Vísbending um það sem koma skal, að mati prófessors.
Þetta er þróun sem
hefur verið í gangi
frá hruni og forvitnilegt að
sjá hvort haldi
áfram.
Grétar Þór Eysteins-
son, prófessor við
HA
3.430
tóku þátt í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í borginni.
5 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m Á n U d A G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
0
5
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
7
5
-9
E
4
C
1
A
7
5
-9
D
1
0
1
A
7
5
-9
B
D
4
1
A
7
5
-9
A
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
4
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K