Fréttablaðið - 22.10.2016, Qupperneq 12
Þriðjudaginn 25. október 2016 klukkan
15–17 stendur Umhverfisstofnun fyrir
málþingi um mikilvægi samvinnu í
málefnum náttúruverndar.
Ef þú vilt fara hratt, ferðu einn,
ef þú vilt ná árangri, förum við saman.
DAGSKRÁ
15:05–15:15 Samtal og samvinna í héraði, störf Önnu Kristínar.
Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunar.
15:20–15:35 Umhverfissamskipti. Brita Berglund umhverfissam-
skiptafræðingur.
15:40–15:50 Samvinna um friðlýsingu „í feltinu“. Hákon Ásgeirsson
sérfræðingur.
15:55–16:05 Tækifæri í nýjum náttúruverndarlögum. Sigrún
Ágústsdóttir sviðsstjóri.
16:10–16:25 Lýðræði og náttúruvernd. Ólafur Páll Jónsson lektor.
16:30–16:40 Samvinna um stofnun og í starfi Vatnajökulsþjóð-
garðs. Þórður Ólafsson framkvæmdastjóri.
16:40–17:00 Þórunn Sveinbjarnardóttir, ávarp og samantekt.
17:00 Fundarslit og kaffiveitingar.
Fundarstjóri verður Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri.
Málþingið er haldið í minningu Önnu Kristínar Ólafsdóttur,
stjórnsýslufræðings, sem hefði orðið fimmtug á árinu.
Yfirskrift málþingsins er „Ef þú vilt fara hratt, ferðu einn, ef þú
vilt ná árangri, förum við saman“ en Anna Kristín lagði ríka
áherslu á markvisst samstarf við verndun svæða. Málþingið
fer fram í salnum Gullteigi B á Grand Hóteli.
SAMVINNA
TIL ÁRANGURS
- Í NÁTTÚRUVERND
StjórnSýSla „Það er einfaldlega
þannig að það er ráðherra sem skipar
í stjórnina. Ég taldi rétt að gera þessar
breytingar, fá inn fólk með aðra nálg-
un og sýn en það fólk sem áður sat í
stjórninni. Án þess að það sé neitt að
því fólki. Það er ágætt að breyta til,“
segir Gunnar Bragi Sveinsson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra, um
þá ákvörðun sína að skipta um þrjá
stjórnarmenn í Matís, aðeins ellefu
dögum fyrir kosningar.
Gunnar Bragi segir eina ástæðu
mannabreytinganna þá að hann
hafi viljað laga kynjahlutföll í
stjórninni. Meðal nýrra stjórnar-
manna í Matís er Sunna Gunnars
Marteinsdóttir, sem hefur starfað
sem aðstoðarmaður Gunnars Braga
í rúm þrjú ár, og er mágkona Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar,
fyrrverandi forsætisráðherra og for-
manns Framsóknarflokksins.
„Það er alls ekkert óeðlilegt að
skipa aðstoðarmann sinn í stjórn
félags ef viðkomandi er eins og
Sunna. Hún er vel menntuð, með
góða reynslu af stjórnsýslunni,
erlendum samskiptum og hinu og
þessu,“ segir Gunnar Bragi um ráðn-
inguna.
Ásamt Sunnu var Viggó Jónsson
einnig skipaður í stjórnina. Hann
hefur setið í sveitarstjórn Skagafjarð-
ar fyrir hönd Framsóknarflokksins
síðan árið 2010 en hann á einnig sæti
sem varamaður í stjórn Kaupfélags
Skagafjarðar. Spurður út í skipun
Viggós segir Gunnar Bragi hann vel
hæfan. „Hann er einhvers konar raf-
magnsfræðingur, minnir mig. Auk
þess hefur hann mikla reynslu af
atvinnuþróun og af atvinnulífinu.“
– þh
Ráðherra segir ekki óeðlilegt að skipa
aðstoðarmann ef hann er eins og Sunna
umhverfiSmál Magn blábaktería í
Mývatni í sumar fór á tímabili vel
yfir það magn sem talið er varasamt
í leiðbeiningum Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar (WHO). Hins
vegar var magn blábaktería mun
minna en tvö síðastliðin sumur
þegar bakteríurnar hreinlega yfir-
tóku lífríkið. Lífríki vatnsins hefur
tekið við sér að nokkru leyti.
Árni Einarsson, forstöðumaður
Náttúrurannsóknastöðvarinnar
við Mývatn (RAMÝ), segir að strax
í júní hafi bakteríurnar gert vart
við sig í Ytriflóa (norðurhluta
Mývatns) og blóminn hafi ekkert
látið á sér kræla í Syðriflóa fyrr
en óvenju seint. Um miðjan ágúst
náði hann þangað. Í byrjun sept-
ember hafi hann þó rokið upp og
mælingar í útfalli Laxár hafi farið
yfir 60 [míkró grömm af blaðgrænu
í hverjum lítra vatns] þegar mest
var. Tölur yfir 50 er talið varasamt í
leiðbeiningum WHO. Árni segir að
mörkin sem WHO setur varði það
hvort vatnið geti verið varasamt
fyrir heilsu fólks sem baðar sig í
vatninu eða drekkur það. Hvorugt
eigi þó við í Mývatni í dag.
Árni segir að þó mun minna sé af
bakteríum í sumar en árin á undan
þá breyti það ekki nauðsyn þess að
grípa til aðgerða. Vatnið hafi ekki
náð að verða tært í 15 ár og botn-
gróður að mestu horfinn þess vegna
með neikvæðum áhrifum á lífríkið.
„Þegar dregur úr bakteríublóm-
anum hjarnar lífríkið við, og það
gerðist í sumar. Það voru greinileg
batamerki á átu, andarungar kom-
ust fleiri á legg og það er að koma
upp smásilungur í vatninu aftur,“
segir Árni en segir að hornsílataln-
ing sumarsins hafi verið sú lægsta
síðan þær rannsóknir hófust 1989.
Því hefur þriðja sumarið bæst við þá
sögulegu lægð sem hornsílastofninn
er í. Til marks um það sást fiskætan
toppönd ekki á vatninu í sumar að
kalla, en fækkun hennar hefur fylgt
hruni hornsílisins.
Eins og Fréttablaðið hefur fjallað
um sýnir lífríki Mývatns augljós og
alkunn merki um ofauðgun. Þau
merki fóru að sjást fyrir mörgum
árum og talin tengjast athöfnum
manna sem hafa breytt næringar-
efnaflæði í vatnið. Mývatn er mjög
næringarríkt frá náttúrunnar hendi
og fræðilega séð getur smá viðbót
farið með lífríkið í annan og óæski-
legan farveg. Helst hefur verið litið
til fráveitumála við Mývatn og nið-
urstaða samstarfshóps umhverfis-
ráðherra um málefni vatnsins er að
rétt sé að ríkisvaldið og Skútustaða-
hreppur vinni saman að umbótum í
fráveitumálum og öðrum aðgerðum
til að draga úr innstreymi næringar-
efna í Mývatn. svavar@frettabladid.is
Greinileg batamerki
sjást á lífríki Mývatns
Blábakteríur í Mývatni fóru yfir varúðarmörk WHO í sumar. Magnið var mun
minna en tvö síðastliðin sumur. Betri staða í lífríki vatnsins miðað við fyrri ár
breytir því ekki að aðgerða er enn þá þörf. Til að mynda í fráveitumálum.
Grænum lit slær á Mývatn þegar bakteríurnar ná sér á fullan skrið, eins og hér 5. september í sumar. Mynd/ÁE/RAMÝ
fjármál Íslensk heimili greiða lang-
minnst fyrir orku- og veituþjónustu
á Norðurlöndum. Samanlagt greiða
Íslendingar rúmum 400 þúsund
krónum minna fyrir kalt og heitt
vatn, rafmagn og fráveitu á hverju
ári en þar sem þjónustan er dýrust.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Samorku, samtökum orku- og
veitufyrirtækja á Íslandi.
Þar segir að sé miðað við heildar-
reikning fyrir 100 fermetra íbúð og
meðalnotkun á ári, greiðir íslenskt
heimili um 247.000 krónur fyrir
orku- og veituþjónustu. Í Kaup-
mannahöfn greiða íbúar í sams
konar íbúð 655.000 krónur, sem er
hæsta verðið á Norðurlöndunum
og tæpum 34 þúsundum meira á
mánuði en á Íslandi.
Næstmest borga Finnar, eða um
588.000 á ári hverju og Svíar borga
480.000. Orku- og veituþjónusta
kostar næstminnst í Noregi, en þar
kostar hún 431.000 krónur árlega,
sem er þó tæpum 184.000 krónum
meira en á Íslandi.
Á heildarreikningi heimilanna
munar mestu um verð á heitu vatni.
Íslendingar greiða langtum minna
fyrir það en aðrir íbúar Norður-
landa. – shá
Íslensk heimili borga
minnst fyrir orkuna
Þegar dregur úr
bakteríublómanum
hjarnar lífríkið við, og það
gerðist í sumar.
Árni Einarsson,
forstöðumaður
RAMÝ
✿ Orku- og veitukostnaður
heimila á norðurlöndum
Kaupm.
höfn
Helsinki Stokk-
hólmur
Ósló Reykja-
vík
600
500
400
300
200
100
0 74
191
296
95
57
85
398
48
64
55
268
44
103
322
48
85
86
Þúsundir króna á
ári (ágúst 2016)
HEiMiLD: SAMORKA
Kalt vatn Heitt vatn Rafmagn Fráveita
26
28
29
Ég taldi rétt að gera
þessar breytingar, fá
inn fólk með aðra nálgun og
sýn en það fólk
sem áður sat í
stjórninni.
Gunnar Bragi
Sveinsson, sjávarút-
vegs- og landbún-
aðarráðherra
2 2 . O k t ó b e r 2 0 1 6 l a u G a r D a G u r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
7
-1
C
5
4
1
B
0
7
-1
B
1
8
1
B
0
7
-1
9
D
C
1
B
0
7
-1
8
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K