Fréttablaðið - 22.10.2016, Page 20
Vikunámskeið 6.-13. nóvember
Úr fjötrum kvíðans
Kvíði er eðlileg mannleg tilfinning sem knýr okkur til að vera á varðbergi,
tilbúin að bregðast við yfirvofandi hættu.
Hjá mörgum verður þó kvíðaviðbragðið of virkt, þ.e. hættuástandið er ofmetið og
manneskjan finnur oftar fyrir kvíða en tilefni eða aðstæður eru til. Markmið námskeiðsins
er að draga úr einkennum, auka skilning á kvíða, læra að beita eigin hugsunum til að líða
betur og róa hugann.
Verð 154.000 kr. á mann
146.300 kr. á mann í tvíbýli
- berum ábyrgð á eigin heilsu
Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags
Íslands
Nánari upplýsingar og skráning á heilsustofnun.is
eða í síma 483 0300.
Námskeið
6.-13.
nóvember
Nú standa yfir vetrarfrí í grunn-
skólum borgarinnar og víða um
land. Af því tilefni bjóða frístunda-
miðstöðvar og menningarstofnanir
upp á fjölbreytta dagskrá fyrir fjöl-
skylduna. Í Reykjavík er til dæmis
ókeypis inn á söfn borgarinnar fyrir
fullorðna í fylgd með börnum. Þá
bjóða frístundamiðstöðvar, sund-
Gott að taka sér frí frá daglegri rútínu
Margt er í boði fyrir börn og fjölskyldur í vetrarfríi sem nú stendur yfir í grunnskólum borgarinnar. Barnasálfræð-
ingur segir mikilvægt að gefa huganum frí frá daglegu amstri. Þannig verði samverustundirnar betri.
Gunnar Páll ráðleggur foreldrum að taka sér frí frá daglegu amstri til þess að gera sam-
verustundir með börnum betri. Gefa huganum frí og heimilisverkum líka.
Hungurleikar voru haldnir á Klambra túni í vikunni og nutu krakkarnir sín vel. Myndir/Ernir
laugar, bókasöfn og menningar-
stofnanir upp á ýmsa skemmtun
fyrir fjölskylduna.
Gunnar Páll Leifsson barnasál-
fræðingur segir lykilinn að góðri
samveru að kúpla sig út úr daglegri
rútínu. „Margir foreldrar geta ekki
leyft sér að taka frí frá vinnu, þá er
lítið annað að gera en að gera það
besta úr stöðunni. Það gerir meira
úr samverunni til dæmis að taka frí
frá daglegri rútínu,“ segir hann.
„Það er gott að fara eitthvað út
af heimilinu. Þannig að hugurinn
sé ekki við þvottinn, matargerðina
og þannig lagað. Það er gott að gefa
huganum frí frá amstrinu,“ segir
Gunnar og leggur til ferð í sumar-
bústað, fjöruna eða í bæinn. „Ekki í
búðir eða til að sinna einhverju sem
þarf að gera,“ segir hann.
Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi og
stjórnarformaður Bjartrar framtíð-
ar, reynir að gleyma daglegu amstri
og ætlar að njóta borgarinnar í
vetrarfríi.
„Þar sem ég er í framboði er
nokkuð augljóst að það er ekki mjög
viðamikil dagskrá í vetrar fríinu
þetta árið,“ segir Eva sem er á leið
í Nexus að kaupa skemmtilegt spil
fyrir fjölskylduna. „Við ætlum að
njóta borgarinnar, fá okkur ís, fara
út að borða og kannski í bíó og spila.
Við förum á bókasafn og reynum að
fara í fjöruferð á milli þess sem ég
hoppa frá og sinni kosningaundir-
búningi,“ segir hún.
Hildur Knútsdóttir rithöfundur
skrifaði bókina Vetrarfrí sem kom
út á síðasta ári. Bókin fjallar um
óhugnanlega framvindu í vetrarfríi
unglinga, en hverju skyldi Hildur
taka upp á í vetrarfríinu með eigin
fjölskyldu? Varla nokkru óhugnan-
legu? „Börnin mín eru í leikskóla
svo það er ekkert vetrarfrí. En þessu
er stillt saman, svo það var starfs-
dagur í gær. Ég er á fullu í kosn-
ingabaráttu. Stend einmitt núna
þegar ég tala við þig í Kringlunni að
afhenda kosningabæklinga,“ segir
Hildur sem hefur greinilega nóg
fyrir stafni enda hittir vetrarfríið á
heldur annasaman tíma í þjóðlífinu.
kristjanabjorg@frettabladid.is
2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r20 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
helgin
2
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
7
-1
7
6
4
1
B
0
7
-1
6
2
8
1
B
0
7
-1
4
E
C
1
B
0
7
-1
3
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K