Fréttablaðið - 22.10.2016, Side 26
Kvennafrídagurinn 24. október 1975 varð sögulegur atburður í íslensku þjóðlífi og vakti líka heimsathygli.
Karlar sátu eftir á vinnustöðum
og margir með börnin með sér.
Fyrir daginn hafði verið fjallað
um það í blöðum hvort taka ætti
laun af konum ef þær legðu niður
vinnu þennan dag og sumir
vinnuveitendur hótuðu því.
Ingibjörg, Guðrún og Silja eru sammála um að það gangi hægt að koma á kjarajafnrétti. FréttablaðIð/GVa
Þetta er
arðrán
Guðrún Margrét Guðmunds-
dóttir mannfræðingur
Guðrún Margrét segir kom-inn tíma á meira pönk og óhlýðni í baráttunni.
„Ef að við gefum okkur að pen-
ingar þýði völd og frelsi til athafna,
þá bera konur skarðan hlut frá borði
á Íslandi, með aðeins 70 prósent af
meðaltekjum karla. Þannig er staðan.
Ef svo allar mögulegar breytur eru
hreinsaðar í burtu stendur a.m.k. 10
prósenta óútskýrður launamunur
eftir. Hann byggir á engu öðru en
fornu hugarfari um að konur séu
minna virði en karlar, þetta er arð-
rán og ekkert annað.
Ég segi eins og ein klár vinkona
mín að konur ættu að fá tvöföld laun
í desember til að jafna út skekkjuna.
Við erum í mörg ár búin að vera
að rjúka úr vinnu þarna í kringum
14.30 til að taka þátt í „Kvennafrí-
inu“. Aðgerðin sem var ofurtöff fyrir
mörgum árum er nú pínu sorgleg.
Hvað eigum við lengi að nota sömu
aðferðir án árangurs?“ segir Guðrún
og vill gera eitthvað róttækara.
„Þó að ég elski mínar konur í
kvennahreyfingunni þá hefði ég
viljað að við skrópuðum í vinnunni í
heilan dag. Eins og 1975. Samfélagið
myndi raunverulega finna fyrir því,
það væri hægt að greina tapið í hag-
tölum því þennan dag er engin fram-
leiðsla frá helmingi landsmanna,“
segir hún og vill kalla aðgerðir
kvenna eitthvað annað en Kvennafrí.
„Það að kalla þetta frí er hálfpart-
inn móðgun. Þetta á að vera verkfall
og aðgerðir eiga að hafa brodd,“ segir
hún ákveðin.
2068?
Með þessu áframhaldi þurfa
konur að bíða í 52 ár eftir því
að fá sömu laun og kjör og
karlar. Eða til ársins 2068.
Konur hafa aðeins grætt
30 mínútur á 11 árum
2068?
Í ár eru konur eru hvattar til að
leggja niður vinnu kl. 14.38 mánu-
daginn 24. október og fylkja liði á
samstöðufund á Austurvelli. Hægt
hefur gengið að vinna á launamun
kynjanna. Með þessu áframhaldi
þurfa konur að bíða í 52 ár eftir
að fá sömu laun og sömu kjör og
karlar, til ársins 2068.
Jöfn kjör
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
14:08
n 2005
14:25
n 2010
14:38
n 2016
29,7%
lægri tekjur
Meðalatvinnu
tekjur kvenna eru í
dag 70,3% af meðal
atvinnutekjum karla.
Konur eru með 29,7%
lægri tekjur að meðal
tali og hafa unnið fyrir
sínum launum eftir 5
klukkustundir og 38
mínútur miðað við
fullan vinnudag kl. 917.
Því leggja konur sem
taka þátt í kvennafríi í
ár niður störf kl. 14.38.
Konur hafa
unnið fyrir sín
um launum
eftir 5 klst. og
38 mínútur
17
9
2016
2010
200
5
Það að kalla Þetta frí
er hálfpartinn móðg-
un. Þetta á að vera
verkfall og aðgerðir
eiga að hafa brodd.
„Karllægni tilverunnar er normið,
eða „default“ hugsunar. Það kom
hingað karlmaður fyrir nokkru,
Svíi sem hafði séð ljósið. Hann var
atvinnurekandi og útskýrði hvernig
hann hafði mismunað konum. Það
var ekki meðvitað, strákarnir voru
meira með honum, honum fannst
þeir skemmtilegri og mat vinnu
þeirra meira. En svo þegar hann
rankaði við sér þá fór hann að átta
sig á því hvernig hann hafði hlunn-
farið konur, einungis á forsendum
kyns,“ segir Guðrún og segir þörf
á því að leggja ábyrgð á fólk sem
tekur ákvarðanir um laun, biðja það
að hætta að gefa sér að það sé sann-
gjarnt og vera í staðinn sjálfsgagn-
rýnið.
„Við erum alin upp í karllægri
menningu og sýn okkar á tilveruna
því rammskökk. Það er ósköp eðli-
legt en við verðum að átta okkur á
því,“ segir hún enda geri hún sjálf
oft mistök.
„Ég sem femínisti geri líka mistök.
Læt glepjast, stend mig að því að
finnast hávaxinn karl með dimma
rödd traustvekjandi, þó hann sé
það ekki fyrir fimm aura. Þessi baggi
og menningarlega uppeldi fylgir
okkur, við verðum að taka mið af
því og reyna að afrugla okkur, þetta
er orðið svo þreytt,“ leggur Guðrún
Margrét áherslu á.
Gleðitíðindin segir hún vera þau
að ungar stelpur séu ekki svona, eða í
miklu minni mæli en konur á hennar
aldri. „Þær kaupa þetta ekki. Að karl-
ar séu eitthvað merkilegri. Það er það
besta,“ segir Guðrún Margrét.
2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r26 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
7
-3
9
F
4
1
B
0
7
-3
8
B
8
1
B
0
7
-3
7
7
C
1
B
0
7
-3
6
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K