Fréttablaðið - 22.10.2016, Blaðsíða 29
KENNARASAMBAND ÍSLANDS
Alþýðufylkingin
Um nýliðunarþörf í kennarastétt
Skólafólk þarf að geta nýtt hæfileika sína í starfi og fengið mannsæmandi laun fyrir það. Menntun skólafólks á öllum
skólastigum þarf að meta drjúgt til að umbuna þeim sem sækja sér aukna þekkingu á uppeldis- og menntamálum.
Björt framtíð
Um aldurstakmarkanir í framhaldsskólum
Velji einstaklingur sem er kominn yfir þrítugt að fara í framhaldsskóla á honum að gefast tækifæri til þess að velja þann
skóla eða þá leið sem honum hugnast. Ekki má hindra aðgang að úrræðum út frá aldri, kyni, eða annarri breytu.
Dögun
Um nýliðunarþörf í kennarastétt
Dögun telur mikilvægt að bæta kjör kennara á öllum skólastigum – um leið og starfsskilyrði þeirra verða bætt.
Launaþróun er algert lykilatriði til þess að eðlileg endurnýjun verði í skólastarfi og nýir kennarar fáist til starfa.
Flokkur fólksins
Almenn stefna í menntamálum
Þó að Flokkur fólksins búi ekki yfir fullmótaðri stefnu þegar kemur að menntamálum þá er alveg ljóst að við munum
berjast fyrir stórlega bættum kjörum kennara til að endurspegla verðmæti þeirra fyrir samfélagið allt.
Framsóknarflokkurinn
Um nýliðunarþörf í kennarastétt
Leggja þarf meiri áherslu á starfsnám á vettvangi og skoða hvort skynsamlegt væri að hluti af mastersnáminu væri
launað starfsnám. Bæta þarf kjör kennara og til þess þarf samfélagslega sátt til lengri tíma um launakjör.
Píratar
Um nýliðunarþörf í kennarastétt
Samþykkt stefna Pírata er að nota finnsku leiðina sem viðmið. Í því felst að haldið verði áfram að leggja áherslu á gæði í
menntun kennara og að klára þann hluta breytingarinnar sem snýr að launum kennara, þar sem laun kennara þyrftu að
vera um þriðjungi hærri miðað við OECD gögn.
Samfylkingin
Um kostnað vegna námsgagna
Fjárhagur má ekki koma í veg fyrir að fólk sæki sér menntun. Samfylkingin vill fella niður kostnað námsmanna vegna
námsgagna og Samfylkingin veit að ríkissjóður er aflögufær þegar kemur að því að tryggja jafnrétti til náms.
Sjálfstæðisflokkurinn
Um sveigjanleika milli skólastiga
Það er í samræmi við stefnu Sjálfstæðisflokksins að nám sé einstaklingsmiðað og þjóni sem best hagsmunum hvers
nemanda, hvort sem hann þarf á auknum stuðningi að halda eða fleiri krefjandi verkefnum til að þroskast og dafna.
Viðreisn
Um mat á menntun og störfum tónlistarkennara
Tónlistarkennarar ættu ekki að búa við lakari kjör en sambærilegir kennarahópar. Innan skólanna er unnið áhrifaríkt starf
sem hefur mikið forvarnar- og lýðheilsugildi. Tilkoma og rekstur tónlistarskóla um allt land er ein af undirstöðum
blómlegs tónlistarlífs á Íslandi.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
Um nýliðunarþörf í kennarastétt
Gera þarf kennarastarfið að fýsilegri kosti, til dæmis með því að efla faglegt sjálfstæði kennara og leggja áherslu á
skólaþróun á öllum skólastigum og tryggja fjármuni til hennar. Þá er rétt að skoða leiðir til að gera hluta af
kennaranáminu að launuðu vettvangsnámi sem og aðrar leiðir til að laða fleiri í námið.
Menntamál hafa ekki verið mikið til umræðu í yfirstandandi kosningabaráttu þrátt fyrir að margvísleg vandamál
blasi við í skólum landsins. Kennarasamband Íslands hefur lagt nokkrar lykilspurningar fyrir stjórnmálaflokkana
sem bjóða fram til þings og eru svör þeirra birt á vefsíðu KÍ, www.ki.is. Með þessu vill Kennarasambandið
leggja sitt af mörkum til að uppýsa kjósendur um helstu áherslur flokkanna í menntamálum.
Stjórnmálamenn verða að láta sig menntamál varða.
Mennt er máttur.
HVAÐA HAFA FLOKKARNIR
AÐ SEGJA UM MENNTAMÁL?
2
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
7
-1
7
6
4
1
B
0
7
-1
6
2
8
1
B
0
7
-1
4
E
C
1
B
0
7
-1
3
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K