Fréttablaðið - 22.10.2016, Page 32
Hótelið er falin
perla í náttúru-
paradís. Stutt er að aka
frá Akureyri. Allt um
kring er fallegt útivistar-
svæði, jafnt að sumri
sem vetri. Hótelið býður
upp á upphitaða
geymslu fyrir skíða-
búnað.
Hildur Magnúsdóttir
Hildur Magnúsdóttir hótelstýra.
Hildur Magnúsdóttir hótelstýra
segir að náttúran umvefji hótel-
ið sem er fjölskyldurekið. „Hér er
auðvelt að endurnærast í snertingu
við náttúruna,“ segir hún. „Hót-
elið er í jaðri Kjarnaskógar sem
er eitt vinsælasta útivistarsvæði
Akureyringa. Í Kjarnaskógi, rétt
ofan við hótelið, er meðal ann-
ars að finna upplýstar gönguleið-
ir, blakvöll, leiktæki og sérhann-
aða fjallahjólabraut svo dæmi sé
nefnt. Á veturna er troðin göngu-
braut fyrir skíðagöngufólk í fal-
legu umhverfi,“ upplýsir hún. Geta
má þess að hótelið er með upphit-
aða geymslu fyrir skíðabúnað.
Hægt er að velja um vel búin
einstaklings-, tveggja og þriggja
manna herbergi. Þau eru frá 12 fm
upp í 50 fm svítu. Í svítunni geta
sex gist en hún er mikið tekin sem
fjölskylduherbergi. Í anddyri er
bar og setustofa. Inni á hótelinu er
sauna sem gestir hafa aðgang að.
Hótelið er á fjórum hæðum. Gott
aðgengi er fyrir fatlaða.
„Við erum með veitinga- og
fundarsali með frábæru útsýni
yfir fjörðinn. Salir sem henta vel
til funda en auk þess hafa þeir
verið leigðir fyrir árshátíðir og
aðrar veislur. Einnig henta þeir
vel fyrir fyrirtækjahópa.
Boðið er upp á hlaðborð alla
daga á sumrin og jólahlaðborð
í nóvember og desember. Þá er
matur í boði fyrir hópa. Veitinga-
salurinn tekur 100 manns í sæti.
Frá honum er gífurlega fallegt út-
sýni. Á sumrin er hægt að njóta
veitinga utanhúss. Norðurljósin
sjást mjög vel hjá okkur þar sem
lítil ljósmengun er, við slökkv-
um einnig öll útiljós svo við fáum
þau beint í æð í heitu pottunum,“
segir Hildur. Nýbúið er að setja
upp heita potta við hótelið þar sem
fólk getur slakað á og notið sín í
náttúrunni. Þá má geta þess að
fjölskrúðugt dýralíf er í kringum
hótelið, kanínur og fuglar.
Húsið hafði staðið autt í þrjú ár
þegar fjölskyldan keypti það. Þau
fluttu burt 400 tonn af steypu,
sundlaug sem aldrei hafði verið
tekin í notkun en með því gátu
þau bætt við 22 nýjum herbergj-
um. „Við vildum gefa þessari földu
perlu aftur líf enda er staðsetning-
in ævintýri líkust.“
Fyrir þá sem vilja komast í jóla-
skap þá er Jólagarðurinn skammt
frá hótelinu. Við Hrafnagil er góð
sundlaug og einnig eru frábærar
sundlaugar á Akureyri. Þá er stutt
að fara í skíðaparadísina í Hlíðar-
fjalli.
Á hótelinu er lögð áhersla á
notalega og persónulega þjónustu.
Hægt er að skoða myndir á heima-
síðunni www.kjarnalundur.is og á
Facebook-síðunni Hótel Kjarna-
lundur, Akureyri.
Glæsilegt hótel í Kjarnaskógi
Hótel Kjarnalundur var opnað í Kjarnaskógi sumarið 2015. Hótelið er með 59 herbergi og stendur í helstu náttúruperlu Norðurlands, í
aðeins 3,5 km fjarlægð frá Akureyri. Notalegt og afslappandi umhverfi með einstakri aðstöðu hvað varðar útiveru, heilsu og vellíðan.
Hótel Kjarnalundur stendur í jaðri Kjarnaskógs, stutt frá Akureyri. Þar er mikil útivistarperla jafnt að
sumri sem vetri.
Norðurljósasýning er algeng við hótelið. Hægt er að njóta hennar frá heitum pottum við hótelið.
Herbergin á hótelinu eru öll vel búin og falleg.
Herbergin eru hvert með sínu lagi. Hægt er að velja um mismunandi stærðir.
Veislusalurinn á hótelinu tekur 100 manns. Frá honum er gríðarlega fallegt útsýni.
VetrArGiStiNG Kynningarblað
22. október 20162
ÚtGeFANdi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UMSjóNArMAðUr AUGlýSiNGA
Jóhann Waage| johannwaage@365.is | s. 512-5439
ÁbyrGðArMAðUr
Svanur Valgeirsson
VeFFANG
visir.is
2
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
6
-F
E
B
4
1
B
0
6
-F
D
7
8
1
B
0
6
-F
C
3
C
1
B
0
6
-F
B
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K