Fréttablaðið - 22.10.2016, Síða 38

Fréttablaðið - 22.10.2016, Síða 38
Helgin hjá Snorra Sigurðssyni fer að mestu í að skipuleggja þá næstu en þá heldur Mótettukór Hallgrímskirkju ásamt Alþjóðlegu barokksveitinni í Hallgrímskirkju tvenna tónleika í tilefni af 30 ára vígsluafmæli kirkjunnar. Tónleik- arnir eru haldnir í samstarfi við Listvinafélag Hallgrímskirju. Snorri starfar sem verkefna- stjóri í umhverfismálum á um- hverfis- og skipulagssviði Reykja- víkurborgar. Hann hefur eðli málsins samkvæmt mikinn áhuga á umhverfismálum, skipulagsmál- um og náttúruvernd en líka fugla- skoðun, pólitík og dægurmálum. „Í frístundum horfi ég á og spila tennis en er svo á kafi í tónlist og þá aðallega kórtónlist,“ segir Snorri, sem hefur gegnt starfi for- manns Mótettukórs Hallgríms- kirkju síðastliðið ár. „Ég hef verið í kórnum í samtals sex ár en þó ekki samfleytt,“ segir Snorri sem tók pásu á meðan hann stundaði doktorsnám í New York um fimm ára skeið. Hann segir virkilega skemmtilegt að syngja í kór en ekki síður að taka þátt í skipulagi verkefna kórsins sem eru jafnan mörg og stór og þá ekki síst það sem nú er fram undan. Aðspurður segist Snorri þó ekki eingöngu hrifinn af kórtónlist. „Ég hlusta líka á raftónlist, indí og popp. Þá finnst mér gaman að uppgötva nýja íslenska tónlist og var til dæmis á fínustu tónleikum á vegum Kíton á Kexi í vikunni. Þar komu Rósa Guðrún og Myrra Rós fram en þær eru mjög flottar tónlistarkonur.“ Þar sem fáir tengja saman bar- okk og popp kann að koma ein- hverjum á óvart að upphafsstef forleiksins að Te Deum, eftir franska barokkmeistarann M.A. Charpentier, sem verður flutt á tónleikunum, er hin heimsþekkta tónlist sem allir þekkja sem kynn- ingarstef í útsendingum Eurovisi- on. „Nú er tækifæri til að heyra allt verkið sem er mjög hátíðlegt,“ segir Snorri. Að sögn Snorra eru mikil há- tíðahöld fram undan hjá kórn- um og kirkjunni, en fram að því þarf að hnýta marga lausa enda. „Á tónleikadagskránni verður fyrrnefnt verk eftir Charpentier og Messa nr. 1 í F-dúr eftir Bach. Barokksveit Hallgrímskirkju, sem er að mestu skipuð erlendum bar- okkhljóðfæraleikurum, er vænt- anleg, en stór hluti af undirbún- ingnum er að taka á móti henni. Þá mun einvalalið ungra íslenskra einsöngvara stíga á svið en allir hafa þeir tengst listastarfi í Hall- grímskirkju um árabil.“ Inn á milli hyggst Snorri reyna að hlaða batteríin. „Það geri ég helst með því að spila tennis og fara í góða göngutúra. Ég er líka mikið matargat og geri gjarnan vel við mig á því sviði. Svo er líka eitthvað dásamlegt við að fá sér ís um helgar og þá helst bragða- ref með hindberjum og oreo- kexi. Snorri hefur líka gaman af því að flakka á milli bara og veit- ingastaða. „Skrifstofur Reykja- víkurborgar eru í Borgartúni og þaðan er stutt að fara á marga góða staði. Það er mikil gróska í veitingahúsageiranum og það er gaman að kíkja á happy hour með vinnufélögunum og uppgötva nýj- ungar.“ Eurovision-stEfið í fullum skrúða Snorri Sigurðsson, líffræðingur og formaður Mótettukórs Hallgrímskirkju, mun verja helginni í að undirbúa mikla barokkveislu sem boðið verður upp á í Hallgrímskirkju um næstu helgi. Hann hleður batteríin með því að spila tennis og gæða sér á bragðaref með oreo. Snorri segir mikil hátíðarhöld fram undan hjá Mótettukórnum og Hallgrímskirkju. MYND/GVA Lægra verð í Lyfju lyfja.is Liðverkir? 9 Inniheldur glucosamin súlfat 9 Duft í skammtapokum 9 Leyst upp í vatni – auðvelt að taka inn 9 Nær bragðalaust – með sætuefnum 9 Einn skammtur á dag Notkunarsvið: Glucosamin LYFIS er notað til að draga úr einkennum vægrar til meðalsvæsinnar slitgigtar í hné. Ekki má nota lyfið ef um er að ræða ofnæmi fyrir glucosamini, einhverju öðru innihaldsefni lyfsins eða fyrir skelfiski, þar sem glucosamin er unnið úr skelfiski og ef um er að ræða meðfæddan efnaskiptasjúkdóm (fenýlketonmigu). Gæta skal sérstakrar varúðar: Einstaklingar með sykursýki, astma, alvarlegt lifrar- eða nýrnavandamál, óþol fyrir einhverjum tegundum sykurs eða eru á natríumskertu fæði skulu leita ráða hjá lækni áður en lyfið er notað. Einnig þarf að útiloka að um sé að ræða annan liðsjúkdóm. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki liggja fyrir nægilegar upplýsingar um notkun og því skal ekki nota Glucosamin LYFIS á meðgöngu eða samhliða brjóstagjöf. Skömmtun: Fullorðnir, einnig aldraðir: Innihald eins skammtapoka á dag, helst með mat. Algengustu aukaverkanir: Ógleði, kviðverkur, meltingartruflanir, vindgangur, hægðatregða og niðurgangur. Lesið vandlega fylgiseðil sem fylgir lyfinu. SmPC: Febrúar 2014. Glucosamin LYFIS Við vægri til meðalsvæsinni slitgigt í hné 1.178 mg glucosamin – 30 skammtapokar afslátt ur 20% Heimagert hrökkbrauð er bæði hollt og gott. Það er sniðugt að hafa það í nesti í skóla eða vinnuna. Alls kyns smurostar og grænmeti passar vel með hrökkbrauðinu. Það sem þarf: 2 dl haframjöl 2 dl rúgmjöl, gróft 2 dl sólblómafræ 2 dl hafrar 2 dl sesamfræ 1 dl graskersfræ 1 dl hörfræ 1 dl hveitiklíð 2 tsk. salt 7 ½ dl vatn Stillið ofninn á 150°C. Bland- ið öllum þurrefnum saman. Hell- ið vatni yfir og hrærið vel saman. Látið blönduna standa í að minnsta kosti 10 mínútur. Breiðið bökunarpappír á bökun- arplötu. Dreifið deiginu jafnt yfir, Notið sleif og dýfið henni í vatn ef þörf krefur. Bakið í klukkustund. Það er ágætt að taka plötuna út þegar hálftími er liðinn af bökunartíma og skera kök- urnar út með pitsuhjóli. Setjið aftur í ofninn. Látið kólna. Geymist vel í lokuðu boxi. HEimagErt Hrökkbrauð 2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r6 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n 2 2 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 1 0 4 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 0 7 -7 0 4 4 1 B 0 7 -6 F 0 8 1 B 0 7 -6 D C C 1 B 0 7 -6 C 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 0 4 s _ 2 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.