Fréttablaðið - 22.10.2016, Side 40
| AtvinnA | 22. október 2016 LAUGARDAGUR2
LANDSPÍTALI ... LÍFLEGUR VINNUSTAÐUR!
Starf yfirlæknis á móttökugeðdeild 33C við Landspítala er laust til
umsóknar. Starfið er leiðtogahlutverk sem felur í sér faglega ábyrgð,
starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð.
Leitað er eftir sérfræðilækni með víðtæka reynslu og hæfni til að vera
í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarf, öryggismál og
upp byggingu mannauðs á deildinni, í nánu samstarfi við fram kvæmda
stjóra og annað starfsfólk. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis.
Deildin er 16 rúma og þjónar einstaklingum sem þurfa greiningu og
meðferð vegna geðrænna sjúkdóma. Áhersla er lögð á teymisvinnu
og einstaklingsmiðaða þjónustu.
YFIRLÆKNIR
Móttökugeðdeild
Viltu vinna með skemmtilegu fólki þar sem þú færð tækifæri til að öðlast
víðtæka þekkingu innan fagsins? Við óskum eftir 3 iðjuþjálfum í
afleys ingarstörf við iðjuþjálfun á Landspítala.
Lögð er áhersla á fagþróun, rannsóknir og kennslu heilbrigðisstétta
og þverfaglegt samstarf. Í starfinu felast tækifæri til að öðlast breiða
þekkingu innan fagsins. Við leggum ríka áherslu á að taka vel á móti
nýjum starfsmönnum.
IÐJUÞJÁLFAR/ AFLEYSING
Iðjuþjálfun
Starf verkefnastjóra á innkaupadeild er laust til umsóknar. Við leitum
eftir einstaklingi með háskólamenntun sem nýtist í starfi, hjúkrunarfræði
er kostur.
Á meðal helstu verkefna deildarinnar eru útboð, verðfyrirspurnir,
samskipti við fagfólk LSH og heilbrigðisstofnana vegna vöruvals
og gæðamála, samskipti við birgja og stjórnun vöruflæðis frá pöntun
til vörunotkunar.
VERKEFNASTJÓRI
Innkaupadeild
Vilt þú vinna með samhentum hópi að meðferð einstaklinga með
krabbamein? Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingum til starfa á
krabbameinslækningadeild, reynsla er kostur. Ráðgert er að halda stutt
námskeið áður en starf er hafið þar sem farið verður yfir helstu
einkenni og meðferð krabbameinssjúklinga.
Starfsfólk deildarinnar eru um 55 manns og lögð er mikil áhersla á góð
samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Krabbameinslækningadeild
Landspítali vill ráða öflugan hjúkrunarfræðing með áhuga á geðhjúkrun
til starfa á móttökugeðdeild 32A.
Deildin er 17 rúma en starfsfólk hennar sinnir móttöku, greiningu og
meðferð sjúklinga með geðraskanir. Deildin sérhæfir sig m.a. í greiningu
og meðferð á einstaklingum sem kljást við átraskanir. Í boði er góð
einstak lingsaðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga og frábært
starfsumhverfi.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Móttökugeðdeild 32A
Laust er til umsóknar dagvinnustarf hjúkrunarfræðings í brjóstateymi
Landspítala. Starfið felst m.a. í stuðningi við konur sem eru að greinast
með krabbamein í brjóstum. Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingi með
sterka faglega sýn og áhuga á þátttöku í faglegri framþróun.
Á deildinni ríkir góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði, metnaði
og sveigjanleika og þar eru mikil tækifæri til að vaxa í starfi og dýpka
þekkingu sína.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Brjóstateymi
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra
fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi.
Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á HEIMASÍÐU LANDSPÍTALA;
WWW.LANDSPITALI.IS/MANNAUDUR OG STARFATORGI; WWW.STARFATORG.IS
2
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
7
-6
B
5
4
1
B
0
7
-6
A
1
8
1
B
0
7
-6
8
D
C
1
B
0
7
-6
7
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K