Fréttablaðið - 22.10.2016, Qupperneq 48
| AtvinnA | 22. október 2016 LAUGARDAGUR10
Mannauðsstjóri Ísafjarðarbæjar
Ísafjarðarbær auglýsir laust til umsóknar starf mannauðsstjóra
sveitarfélagsins. Um er að ræða afar fjölbreytt og krefjandi starf.
Mannauðsstjóri hefur yfirumsjón með mannauðsmálum sveitar-
félagsins, vinnur náið með bæjarstjóra og sinnir alhliða ráðgjöf
til stjórnenda. Meginhlutverk hans er að útfæra mannauðsmál í
samræmi við stefnu og áherslur sveitarfélagsins. Mannauðs-
stjóri ber ábyrgð á framkvæmd starfsmannastefnu og hefur mikil
samskipti við aðra starfsmenn Ísafjarðarbæjar. Næsti yfirmaður
er bæjarstjóri.
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem er jákvæður,
þjónustulundaður, flinkur í samskiptum, fróðleiksfús og óhræddur
við að sýna frumkvæði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Vinna að mannauðsstefnu og eftirfylgni með starfsmannastefnu
Ísafjarðarbæjar
• Samþætting mannauðsstjórnunar við aðra stjórnun og
samræming vinnubragða
• Almenn ráðgjöf og aðstoð við stjórnendur í mannauðsmálum og
ráðningum starfsmanna
• Gerð starfsgreininga og starfslýsinga í samvinnu við starfs-
menn og yfirmenn
• Samskipti og samvinna við ýmsa utanaðkomandi aðila
• Framkvæmd kannana, úrbætur og eftirfylgni.
Menntun, reynsla og hæfni:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfinu
• Framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála eða tengdum
greinum
• Starfsreynsla á sviði stjórnunar- og mannauðsmála
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Leiðtogahæfni og geta til að hvetja aðra til árangurs
• Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og geta til að hrinda
hlutum í framkvæmd
• Skipulags- og greiningarhæfni og gagnrýnin hugsun
• Rík þjónustulund
• Þekking á sviði stjórnsýsluréttar og vinnuréttar
• Góð almenn tölvuþekking
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig skipulega bæði í
ræðu og riti
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitar-
félaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2016.
Umsóknir ásamt starfsferilskrá og kynningarbréfi sem greinir frá
ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu berast
til mannauðsstjóra á netfangið herdis@isafjordur.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Herdís Rós Kjartansdóttir
mannauðsstjóri í síma 450-8000 eða í tölvupósti.
ÍSAFJARÐARBÆR
Starfsfólk óskast.
Starfsfólk óskast til ýmissa starfa í vaktavinnu hjá
Ísfugli ehf. í Mosfellsbæ.
Um breytilegan vinnutíma getur verið að ræða bæði
heilar eða hálfar vaktir, seinnipart dags og/eða á kvöldin.
Upplýsingar veitir Kristmar Ólafsson í síma 566-6103
og á netfanginu kristmar@isfugl.is
Bílastæðasjóður óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi einstakling í starf fulltrúa á skrifstofu sjóðsins. Um fjölbreytt og
krefjandi starf er að ræða.
Vakin er athygli á því markmiði mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar að jafna
kynjaskiptingu innan starfsgreina og eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi , s.s. viðskiptafræði,
viðskiptalögfræði eða lögfræði
• Þekking á opinberri stjórnsýslu og þjónustu, æskileg
• Góða tölvukunnáttu, nauðsynleg
• Góð færni í íslensku og ensku
• Skipulag í vinnubrögðum auk hæfileika til að taka virkan
þátt í teymisvinnu
• Lögð er áhersla á mannleg samskipti, vandvirkni,
frumkvæði og ríka ábyrgðartilfinningu
Bílastæðasjóður - Fulltrúi
Helstu verkefni:
• Meðferð og afgreiðsla erinda vegna stöðvunarbrotagjalda
• Samskipti við íbúa vegna nýrra gjaldsvæða
• Þátttaka í samráði við íbúa um þróun lausna á
bílastæðamálum í íbúahverfum
• Ritstýrir heimasíðu Bílastæðasjóðs og samskiptamiðlum
• Stjórnarseta í húsfélögum sem Bílastæðasjóður er aðili að
• Verkefnastjórnun
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga og Reykjavíkurborgar. Um fullt starf er að ræða. Æskilegt
er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Kolbrún Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs í síma 411 1111 og með tölvupósti til
kolbrun.jonatansdottir@reykjavik.is
Sótt er um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar undir flipanum „Störf í boði“. Umsóknarfrestur er til og með 7. nóvember 2016.
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi
Hugfi mi býður upp á þjónustu á sviði gagnavinnslu, gagnatengingar
og gagnaframsetningar. Félagið selur og þróar EYK hugbúnaðinn sem
er vefl ægt gagnavinnslukerfi sem býður upp á miðlægt aðgengi að
gagnasöfnum fyrirtækja með sérsniðinni framsetningu. Hugfi mi er
dótturfélag Mannvits sem er leiðandi fyrirtæki á sviði tæknilegrar
ráðgjafar og nýsköpunar.
Verkefni starfsmanna Hugfi mi eru fjölbreytt, sem dæmi má nefna
uppsetningu vefþjóna, þróun API endapunkta og hönnun viðmóta. Félagið
býður upp á sveigjanlegan vinnutíma, möguleika á að vaxa í starfi og
tækifæri til að taka þátt í stefnumótun og vöruþróun.
Menntunarkröfur
• Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði.
Hæfnikröfur
• Þekking og reynsla af notkun Javascript, CSS, HTML, Git og Unix
skipanalínu.
• Þekking á React og Redux er kostur.
• Þekking á Django (Python), PostgreSQL, Rabbit MQ, CentOS,
eða Ansible er kostur.
Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2016.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafi ð störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Bjarki Ásbjarnarson,
framkvæmdastjóri Hugfi mi (s. 661-3092, bjarki@hugfi mi.is).
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skal senda á netfangið umsokn@hugfi mi.is.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfi ð.
Hugfi mi leitar að hugbúnaðarsérfræðingi til vinnu á starfsstöðvar fyrirtækisins í Kópavogi eða á Akureyri.
Ertu hugbúnaðarsérfræðingur
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi
2
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
7
-7
A
2
4
1
B
0
7
-7
8
E
8
1
B
0
7
-7
7
A
C
1
B
0
7
-7
6
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K