Fréttablaðið - 22.10.2016, Qupperneq 73
„Við buðum öllum Hús-
víkingum í kaffi og tólf
metra langa tertu þegar
framkvæmdunum lauk í
sumar og það mæltist vel
fyrir enda eiga Húsvík-
ingar góðar minningar úr
þessu húsi,“ segir Óskar
Finnsson, framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs Foss-
hótela. Hótelstýran, Jóna
Sigurðardóttir, er sam-
mála því. „Hótelið á sér
rótgróna sögu í bæjar-
lífinu enda var það upp-
haflega félagsheimilið
hér á Húsavík. Því var
síðar breytt í Hótel Húsa-
vík og Fosshótel tóku við
árið 2006,“ upplýsir hún
og segir aðeins frá breyt-
ingunum sem gerðar hafa
verið á hótelinu.
„Það var árið 2014 sem
byrjað var á þeim fram-
kvæmdum sem lauk nú í
sumar. Elstu herbergin voru upp-
gerð og kláruð á síðasta ári og
nýjasta álman með 44 nýjum her-
bergjum og glæsilegum fundasöl-
um var opnuð núna í júní.“
„Björn Skaftason arkitekt sá
um endurhönnun hótelsins og
tókst einstaklega vel upp. Lögð
er áhersla á náttúruleg efni á
borð við stuðlaberg og dró hann
einnig innblástur frá sjávarlífinu
sem einkennir svo bæinn,“ segir
Óskar.
Hann segir mikla áherslu lagða
á góða upplifun gesta á hótelinu.
„Til dæmis var ákveðið að hafa
svæðið í kringum móttökuna og
barinn mjög opið, aðlaðandi og
notendavænt. Þar er líf og fjör
enda viljum við fyrst og fremst
að fólk hafi gaman hjá okkur.“
Hráefni úr héraði
„Á móttökubarnum erum
við með bistróseðil sem
hefur vakið mikla lukku
frá því við opnuðum í
júní, bæði hjá gestum
hótelsins og hjá heima-
fólki sem hefur tekið
okkur opnum örmum,“
segir Jóna. Óskar segir
hugmyndina hafa verið
að gera eitthvað öðru-
vísi. „Á Húsavík eru
fullt af flottum veitinga-
stöðum en við ákváðum
þess í stað að bjóða upp
á skemmtilega smárétti
sem allir eru búnir til
úr hráefni sem finnst í
nærumhverfinu. Þar má
nefna hreindýra- börger,
grafna gæs, silung og
svartfugl. Þetta eru snið-
ugir réttir og gaman
að panta marga til að
smakka,“ segir hann og
bætir við að ætlunin sé að opna
annan flottan veitingastað á hót-
elinu næsta vor.
Glæsileg fundaaðstaða
Ein stærsta breytingin með
hinum nýju salarkynnum er sú
að nú er Fosshótel Húsavík orðið
stærsta fundahótel á Norður-
landi með 110 herbergjum og
átta sölum. „Við viljum gera
Húsavík að funda- og ráðstefnu-
svæði Norðurlands enda ekki að
finna jafn mikla og fína aðstöðu
annars staðar,“ segir Óskar en
fundarsalirnir eru allt frá litlum
fundarherbergjum og upp í stór-
an sal sem getur tekið upp undir
400 manns í standandi veislur.
Þá eru, að sögn Óskars, allir sal-
irnir búnir nýjustu tækni.
Frá rómantík til ráðstefna
Á Fosshóteli Húsavík er að finna
aðstöðu fyrir allar tegundir við-
burða. „Hér er hægt að halda stór-
ar ráðstefnur, halda afmæli, koma
í óvissuferðir og halda brúðkaup,“
segir Jóna og minnist skemmti-
legs brúðkaups þar sem brúðhjón-
in komu frá Noregi með alla sína
vini og fjölskyldu. „Þau voru hér í
nokkra daga, héldu hér brúðkaups-
veisluna og nutu þess sem Húsa-
vík og nærumhverfi hafði upp á
að bjóða. Þeim fannst frábært að
geta haft allt á einum stað.“
Jóna segir einnig tilvalið fyrir
pör að koma til Húsavíkur í róm-
antíska helgarferð. „Hingað er
flogið tvisvar á dag alla daga
nema laugardaga og flugið tekur
aðeins 50 mínútur. Því er hæglega
hægt að fljúga hingað á föstudegi
og heim á sunnudegi,“ segir Jóna.
Við breytingarnar á hótelinu
hafa einnig orðið til skemmtileg
og rómantísk rými. „Í tengibygg-
ingunni milli elsta og nýja hlutans
eru stórir gluggar með gott útsýni
bæði til fjalla, yfir bæinn og fló-
ann. Á þriðju og fjórðu hæð eru
fallegar setustofur þar sem gaman
er að fá sér kósí drykk og horfa á
norðurljósin,“ segir Jóna og bætir
við að verið sé að útbúa útisvæði
á þriðju hæðinni sem muni nýtast
afar vel í góðum veðrum næsta
sumar.
Líflegur bær
Margt er um vera á Húsavík
enda hefur ferðamönnum fjölg-
að ört undanfarin ár. Óskar og
Jóna segja því nóg við að vera
fyrir gesti hótelsins bæði sumar
og vetur. „Húsavík er orðið þekkt
fyrir sínar flottu hvalaskoðunar-
ferðir. Þá eru þar skemmtilegir
veitingastaðir, stutt er í norður-
ljósaböðin á Laugum og jarðböð-
in á Mývatni. Þá er einnig hægt
að fara á gönguskíði, skoða Detti-
foss eða fara í snjósleðaferðir,“
segir Óskar. Jóna bendir einnig á
skemmtileg söfn á borð við Hvala-
safnið, Safnahúsið og Könnunar-
safnið.
„Vissir atburðir í bænum eiga
sér fastan sess á hótelinu. Til
dæmis er árlega haldið jólahlað-
borð eldri borgara af Norðaustur-
landi og Húsavíkurfestival fatl-
aðra á Norðurlandi en í húsinu
eru til dæmis sérhönnuð herbergi
með góðu aðgengi fyrir fatlaða,“
segir Jóna.
Í dag er einnig skemmtilegur
viðburður á hótelinu. „Við tökum
þátt í landkönnunarhátíð Könn-
unarsafnsins með því að halda
hátíðarkvöldverð. Forseti Ís-
lands mætir auk þess sem þang-
að kemur geimfarinn Scott Para-
zynski sem hefur farið fimm sinn-
um út í geim,“ lýsir Jóna.
Aðrir fastir liðir eru jólahlað-
borð hótelsins. „Það eru enn nokk-
ur sæti laus á síðasta hlaðborðið
þann 10. desember en hin tvö eru
þegar orðin uppbókuð.“
Framtíðin er björt
Óskar segir að þau líti björtum
augum til framtíðar. „Við sjáum
fyrir okkur að Fosshótel Húsavík
verði eitt af þungavigtarhótelum
á landsbyggðinni. Við höfum allt
sem til þarf, aðstöðu, góðan mat,
falleg herbergi og nálægð við
miðbæinn og fagra náttúru.“
Hægt að að bóka gistingu og
jólahlaðborðið á www.fosshotel.is
eða með því að senda tölvupóst
á bokun@fosshotel.is og
husavik@fosshotel.is Fyrir
hópa og ráðstefnur má senda póst
á meetings@fosshotel.is.
Náttúran og hafið voru innblástur við hönnun hótelsins.
Á hótelbarnum er boðið upp á skemmtilegan bistró-matseðil sem samanstendur af smáréttum úr hráefni úr héraðinu. Fosshótel Húsavík er nú orðið eitt stærsta hótel á Norðurlandi.
Móttakan er afar fallega hönnuð, björt og notendavæn.
Hresst starfsfólk Fosshótels Húsavík.
Óskar Finnsson,
framkvæmda-
stjóri rekstrar-
sviðs Fosshótela.
Jóna Sigurðar-
dóttir, hótelstýra
Fosshóel Húsavík.
Boðið var upp á 12 metra tertu til að
fagna stækkun hótelsins í sumar.
Stærsta ráðstefnuhótel Norðurlands
Eftir umfangsmiklar framkvæmdir sem lauk í sumar er Fosshótel Húsavík orðið stærsta ráðstefnuhótel Norðurlands. Í því eru 110
herbergi og átta ráðstefnusalir sem eru sérútbúnir fyrir funda-, ráðstefnu- og veisluhöld. Hótelið er á besta stað í bænum, örstutt frá
iðandi höfninni þar sem finna má spennandi veitingastaði og skemmtilega afþreyingu.
Kynningarblað VetrargiStiNg
22. október 2016 3
2
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
6
-F
E
B
4
1
B
0
6
-F
D
7
8
1
B
0
6
-F
C
3
C
1
B
0
6
-F
B
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K