Fréttablaðið - 22.10.2016, Page 86
E ina leiðin fyrir okkur sem manneskjur til þess að stækka okkur og finna okkur stað í tilverunni er í gegn-u m m enninguna,“
segir Sjón þar sem við hittumst í
kjallara kaffihúss í Kvosinni. Við
byrjuðum á að tala um arfleifð
súrrealismans og það leiddi hann
að þessari niðurstöðu. Og þó svo
Sjón líti ekki á sig sem súrreal-
ískan höfund þá segist hann eiga
arfleifð hans að miklu leyti frelsi
sitt að þakka.
„Hluti af arfleifð súrrealismans
Ég er staddur í niðamyrkri með boga og eina ör
Það er margt að koma saman hjá Sjón þessa dagana. Lokabók þríleiksins Codex 1962, frumsýning í Kaup-
mannahöfn á óperu við texta skáldsins, bók um höfundarverkið, ritþing í Gerðubergi og boð um að skrifa
inn í framtíðarbókasafn til hundrað ára. Hann veltir því líka fyrir sér hvert hann ætlar í framtíðinni.
Sjón segir að nú sé vissulega góður tími til þess að staldra við og hugsa um framtíðina. Fyrir þá sem vilja vita meira er rétt að benda á málþing um skáldið í Gerðubergi í dag kl. 14. Fréttablaðið/SteFán
er virðing fyrir öllum þessum
ófínni bókmenntum sem svo eru
kallaðar. Strax í upphafi, þegar
súrrealisminn er að komast af
stað, þá er hann hluti af upp-
reisninni gegn hámenningunni og
öllu sem henni fylgir, að leita að
verðmætunum í glæpamyndum,
reyfurum, vísindaskáldsögum og
þannig mætti áfram telja. Súrr-
ealisminn hefur þannig haft þann
eiginleika að geta virkjað alls
konar tegundir af listum og bók-
menntum. Þetta var hluti af því
sem ég áttaði mig á þegar ég var
að leggja í þessa ferð upp úr 1980.“
Í vikunni kom út þríleikurinn
Codex 1962 en leikinn mynda
verkin Augu þín sáu mig (ástar-
saga), Með titrandi tár (glæpa-
saga) og loks nýja sagan Ég er
sofandi hurð (vísindaskáldsaga).
Í þríleiknum leitar Sjón í ólíkar
greinar bókmenntanna og hann
segir að þar sé hann að láta sög-
una kallast á við form sem yfir-
leitt eru höfð í öðrum hillum
bókabúðanna. „Ég er að sprengja
þetta upp og skoða hvað er hægt
að gera við þessar greinar. Sögu-
maður er mjög upptekinn af
sögunni sem hann er að segja og
leitar við það í ólík frásagnar-
form. Hann er svo hræddur um
að týnast í stóra samhenginu að
hann grípur til þess að virkja öll
þessi form. Ástæðan er að eina
leiðin fyrir okkur sem mann-
eskjur til þess að stækka okkur og
finna okkur stað í tilverunni er í
gegn um menninguna.“
Þrír höfundar þríleiksins
Það er óvenjulegt við þennan
stóra þríleik hversu langt líður á
milli bóka eða tuttugu og tvö ár í
það heila. Sjón segir að það hafi í
raun aldrei verið ætlunin heldur
hafi það bara æxlast með þessum
hætti. „Ég ætlaði að skrifa þetta á
nokkrum árum. Fyrsta bókin kom
út árið 1994 og ég hafði ímyndað
mér að næstu tvær kæmu á fjórum
árum þar á eftir. Svo taka örlögin
af manni völdin. Við Ásgerður
eiginkona mín fluttum til London
eftir áramótin 1994 þar sem hún
fór í söngnám og ég í ýmis verk-
efni. Þannig að þetta byrjaði að
dragast með skrifin á öðru bindinu
og svo bara leið tíminn. Ég gaf út
ljóðabók 1998 og svo annað bindi
þríleiksins 2001 og eftir það lang-
aði mig aðeins til þess að pústa. Þá
fór ég að skoða ýmislegt efni sem
hafði sópast að mér við skrifin á
öðru bindi og þar á meðal sögur af
refaskyttum. Ég hugsaði með mér
að það væri gaman að skrifa eina
litla bók svona til hliðar og það
var Skugga-Baldur. Sú bók varð að
miklu ævintýri í mínu lífi og ég var
allt í einu kominn á annað spor.
Síðan verð ég að viðurkenna
að það varð dálítið erfitt að ljúka
þessu eftir allan þennan tíma en
það er mjög gaman. Í rauninni
er þetta skemmtileg æfing í því
hvernig höfundur verður til. Ég
held að það sé alveg óhætt að
segja að þetta séu þrír höfundar
en samt er þetta allt eftir sama
höfundinn.
Við verklok þurfti ég að fara til
baka og skoða hvers konar höf-
undur ég var þegar ég lagði af
stað með þetta. Eitt af því sem ég
mundi var að þetta átti alltaf að
vera stór tilraunakennd skáldsaga
og þriðja bindið ber þess merki.
Þar sprengi ég upp söguformið
og rifja upp þá fagurfræði sem ég
heillaðist af sem ungur höfundur.“
Hugrekki súrrealismans
„Ég hef alltaf haft svo gaman af
ólíkum formum. Þess vegna skrif-
aði ég m.a. á sínum tíma hand-
ritið að Reykjavik Whale Watching
Massacre, fyrstu íslensku slægju-
myndinni, vegna þess að mér
fannst spennandi að finna þann-
ig sögu stað í íslenskum veruleika
og vera trúr miðlinum. Fólk skildi
ekkert í þessu, þetta gekk ekki upp,
að maður sem væri að skrifa sautj-
ándu aldar skáldsögu væri að skrifa
hryllingsmynd og stoltur af því að
Gunnar Hansen, hinn upprunalegi
Leatherface, væri í smáhlutverki í
myndinni.
Þetta er bara það sem ég er.
Það er alltaf þetta tvennt undir:
Hámenning og alvarleg verkefni og
svo önnur verkefni sem sækja í lág-
menningu og hroða en eru unnin af
sömu ást og virðingu. Þetta veitir
mér gífurlegt frelsi.
Ég kalla mig ekki súrrealista en
ég kem þaðan. Nýlega áttaði ég
mig á því að það sem ég lærði sem
ungur höfundur, sem var á bólakafi
í súr realisma og annarri framúr-
stefnu, veitti mér hugrekki. Þannig
Stjórn Styrktarsjóðs Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns
auglýsir eftir umsóknum um styrki til tónleikahalds í Hörpu árið 2017
Veittir verða styrkir til tónlistarmanna og/eða tónlistarhópa.
Nánari upplýsingar, úthlutunarreglur og rafræn umsóknareyðublöð
eru á slóðinni: http://styrktarsjodursut.is/
Styrkir til tónleikahalds í Hörpu 2017
Umsóknarfrestur er til kl. 24.00 mánudaginn 28. nóvember 2016.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r42 M e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
menning
2
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
7
-1
2
7
4
1
B
0
7
-1
1
3
8
1
B
0
7
-0
F
F
C
1
B
0
7
-0
E
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K