Fréttablaðið - 20.06.2016, Page 6
Beltone Legend™
Enn snjallara
heyrnartæki
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust
beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis
heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki
lánað til reynslu.Bel
to
ne
L
eg
en
d
ge
ng
ur
m
eð
iP
ho
ne
6
s
og
e
ld
ri
ge
rð
um
, i
Pa
d
A
ir,
iP
ad
(4
. k
yn
sl
óð
),
iP
ad
m
in
i m
eð
R
et
in
a,
iP
ad
m
in
i
og
iP
od
to
uc
h
(5
. k
yn
sl
óð
) m
eð
iO
S
eð
a
ný
rr
a
st
ýr
ik
er
.
A
pp
le
, i
Ph
on
e,
iP
ad
o
g
iP
od
to
uc
h
er
u
vö
ru
m
er
ki
s
em
ti
lh
ey
ra
A
pp
le
In
c,
s
kr
áð
í
Ba
nd
ar
ík
ju
nu
m
o
g
öð
ru
m
lö
nd
um
.
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
HEYRNARSTÖ‹IN
Vilja herstöðina burt
Mótmælafundur Japönsk kona krefst þess að herstöð Bandaríkjanna fari frá eyjunni Ókínava. Þúsundir mót-
mælenda söfnuðust saman í borginni Naha á Ókínava í gær til að krefjast hins sama í kjölfar þess að banda-
rískur landgönguliði við herstöðina var sakaður um að nauðga og myrða japanska konu. Nordicphotos/AFp
Kanada Líknardráp hefur verið leitt
í lög í Kanada eftir margra vikna
deilur um málið í kanadíska þing-
inu. Frumvarpið var kynnt í apríl af
ríkisstjórn Justin Trudeau, forsætis-
ráðherra.
Fólk með ólæknanlega sjúkdóma
eða varanlega fötlun er því heimilt
að binda enda á líf sitt með aðstoð
lækna, kjósi það svo.
Kanada er með löggjöfinni eitt
af fáum ríkjum heims sem hefur
lögleitt líknardráp. Sjúklingar sem
kjósa þennan valkost þurfa að upp-
fylla ýmis skilyrði, svo sem um and-
lega hæfni og að vera yfir átján ára. Sá
varnagli er einnig sleginn að tvö vitni
skulu vera viðstödd þegar sjúklingur
skrifar undir beiðni um aðstoð lækn-
is við að binda enda á líf sitt.
Miklar deilur voru í kandíska
þinginu vegna frumvarpsins því fjöldi
þingmanna vildi víkka gildissvið
laganna þannig að þau næðu einnig
til þeirra sem þjást af hrörnunarsjúk-
dómum. Frumvarpið var að lokum
samþykkt óbreytt og skilgreina lögin
líknardráp nokkuð þröngt. Þá er
einungis tekið tillit til líkamlegrar
þjáningar, ekki andlegrar. – þv
Líknardráp hefur verið gert löglegt í Kanada
Bretland Vote Leave, sem berst
fyrir aðskilnaði Bretlands frá Evr-
ópusambandinu, og Remain, sem
berst fyrir áframhaldandi veru
innan sambandsins, hófu aftur
kosningabaráttu í gær eftir að hafa
gert hlé á henni eftir morðið á þing-
manninum Jo Cox á fimmtudag.
Cox var þingkona Verkamanna-
flokksins og andvíg aðskilnaði, svo-
kölluðu Brexit. Thomas Mair, sem
ákærður hefur verið fyrir morðið,
mætti fyrir dóm á laugardag. Spurð-
ur til nafns svaraði hann: „Drepum
svikara, frelsi fyrir Bretland!“
Aðeins þrír dagar eru nú í að
kosið verði um framtíð Bretlands
innan Evrópusambandsins og var
kosningabarátta beggja fylkinga á
fullu skriði í gær.
Nigel Farage, formaður Sjálfstæð-
isflokks Bretlands og Brexit-sinni,
sagði í gær að Vote Leave gæti enn
borið sigur úr býtum en að morðið
á Cox hefði haft umtalsverð áhrif
á kosningabaráttuna. „Við vorum
með vindinn í bakið þar til þessi
harmleikur átti sér stað. Þegar þú
tekst á við yfirvaldið verður þú að
hafa meðbyr,“ sagði Farage.
Michael Gove, einn forsvars-
manna Vote Leave, sagði í viðtali
við BBC í gær að eina leiðin til að
standa við loforð ríkisstjórnarinnar
um að fækka innflytjendum niður
fyrir hundrað þúsund á ári væri
aðskilnaður frá Evrópusambandinu.
Hann sagðist þó ekki á móti inn-
flytjendum. „Ég er stuðningsmaður
innflytjenda en ég trúi því að til að
styðja við bakið á flóttamönnum
þurfum við að hafa stjórn á fjölda
þeirra,“ sagði Gove. Undir þetta tók
fyrrverandi borgarstjóri Lundúna,
Boris Johnson. „Við þurfum að ná
aftur stjórn á kerfi sem nú er algjör-
lega stjórnlaust,“ sagði Johnson.
David Cameron forsætisráðherra
og George Osborne fjármálaráðherra
voru harðorðir í garð stuðnings-
manna Vote Leave í gær. Cameron
sagði Breta geta valið um tvo val-
kosti. Annars vegar sýn Nigel Farage
„sem færir Bretland aftur í fortíðina
og sundrar frekar en að sameina“ og
hins vegar „opið, frjálslynt Bretland,
land sem kennir minnihlutahópum
ekki um vandamál sín og lítur til
framtíðar frekar en fortíðar“.
Þá varaði Osborne við efnahags-
legum áhrifum Brexit. „Þetta er
hlið inn í mun óöruggari heim þar
sem störf fólks eru í hættu,“ sagði
Osborne. „Hóflegt mat er að verg
landsframleiðsla okkar væri fimm
til sex prósentum minni,“ sagði
hann einnig. thorgnyr@frettabladid.is
Baráttan um
Brexit hafin á
ný í Bretlandi
Slagnum ver frestað eftir að Jo Cox var myrt. Fylk-
ingarnar virðast jafnstórar sem vilja úr og vera í ESB.
Jarðarför þingkonunnar Jo cox fór fram í gær. hundruð mættu og vottuðu cox
virðingu sína en hún var myrt á fimmtudag. Nordicphotos/AFp
Við vorum með
vindinn í bakið þar
til þessi harmleikur átti sér
stað.
Nigel Farage, for-
maður Sjálfstæðis-
flokks Bretlands
44%
styðja Brexit og jafnmargir
eru andvígir samkvæmt
meðaltali skoðanakannanna
Financial Times.
2 0 . j ú n í 2 0 1 6 M Á n U d a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
0
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
C
6
-B
6
9
4
1
9
C
6
-B
5
5
8
1
9
C
6
-B
4
1
C
1
9
C
6
-B
2
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K