Fréttablaðið - 20.06.2016, Qupperneq 12
EM2016
http://www.seeklogo.net
Eiríkur Stefán Ásgeirsson
eirikur@365.is
Í dag
22.00 Sumarmessan Sport
Stjarna helgarinnar á
EM 2016
http://www.seeklogo.net
EM í dag
http://www.seeklogo.net
19.00 Rússland - Wales B-riðill
19.00 Slóvakía - England B-riðill
EM 2016 í Frakklandi um helgina
A-riðill
Rúmenía - Albanía 0-1
0-1 Armando Sadiku (43.).
Sviss - Frakkland 0-0
Lokastaðan í A-riðlinum: Frakkland 7, Sviss
5, Albanía 3, Rúmenía 1.
E-riðill
Belgía - Írland 3-0
1-0 Romelu Lukaku (48.), 2-0 Axel Witsel
(61.) , 3-0 Romelu Lukaku (70.).
Stigin í E-riðlinum: Ítalía 6, Belgía 3, Svíþjóð
1, Írland 1.
F-riðill
Ísland - Ungverjaland 1-1
1-0 Gylfi Þór Sigurðsson, víti (40.), 1-1 sjálfs-
mark Birkis Más Sævarssonar (88.).
Portúgal - Austurríki 0-0
Cristiano Ronaldo skaut í stöng úr víta-
spyrnu á 79. mínútu.
Stigin í F-riðlinum: Ungverjaland 4, Ísland
2, Portúgal 2, Austurríki 1.
Armando Sadiku, 25 ára leik-
maður FC Zürich, skráði nafn sitt
með gylltu letri í knattspyrnusögu
Albaníu þegar hann tryggði liðinu
sinn fyrsta sigur á stórmóti í gær-
kvöldi. Sadiku skoraði eina markið
í leik Rúmeníu og Albaníu í Lyon á
43. mínútu með skalla eftir fyrir-
gjöf Ledian Memushaj frá hægri.
Albanir, sem enduðu í 3. sæti
A-riðils, fögnuðu ákaft í leiks-
lok enda eiga þeir ennþá
möguleika á að komast
áfram í 16-liða úrslit.
Það kemur þó ekki í
ljós fyrr en úrslitin
í öðrum riðlum
liggja fyrir.
ólafía í 13. sæti í tékklandi
ólafía Þórunn kristinsdóttir,
kylfingur úr GR, endaði í 13. sæti á
tipsport Golf Masters sem fór fram
á Park Pilsen vellinum í tékklandi.
ólafía lék lokahringinn í gær á 68
höggum eða þremur undir pari.
samtals lék hún hringina þrjá á
fimm höggum
undir pari (71-
69-68). Þetta
er besti árangur
ólafíu á sterkustu
atvinnumótaröð
kvenna í Evrópu og
aðeins annað mótið sem
hún tekur þátt í. næsta
mót á ladies Euro-
pean tour fer fram í
aberdeen í skotlandi
dagana 22.-24. júlí
og er ólafía í 24.
sæti á biðlista
fyrir það mót.
Fótbolti ísland var örfáum mín-
útum frá því að tryggja sér nánast
öruggt sæti í 16-liða úrslitum EM
í frakklandi en strákarnir okkar
misstu niður 1-0 forystu gegn Ung-
verjalandi á lokamínútum leiksins
á stade Vélodrome á laugardaginn.
Birkir Már sævarsson varð fyrir því
óláni að skora sjálfsmark á 88. mín-
útu sem var sem blaut tuska í andlit
liðsins, sem og þjóðarinnar allrar.
Gylfi Þór sigurðsson hafði komið
íslandi yfir úr vítaspyrnu í fyrri
hálfleik sem aron Einar Gunn-
arsson fékk. Þrátt fyrir að Ung-
verjar hafi verið miklu meira með
boltann gekk þeim illa að skapa
hættuleg færi og áttu íslendingar
bestu færi leiksins. Jóhann Berg
Guðmundsson komst nálægt því
að skora snemma leiks og kolbeinn
sigþórsson fékk einnig gott færi.
Eftir jöfnunarmarkið fékk svo
varamaðurinn alfreð finnboga-
son aukaspyrnu á vítateigslínunni.
Gylfi Þór tók spyrnuna en boltinn
fór af varnarveggnum og beint
fyrir fætur annars varamanns, Eiðs
smára Guðjohnsen, sem skaut í
varnarmann og framhjá. Um leið
var leikurinn flautaður af við gríð-
arlegan fögnuð Ungverja. niður-
staðan 1-1 jafntefli og er ísland í
öðru sæti f-riðils með tvö stig.
„ég hugsaði ekki um hvort ég
hefði getað gert eitthvað annað. ég
hugsaði bara um að hitta hann vel
og örugglega en ég smellhitti bolt-
ann,“ sagði Eiður smári þegar liðið
var komið aftur til annecy í gær.
Eiður spilaði ekkert í fyrsta leikn-
um gegn Portúgal og var gríðarlega
vel fagnað þegar hann kom inn á.
Þetta var bara ömurlegt
Birkir Már sævarsson bar sig vel
eftir leikinn þó svo að honum hafi
eðlilega liðið mjög illa eftir leik.
„Þetta var bara ömurlegt. ég ætlaði
að reyna að fá boltann til hliðar en
hitti hann ekki nógu vel. Þetta var
erfiður bolti en með smá heppni
hefði hann farið út.“
Hann segir að það hafi enginn af
samherjum hans í íslenska liðinu
sagt neitt sérstakt við hann eftir
leikinn. „Það þurfti enginn að segja
neitt. ég tek þetta bara á mig,“ sagði
Birkir Már hreinskilningslega.
Þurfum að vera kaldari
Þjálfararnir lars lagerbäck og
Heimir Hallgrímsson voru búnir
að skoða leikinn aftur þegar frétta-
blaðið ræddi við þá í annecy í gær.
„ég er bæði svekktur með úrslit-
in og að hluta með frammistöðuna.
Varnarleikurinn og vinnslan var í
háklassa. ég horfði aftur á leikinn
á leiðinni til baka [frá Marseille]
og get ekki kvartað yfir neinu hvað
það varðar. sóknarleikurinn þarf
að vera betri,“ sagði lagerbäck sem
sagði að liðið hefði tekið slæmar
ákvarðanir undir lok leiksins.
„Við fórum að gera mjög skrýtna
hluti í föstum leikatriðum eins og
að senda boltann þegar enginn
var tilbúinn. Við verðum að vera
aðeins kaldari í stöðu sem þessari
og drepa leikinn,“ sagði svíinn.
Heimir sagði ljóst að ísland ætti
heilmikið inni og það vissu strák-
arnir best sjálfir. Hann eins og aðrir
sagði að ísland hafi ekki spilað vel
með boltann.
„Við vorum 30 prósent með
boltann í leiknum en skorum
samt mark og eigum 3-4 mjög góð
marktækifæri þar að auki. Það er
það skemmtilega við stöðuna og
þennan leik. Við vorum næstum
búinn að vinna hann þrátt fyrir
að vera svona lítið með boltann,“
sagði Heimir og ítrekaði að Ung-
verjar væru með sterkt lið og hafi
verið betri heilt yfir.
Vill örugglega fleiri snertingar
„En ef okkur tekst að vera meira
með boltann og þurfum þar af leið-
andi að verjast minna, þá eigum við
meiri kraft í sóknina.“
Gylfi Þór hefur spilað frábærlega
í fyrstu tveimur leikjunum en nán-
ast öll hans orka hefur farið í varn-
arleik. Heimir segir að það lagist af
sjálfu sér þegar ísland nái að halda
boltanum betur innan liðsins.
„Hann vill örugglega fá fleiri
snertingar á boltann en þegar við
náum að fara framar þá kemur
hann betur í ljós. Við þurfum að
vera rólegri með boltann og þá
munu menn fá að njóta sín betur.“
ísland mætir austurríki á mið-
vikudag og þarf mjög líklega að
minnsta kosti jafntefli til að komast
áfram í 16-liða úrslit EM.
Hamingjan breyttist í ógleði
á einu augabragði í Marseille
Ísland gerði sárgrætilegt jafntefli við Ungverjaland í Marseille á laugardag en jöfnunarmarkið kom undir
lok leiksins og var sjálfsmark Birkis Más Sævarssonar. „Ég tek þetta bara á mig,“ sagði Birkir Már.
Gylfi Þór Sigurðsson gat ekki leynt vonbrigðum sínum eftir að Rússinn Sergei Karasev flautaði til leiksloka í leik Íslands og Ungverjalands. FRéttABLAðið/ViLhELm
Það þurfti enginn
að segja neitt. Ég tek
þetta bara á mig.
Birkir Már Sævars-
son, bakvörður ís-
lenska landsliðsins
um sjálfsmarkið sitt
Ísland og Írland hafa
bæði tapað stigum á EM eftir
að hafa skorað sjálfsmark.
2 0 . j ú n í 2 0 1 6 M Á n U D A G U R12 s p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð
sport
2
0
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
C
6
-8
A
2
4
1
9
C
6
-8
8
E
8
1
9
C
6
-8
7
A
C
1
9
C
6
-8
6
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K