Fréttablaðið - 20.06.2016, Page 16

Fréttablaðið - 20.06.2016, Page 16
„Við nýttum gömlu eldhússkápana, máluðum þá og skiptum um höldur en létum smíða fyrir okkur nýjar borðplötur. Plöturnar eru úr af- gangstimbri, allskonar viðarteg- undum í bland en það voru einu til- mælin sem smiðurinn fékk, að nota afganga. Annars hafði hann alveg frjálsar hendur með útfærsluna,“ segir Lára Garðarsdóttir en hún og Jakob Baltzersen festu kaup á íbúð í gömlu timburhúsi fyrir einu og hálfu ári síðan. „Við máluðum bara þegar við fluttum inn en nú er að skapast aðeins meira svigrúm til að gera eitthvað,“ segir hún. „Eld- húsið er fyrsta stóra verkið sem við tökum í gegn. Við pússuðum einnig upp gólfborðin í íbúðini en ætlum ekki að gera meira í bili þó við séum auðvitað með margar hugmyndir.“ Skápahöldur úr belti „Við reyndum að gera sem mest sjálf í eldhúsframkvæmdunum eins og að flísaleggja og mála. Skápa- höldurnar gerði ég sjálf, úr gömlu leðurbelti sem ég keypti á átta- hundruð kall á markaði. Við vild- um halda kostnaðinum í lágmarki og splæstum nánast öllu „budget- inu“ í borðplötuna,“ segir Lára og er hæstánægð með útkomuna. „Happie Furniture græjaði fyrir okkur plöturnar sem koma frá- bærlega vel út. Við erum í skýj- unum með þetta. Við þurftum líka að endurnýja tækin og völdum þau sérstaklega til að viðhalda þessum gamla anda sem einkennir íbúð- ina. Sjálf er ég afar hrifin af öllu gömlu og Jakob, sem er danskur er sérstaklega ánægður með hversu „dönsk“ íbúðin er, gólfin og glugg- arnir.“ hjartað Slær í eldhúSinu Lára segir þau Jakob eyða miklum tíma í eldhúsinu. Þau sitja gjarn- an bæði við vinnu sína í eldhúsinu en þau eru bæði myndhöfundar og teiknarar og vinna nú að þrívídd- arteiknimynd. Þá eigi hundarnir þeirra tveir sinn samastað í eld- húsinu. „Eldhúsið er aðalrýmið í húsinu og örugglega það herbergi sem við nýtum mest. Það er stórt og rúm- gott og svo erum við með stórt langborð sem við borðum við og teiknum. Þetta er hjarta hússins og mest nýtta herbergið í húsinu. Hér eiga allir sinn stað. Við eldum ekki alveg á hverjum degi en okkur finnst samt mjög gaman að elda. Við erum hrifin af hægeldun og um helgar eldum við yfirleitt eitt- hvað gott sem tekur langan tíma.“ heida@365.is Lára og Jakob féllu fyrir gömlum anda íbúðarinnar. „Og Jakob, sem er danskur er sérstaklega ánægður með hversu „dönsk“ íbúðin er, gólfin og gluggarnir.“ Borðplöturnar eru samsettar úr afgöngum en Happie Furniture sá um smíðina. Langborðið í eldhúsinu þjónar bæði sem matar- og vinnuborð. Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn efnis: Sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, Vera einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447, Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík S: 58 58 900. www.jarngler.is Rennihurðarbrautir í úrvali Tilvalið með í sumarfríið. Traust og fagleg þjónusta. LITHIUM POWER STARTTÆKI Byltingarkennd nýjung! Snjalltæki til að bjarga þér ef bíllinn verður rafmagnslaus á bílastæðinu eða úti á vegum. Bjargvættur sem er fyrirferðalítill (420 gr.) og einfaldur í notkun. Startar flestum bensínvélum og diesel vélum upp að 2,0 llítra. Hleður alla síma, ipadinn, fartölvuna og öll tæki með USB tengi. Innbyggt öflugt led ljós. Straumur út: 5v 2A fyrir síma og ipad, 19v 3,5A fyrir fartölvur, startkraftur allt að 400 Amper. Lithium rafhlaðan er 12.000 mAh. 365.is Sími 1817 2 0 . j ú n í 2 0 1 6 M Á n U D A G U R2 F ó l k ∙ k y n n i n G A R b l A ð ∙ h e i M i l i 2 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 C 6 -A C B 4 1 9 C 6 -A B 7 8 1 9 C 6 -A A 3 C 1 9 C 6 -A 9 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.