Fréttablaðið - 24.06.2016, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 24.06.2016, Blaðsíða 12
stjórnunarstöðum og verulegar framfarir í launamálum kvenna hjá borginni. Svo í utanríkisráðuneyt­ inu. Þar held ég að hafi skipt veru­ legu máli að leggja grunninn að því að jafnréttismálin ættu að vera á meðal þeirra mála sem við ættum að leggja megináherslu á í okkar utan­ ríkisstefnu. Fiskurinn, jarðhitinn og jafnréttið. Þar eigum við að vera. Þar erum við stór og höfum miklu að miðla.“ Tvær erfiðar aðgerðir Ingibjörg Sólrún hvarf eftirminni­ lega úr heimi stjórnmálanna árið 2009 eftir að hún veiktist haustið 2008. „Þetta var afskaplega drama­ tískt. Það gerðist eiginlega á nákvæmlega sama tíma og íslenska fjármálakerfið hrundi, þá hrundi ég í orðsins fyllstu merkingu. Ég greindist með heilaæxli og fór í kjöl­ farið í tvær erfiðar skurðaðgerðir. Sú síðari reyndi sérstaklega mikið á mig. Það var þá sem ég ákvað að hætta. Við aðrar aðstæður hefði ég hugsanlega haldið áfram en þarna var ekkert um það að ræða. Ég dró mig þess vegna út úr pólitíkinni til þess að hlúa að sjálfri mér og sé ekki eftir því. Árið 2009 gerði ég ekkert annað en að sinna sjálfri mér og náði mér ágætlega.“ Hún segir það ekki hafa verið erfitt að segja skilið við heim stjórn­ málanna. „Í rauninni fannst mér það ekki erfitt, mér hefur aldrei fundist erfitt að segja skilið við eitthvað sem ég hef verið að gera og snúa mér að öðru. Lífið heldur áfram. Fyrst vissi ég ekkert hvað ég ætlaði að fara að gera og var eiginlega atvinnu­ laus þar til ég fór að vinna fyrir UN Women í lok árs 2011. Það sem var erfitt var kannski að þurfa að hugsa líf mitt svolítið upp á nýtt.“ Hún hefur ekki hugsað sér að snúa aftur í stjórnmálin. „Nei, þau hafa ekki freistað mín,“ segir hún. Dapurt að horfa á flokkinn Staða hennar gamla flokks, Samfylk­ ingarinnar, hefur ekki verið upp á marga fiska. Fylgið mælist í sögulegu lágmarki og innanflokksdeilur eru áberandi. Hvernig er að horfa á flokkinn í dag? „Mér finnst mjög dapurt hvernig hann er rúinn fylgi. Hann á svo miklu meira inni, ég er sannfærð um að miklu stærri hluti þjóðarinn­ ar telur sig vera jafnaðarfólk þannig að jafnaðarstefnan ætti að höfða til stærri hóps. Ég held að jafnaðar­ flokkur á Íslandi ætti að gera verið í kringum þrjátíu prósent. Þess vegna er þetta dapurlegt.“ Af hverju er þetta svona? „Það eru margar og flóknar skýringar. Ég ætla ekki að fara út í að greina það hér á örskotsstundu. Ég held að það megi mikið læra af íslenska karlalands­ liðinu í fótbolta. Ef maður horfir á hvað þeir eru að standa sig vel þá er það vegna þess að þeir eru fyrst og síðast öflug liðsheild. Menn átta sig á að það er ekki nóg að vera með góða einstaklinga úti á vellinum, þó að það skipti auðvitað máli, því ef þeir ná ekki að spila saman og vera liðsheild þá ná þeir engum árangri. Þá nennir enginn að styðja þá. Þetta vantar í Samfylkinguna.“ Treystir ekki Oddnýju Oddný Harðardóttir var á dögunum kjörin formaður Samfylkingarinnar. Oddný sat í þingmannanefnd sem fjallaði um skýrslu rannsóknar­ nefndar Alþingis. Nefndin lagði fram þingsályktunartillögu þess efnis að höfða skyldi mál á hendur Geir H. Haarde, Árna Mathiesen, Björgvin G. Sigurðssyni og Ingi­ björgu Sólrúnu. Eftir meðferð þings­ ins var Geir sá eini sem var ákærður en fjórir þingmenn Samfylkingar­ innar kusu með því að Ingibjörg yrði ákærð. Oddný þeirra á meðal. Hvernig horfir þetta mál við þér núna, fimm árum síðar? „Þetta var gríðarlega erfitt, með því erfiðara sem ég hef gengið í gegnum. Þetta voru samherjar mínir sem vildu ákæra mig og það var mér tilfinn­ ingalega mjög erfitt. En þetta er bara eins og annað sem maður lendir í, „life is a bitch,“ eins og maður segir,“ segir hún og brosir. „Það þýðir ekk­ ert að velta sér endalaust upp úr því. Ég dreg minn lærdóm af þessu og þetta hefur kennt mér mjög mikið. Það er alltaf þannig með allar krepp­ ur. Þetta er ekki spurning í hverju maður lendir heldur hvernig maður vinnur úr því. Ég hef verið að takast á við þetta, en mér fannst þetta sárt.“ Berðu engan kala til þessa fólks? „Hvað á ég að segja? Ég treysti ekki því fólki sem fór fyrir í þessu máli í Samfylkingunni, og ég treysti ekki því fólki sem greiddi ákærunni atkvæði sitt, mér fannst það bregð­ ast. Ég hef aldrei haldið því fram að ég hafi ekki borið pólitíska ábyrgð í þeirri ríkisstjórn sem ég sat. En að ætla að ákæra okkur og sérstaklega þegar haft er í huga að niðurstaða rannsóknarnefndar Alþingis var sú að ég hefði ekki brugðist skyldum mínum sem utanríkisráðherra að ætla samt að sækja mig að lögum fyrir Landsdómi, það fannst mér vont. Einhvern tíma fer ég í gegnum þessa sögu alla, til að skýra hana betur fyrir sjálfri mér og öðrum. Ég þarf að gefa mér tíma til að greina þetta betur og skýra betur málin frá minni hlið. Ég hef aldrei gert það og ein af ástæðunum fyrir því eru kannski þessi veikindi mín. Þau urðu þess valdandi að ég gat það bara ekki, hafði ekki þá burði sem ég þurfti. Svo ákvað ég bara að halda áfram með lífið og skulda kannski mér sjálfri og öðrum að greina og skýra þetta betur en ég gat það bara ekki á þessum tíma.“ Ertu samfylkingarkona? „Já, ég er skráð í Samfylkinguna og á góða vini þar. Þar er mjög margt fólk sem mér þykir afskaplega vænt um þannig að formlega séð er ég þar.“ Treystir þú forystunni? „Það segir sig sjálft, ég get ekki stutt Oddnýju. Hún er sjálfsagt vænsta kona en ég get ekki stutt hana því mér fannst hún bregðast. Mér fannst hún sýna dómgreindarbrest í Landsdómsmál­ inu sem nefndarmaður. Ég veit ekki hvernig það gerðist að hún gerði þetta, hvernig hún komst að þessari niðurstöðu, ég hef aldrei getað skilið það.“ Embætti forseta of stórt Forsetakosningar fara fram á morg­ un. „Það þarf einhver góður að gefa kost á sér á Bessastaði og maður er í þeirri lúxusstöðu núna að geta valið milli þriggja frambærilegra fram­ bjóðenda,“ segir hún. Ertu þá að taka Davíð út úr meng- inu? „Ég held það komi engum á óvart að ég taki Davíð út úr meng­ inu miðað við forsöguna. En það yrði sómi að þeim öllum þremur á Bessastöðum,“ segir hún og vísar í þrjá efstu frambjóðendurna. „Ég held þau myndu öll rækja þetta hlutverk vel, hvert með sínum hætti. Það sem mér finnst vandinn er sá að starfslýsingin liggur ekki fyrir. Ég fór í svo mikið ráðningar­ ferli fyrsta árið hjá UN Women í Istanbúl. Þegar maður ræður fólk til starfa og skoðar starfsferilskrána þá skiptir máli að vita hvernig starf maður er að ráða í. Það finnst mér vanta varðandi forseta Íslands. Starfslýsinguna vantar og allt veltur á því hvernig mismunandi einstaklingar hugsa sér að sinna þessu embætti. Það er vandinn. Það hefði verið gott að klára ákveðnar stjórnarskrárbreytingar sem hefðu skýrt hlutverk embættisins fyrst við erum með það á annað borð. Hins vegar er ég ekki sannfærð um að við eigum að vera með forsetaemb­ ætti. Þetta embætti verður einhvern veginn of stórt fyrir svona litla þjóð. Við erum að leita að einhverjum sem getur verið sameiningartákn allra og það er ekki auðvelt að finna slíkan einstakling og að auki verður hann of fyrirferðarmikill. Ég er ekki viss um að þetta sé rétt leið. Ef við horfum í kringum okkur, á lönd þar sem forseti fer ekki með framkvæmdarvald, þá er ekki lögð þessi mikla áhersla á þann einstak­ ling sem gegnir embættinu. Það er miklu meiri rótering í því heldur en hefur verið hjá okkur. Mér finnst alveg spurning hvort forseti Alþing­ is gæti ekki gegnt þessu hlutverki, að vera fulltrúi þjóðarinnar út á við þegar á því þarf að halda.“ Hörð barátta við Davíð Nú er einn forsetaframbjóðenda Davíð Oddsson, og hann var gjarn á að stilla þér upp sem pólitískum andstæðingi. Af hverju var hann svona upptekinn af þér? „Ég held það hafi byrjað í borg­ inni. Ég kom inn sem nýr borgar­ fulltrúi 1982 fyrir kvennaframboð og það var þá sem hann varð borgar­ stjóri. Við vorum samferða inn í þetta tímabil. Ég kem inn og vildi gera mig og kvennaframboðið gild­ andi og allt sem við stóðum fyrir. Við tókumst harkalega á. Sjónar­ mið okkar voru ólík til margra mála. Þetta byrjar kannski þá. Síðan er það nú svo skrítið að þegar ég fer inn á þing 1991, það er einmitt þá sem hann verður forsætisráðherra, svo það fylgdist að, þar voru líka heil­ mikil átök. Ég held þó að það hafi skipt einna mestu máli að þegar ég varð borgarstjóri árið 1994, þó hann væri ekki þar þá, leit hann svo á að hann og Sjálfstæðisflokkurinn ættu borgina og við hefðum eiginlega stolið borginni frá þeim. Þeir töldu sig hafa löggilt eignarhald sem Sjálf­ stæðisflokkurinn hafði haft meira og minna í 60 ár. Þetta var eitthvað sem hann og svo sem ýmsir aðrir sjálf­ stæðismenn áttu erfitt með að sætta sig við og jafnvel, innan gæsalappa, fyrirgefa. Þó þetta væri auðvitað vilji borgarbúa.“ „Svo ákveð ég að fara úr borginni og leggja Samfylkingu lið í þing­ kosningum 2003. Leggja mín lóð á vogarskálar Samfylkingarinnar sem var ekki að mælast nógu vel í könnunum. Þau lóð voru ansi þung á þeim tíma. Ég hafði verið borgar­ stjóri í níu ár og við förum fram sem tvíeyki, Össur sem formaður og ég sem forsætisráðherraefni. Þetta var mjög hörð pólitísk barátta og það er þá sem Davíð, Styrmir Gunnarsson og fleiri forystumenn úr Sjálfstæðis­ flokknum ákveða, sem ég áttaði mig ekki á fyrr en seinna, að útmála mig sem Baugsmanneskju,“ segir hún og vitnar til frægrar Borgarnesræðu. „Það er ákveðið að taka orð úr þeirri ræðu og keyra á mig eins og einhverja sérstaka talskonu Baugs. Ég man að þetta kom mér gjörsam­ lega í opna skjöldu, því ég hafði hreinlega ekki ímyndunaraflið til þess að lesa það inn í þessa ræðu mína. Ekkert frekar en Guðni Th. hafði ímyndunarafl til að lesa það inn í fyrirlesturinn sem hann flutti um landhelgismál að hann hefði verið að niðurlægja þjóðina. Þar var alveg sami spuni á ferðinni. Það var blásið til þessarar orrustu til þess að reyna að ná Samfylkingunni niður í fylgi, því hún fór mjög hátt fyrir kosningarnar 2003 í könnunum. Þá er ákveðið að fara í þessa vegferð gegn mér og Samfylkingunni. Engu að síður náðum við yfir þrjátíu pró­ senta fylgi í kosningunum 2003 og náðum að koma Davíð úr því að vera fyrsti þingmaður Reykvíkinga í að vera annar þingmaður. Þetta er það sem í stuttu máli skýrir þetta að einhverju leyti.“ Sótt úr undarlegum áttum Er ekki ákveðin viðurkenning í því að Davíð hafi á manni mikinn áhuga, sérstaklega á þessum árum? „Jú, jú,“ svarar hún hlæjandi. „Það var allt í lagi en það var ekki alltaf auðvelt því þeir sóttu að manni úr svo undarlegum áttum. Sérstaklega með þessi Baugsmál. Það varð allt í einu haft fyrir satt að í Borgarnes­ ræðunni hefði ég gengið fram fyrir skjöldu fyrir hönd Baugs. Allir sem lesa Borgarnesræðuna, sem fólk gerði nú ekkert, sjá hvílík firra þetta er. En þeir tóku þessa ákvörðun því hjá þeim helgar tilgangurinn meðalið.“ Ingibjörg er með ráðningarsamn­ ing hjá UN Women til áramóta. Hún segir óljóst hvað taki við eftir það. „Það er sérkennilegt að segja það en ég verð 62 ára þann 31. desember og það er sá aldur hjá SÞ sem fólk á að láta af störfum. Þetta er auðvitað enginn aldur og algjörlega fráleitt!“ segir hún og hlær. Langar þig að fara að slaka á? „Nei, ég á mikið eftir af starfsorku og vonandi talsvert eftir af góðum hugmyndum. Ég finn mér eitthvað til dundurs. Engin hætta á öðru. “ Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Grillandi gott verð! Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Kaliber KG-1301 gasgrill 3+1 brennarar/hliðarhella grillflötur 2520 cm2, 11,5KW 47.900 Kailber KG-1503 Gasgrill 3 x 3KW brennarar, grillflötur 2520 cm2, 9KW 43.900 20% AFSLÁTTUR 35.120 Ingibjörg Sólrún er ekki sannfærð um að embætti forseta Íslands eigi rétt á sér. FréTTablaðIð/STEFán Föstudagsviðtalið Það gerðist eiginlega á nákvæmlega sama tíma og íslenska fjármála- kerfið hrundi, þá hrundi ég í orðsins fyllstu merkingu. Þetta voru sam- herjar mínir sem vildu ákæra mig og það var mér tilfinningalega mjög erfitt. En þetta er bara eins og annað sem maður lendir í, „life is a bitch.“ ↣ visir.is Viðtalið má hlusta á í lengri útgáfu inni á Vísi, í hlaðvarpinu Föstudagsviðtalið. 2 4 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R12 F R é T T i R ∙ F R é T T A B L A ð i ð 2 4 -0 6 -2 0 1 6 0 5 :3 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 D 1 -E 2 A 0 1 9 D 1 -E 1 6 4 1 9 D 1 -E 0 2 8 1 9 D 1 -D E E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.