Fréttablaðið - 24.06.2016, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 24.06.2016, Blaðsíða 16
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is Launamunur kynjanna er til vansa í okkar sam-félagi og hægt virðist miða í jafnréttisátt hvað þetta varðar. Enn ein staðfestingin er ný kjara- könnun BHM um kynbundinn launamun þar sem í ljós kom að laun kvenna þurftu að jafnaði að vera 11,7 prósent hærri á síðasta ári til að vera jöfn launum karla. Ef við notum tölurnar úr könnun BHM þá er fróðlegt að setja dæmið upp með öðrum hætti; tala einfaldlega um karla-krónur og kvenna-krónur. Því fyrir hverja eina krónu sem karlar fengu greidda fengu konurnar tæplega 90 aura fyrir sömu vinnu. Þetta þýðir á mannamáli að þegar konur fara út í búð að versla fyrir launin sín þurfa þær í raun að greiða hærra verð en karlarnir fyrir hverja einustu vöru. Það sama á auðvitað við um öll önnur útgjöld konunnar. Í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar segir að hún ætli að endurmeta þær aðferðir sem notaðar hafa verið í baráttu fyrir jafnrétti kynjanna með það að markmiði að bæta árangur á sviði jafnréttismála og vinna gegn launamun kynjanna. Nýjustu tölur sýna því miður að alltof hægt miðar á þessu sviði. Ef til vill þurf- um við að stíga djarfari skref, sem virkilega hrista upp í stöðnuðu kerfi og vekja fólk til umhugsunar. Mikilvægt í þessu sambandi er að minna stöðugt á þann óréttláta launamun kynjanna sem lifir svo góðu lífi í okkar sam- félagi. Einnig hlýtur það að vera sjálfsögð krafa að allt sé opið og gagnsætt hvað launamun kynjanna varðar. Ein hugmynd væri sú að verslanir færu að verðmerkja vörur bæði í karla- og kvennakrónum til þess að glöggt megi sjá hvað varan kostar miðað við kaupmátt eftir því hvort kynið á í hlut. Þannig mætti hugsa sér að mat- vöruverslun verðmerkti 1 lítra af mjólk með tvennum hætti á 142 krónur eða 158 kvennakrónur. Bílaumboð auglýstu: Fjögurra dyra fólksbíll, árgerð 2016 verð 5,2 milljónir eða 5,8 milljón kvennakrónur. Fasteignaaug- lýsingin hljóðaði: 3 herbergja íbúð í vesturborginni, verð 37 milljónir króna eða 41 milljón kvennakrónur. *Allar þessar tölur miðast við nýja kjarakönnun BHM á launamun kynjanna. Afsakið, en hvað kostar þetta í kvenna-krónum? Þetta þýðir á mannamáli að þegar kon- ur fara út í búð að versla fyrir launin sín þurfa þær í raun að greiða hærra verð en karlarnir fyrir hverja einustu vöru. Elín Hirst alþingismaður gæta skal að öllu námi Upp er komin kynslóð íslenskra knattspyrnumanna sem getur lagt stórþjóðir að velli. „Knatt- spyrnuhallakynslóðin“ hefur hún verið kölluð. Allt í einu varð til blanda af góðum aðstæðum, færum kennurum og metnaði forystunnar til þess að búa til góða íþróttamenn. Menn lögðust á eitt við að skapa þessa umgjörð. Með þessari umgjörð getum við sigrað alla á góðum degi. En þá er kominn tími til að fleiri þættir í menntakerfinu fái sömu fyrirgreiðslu stjórnvalda. Við þurfum að gera þetta fyrir öll börnin okkar svo þau geti skarað fram úr, líka í námi. Boxið á Bessastöðum Í tuttugu ár hefur setið maður á Bessastöðum og smíðað box utan um forsetaembættið. Hann hefur mótað hugmyndir þjóðarinnar um það hvernig forseta ber að vera. Allt bendir til þess að á morgun kjósi þjóðin forseta sem passar inn í þetta box – orðvaran mann sem er frekar íhaldssamur á breytingar. Forseta sem vill stíga mjög varlega til jarðar. Eins og Jón Gnarr hristi upp í stjórn- málunum má ætla að þjóðin hefði gott af forseta sem gæti hnikað til sýn okkar á embættið. Einhvern sem stækkar boxið fyrir fram- tíðarforseta lýðveldisins. Forseta sem mismælir sig, fær hlátursköst og fer út fyrir boxið. sveinn@frettabladid.is snaeros@frettabladid.is UN Women er eina stofnun Sameinuðu þjóðanna sem er sett á laggirnar á 21. öldinni. Það segir sína sögu. Það er okkar að takast á við það sem er ólokið verkefni 21. aldarinnar, að stuðla að jafnrétti kynjanna,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og nú umdæmisstjóri UN Women í Evrópu og Mið-Asíu, í föstudagsviðtali Fréttablaðsins í dag. Í viðtalinu kemur Ingibjörg meðal annars inn á stöðu jafnréttismála á Íslandi. Hún segir réttilega að okkur hafi þar vegnað vel og séð árangur. En rétt eins og við sáum í vikunni, þegar kjarakönnun Bandalags íslenskra háskólamanna var birt, þá lætur árangurinn stundum á sér standa og málin geta ávallt þróast í öfuga átt ef ekki er fylgst nægilega vel með. Samkvæmt könnun BHM var kynbundinn launa- munur meðal félagsmanna bandalagsins 11,7 prósent í fyrra. Árið áður var munurinn 9,4 prósent. Okkur fer því aftur þegar kemur að jafnlaunastefnu hjá ríkinu og sveitarfélögum, öðrum en Reykjavíkurborg, á sama tíma og launamunurinn minnkar hjá einkafyrir- tækjum og borginni. Kynbundinn launamunur sveitar- félaganna fer úr 18 prósentum í 29 prósent milli ára og óhætt að segja að munurinn hafi rokið upp milli ára. Ingibjörg Sólrún segir tilhneigingu til að halda að málin séu komin í gott horf og ekki þurfi að hafa meira fyrir þeim. „Það þarf alltaf að vera á vaktinni. Það má aldrei láta deigan síga og verða andvaralaus. Það er kannski ákveðið andvaraleysi sem hefur verið hér í gangi,“ segir Ingibjörg. Síðastliðna helgi fögnuðum við því að 101 ár er liðið frá því að konum var veittur kosningaréttur og kjörgengi. Margt hefur áunnist í jafnréttisbaráttunni síðan. Og í 55 ár hefur verið kveðið á um það í lögum að konum og körlum skuli greidd sömu laun fyrir sam- bærilega vinnu. Fyrrgreind könnun sýnir hins vegar að raunveruleg staða er allt önnur. Enn er launamunur milli karla og kvenna sem ekki er hægt að skýra með öðru en kynferði. Ríki og sveitarfélög búa yfir flestum stærstu vinnu- stöðum landsins. Formaður BHM, Þórunn Svein- bjarnardóttir, segir umfang vandans það mikið að um sé að ræða mannréttindabrot. Vandinn sé ekki aðeins kvenna heldur samfélagsins. Launajafnrétti er mælikvarði á jafnrétti kynjanna. Á meðan konur fá greidd lægri laun en karlar, eingöngu vegna kynferðis, er ekki hægt að segja að jafnrétti ríki í raun á Íslandi. Sama hver árangurinn hefur verið annars staðar. Á Íslandi er ekki jafnrétti í raun Enn er launamunur milli karla og kvenna sem ekki er hægt að skýra með öðru en kynferði. Miðasala er hafin Stórtónleikar í Eldborg 17. september Chris Norma n 2 4 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R16 S k o ð U n ∙ F R É T T A B L A ð i ð SKOÐUN 2 4 -0 6 -2 0 1 6 0 5 :3 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 D 2 -0 5 3 0 1 9 D 2 -0 3 F 4 1 9 D 2 -0 2 B 8 1 9 D 2 -0 1 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.